Borgarfjörður eystri... enn betri en þig grunar
BORGARFJÖRÐUR EYSTRI er nyrstur hinna eiginlegu Austfjarða. Þangað er tæplega 70 km. akstur frá
Egilsstöðum, um Vatnsskarð og Njarðvíkurskriður. Borgarfjörður eystri er rómaður fyrir náttúrufegurð og þá
sérstaklega fyrir sérstæðan fjallahring. Sunnan fjarðar er ljóst líparít allsráðandi eins og í Staðarfjalli, en fyrir botni
fjarðarins og norðan hans er blágrýti (basalt) mest áberandi og þá einkum í Dyrfjöllum. Inn af firðinum gengur um 10 km langur dalur, vel
gróinn og nokkuð breiður. Eftir honum rennur Fjarðará. Þorpið Bakkagerði stendur við fjarðarbotninn.Atvinnulíf á Borgarfirði hefur í gegnum árin fyrst og fremst einkennst af sauðfjárbúskap, smábátaútgerð og fiskvinnslu og svo er enn.
Alls eru u.þ.b. tíu býli í byggð í sveitinni og sauðfé á
þriðja þúsund. Fjallalömbum sínum beita Borgfirðingar innanfjarðar og á Víknasvæðið og afréttarland er nóg. Eins
og annars staðar á landinu hefur sauðfjárbúskapur dregist saman í Borgarfirði á síðustu áratugum. Þar á líka
hlut að máli riðuveikin, sem hefur reynst borgfirskum bændum mjög erfið. Allt fé í hreppnum var skorið niður árið 1987 og
fjárlaust var í þrjú ár. Síðan þá hefur riða komið upp á tveimur bæjum og þar hefur verið skorið niður
aftur.
Tíu til
tólf smábátar af stærðinni 5 til 10 tonn eru gerðir út frá Borgarfirði. Mest er veitt á línu og handfæri og fiskurinn er
unninn í salt í einu fiskverkun þorpsins, Fiskverkun Karls Sveinssonar. Þar vinna að jafnaði 8-10 manns, en í aflahrotum allt upp í 18. Nokkur
hefð er fyrir harðfisk- og hákarlsverkun á staðnum og ennfremur veiða nokkrir bátar grásleppu í net á vorin. Nokkrir einstaklingar
starfa við þjónustu og í iðnaði. Þá er ótalin steiniðjan Álfasteinn, sem veitir nokkrum atvinnu.
Þjónusta við ferðamenn hefur aukist mikið á síðustu árum en hún er
ennþá aðeins bundin við sumarmánuðina. Ýmis þjónusta: Hjúkrunarfræðingur er staðsettur á Borgarfirði, þar er
heilsugæsla og þangað kemur læknir frá Egilsstöðum reglulega. Fjallvegurinn yfir Vatnsskarð er opnaður þrisvar sinnum í viku yfir
vetrartímann ef þörf er á og póstbíll fer milli Egilsstaða og Borgarfjarðar fjórum sinnum í viku.Skólastarf á Borgarfirði er blómlegt. Þar eru allir tíu bekkir grunnskólans, leikskóli og auk þess tónskóli. Grunnskólinn og tónskólinn eru staðsettir hjá félagsheimili Borgfirðinga, Fjarðarborg. Þar er rekin veitingasala og gisting á sumrin, auk þess sem þar eru haldnir líflegar skemmtanir og dansleikir, einkum um Verslunarmannahelgina. Gisting er seld á nokkrum stöðum í hreppnum.
Líkt og aðrir smærri staðir á landsbyggðinni stendur Borgarfjörður eystri í harðri baráttu fyrir tilveru sinni í hinum harða heimi nútímans. Fólki hefur fækkað allört á síðustu árum og þá sérstaklega ungu fólki. Það er margt sem veldur svo sem breyttar kröfur almennings um þjónustu, samdráttur í landbúnaði og samdráttur í veiðum smábáta. Þann 1. des. 2001 voru íbúar Borgarfjarðarhrepps 150. Þó hefur ekki fékkað á Borgarfirði í nokkur ár og er það vonandi merki um að byggðin taki að eflast á ný.

Borgfirðingar eru gestrisnir, þægilegir heim að sækja og njóta þess að fræða gesti um sögu og náttúru svæðisins. Kynntu þér hér til hliðar þá þjónustu sem við höfum upp á að bjóða.
Vertu hjartanlega velkominn til Borgarfjarðar eystri og á Víknaslóðir.






