Emilíana Torrini í Bræðslunni á Borgarfirði.
Stórstjarnan Emilíana
Torrini kom til Borgarfjarðar laugardaginn 23. júlí 2005 til að spila á
tónleikum.
Þetta er í fyrsta sinn sem Borgarfjörður kemst þannig á heimskortið því svo
sannarlega gerðist það því Emilíana er eins og alþjóð veit orðin ein af okkar
skærustu íslensku stjörnum.
Emilíana var oft í sveit hjá ömmu sinni, Emilíu Lorange og Hallgrími Á
Vigfússyni sem bjuggu þá í Vinaminni. Vinaminni brann árið 1988 og
skömmu síðar fluttu þau á höfuðborgarsvæðið og eftir það rofnuðu þau tengsl
hennar við staðinn en það er ljóst að Emilíana hefur svo sannarlega ekki gleymt
Borgarfirði því iðulega í viðtölum við hana í gegn um tíðna hefur hún minnst á
þessi æskuár sín hér og hve henni leið vel hér. Það kom líka glöggt fram
þegar þessi einlæga og frábæra listakona kom hér að hún var að koma „heim“.
Hún þekkti ennþá fólkið, húsin, fjöllin og fjöruna og glöggt kom fram, bæði á
tónleikunum og utan þeirra að þessi „stjarna“ á hug og hörtu Borgfirðinga sem
þykjast eiga svolítið í henni og ekki er vafi að hún þykist líka eiga eitthvað í
staðnum.
Kjarvalsstofa hafði veg og vanda af þessum tónleikum og á hún heiður skilið
fyrir það áræði sem til þurfti til að það tækist. Sumir töldu það
jafnvel bera vott um smá klikkun að láta sér detta þetta í hug en með samstilltu
átaki þá tókst þetta og ekki bara tókst heldur tókst frábærlega í alla staði og
er framkvæmdaaðilum til mikils sóma. Þessir 500 einstaklingar sem áttu
þess kost að hlýða á Emilíönu í Bræðslunni munu seint gleyma þeirri frábæru
stund.
Ekki má heldur gleyma því að heimamaðurinn Guðmundur Magni Ásgeirsson sem er
söngvari hljómsveitarinnar Á móti sól, sá um að hita upp fyrir tónleika
Emilíönu. Hann stóð sig einstaklega vel. Þegar hann að
lokum söng: „Dararamm ....“ þá tók öll bræðslan undir og menn komust
á flug sem fram verður haldið á Álfaborgarsjens um verslunarmannahelgina.
Gömlu Brælslunni á Borgarfirði hafði verið
breytt í tónleikahús.
Tiltekt stóð í nokkra daga. Hér er fólk byrjað að safnast saman við
innganginn.