
Á Borgarfirði er stutt í návígi við náttúruna og því þarf ekki að leita lengi til þess að finna eitthvað áhugavert. Á vorin og sumrin er mikið um að vera þegar fuglalífið er í blóma og hafa Borgfirðingar langt kapp sitt á að byggja upp aðstöðu fyrir áhugamenn um fuglalíf og náttúru.
Óhætt er að segja að hvergi
á Íslandi er eins gott og öruggt aðgengi að lunda eins og við Hafnarhólma í Borgarfirði. Þar hefur verið byggður göngupallur sem
liggur í gegnum lundavarpið og er auðvelt að smella af stórkostlegum myndum af þessum fallega og sérstæða fugli. Í hólmanum er einnig
að finna mikið af Fýl, Ritu og Æðarfugli auk annara
tegunda. Öllum er frjálst að fara út að Hafnarhólma til þess að skoða og er þetta eitt helsta
aðdráttarafl Borgarfjarðar eystri.Borgarfjarðarhreppur heldur úti heimasíðu smábátahafnarinnar og fuglalífsins við höfnina
Í þorpinu við löndunarbryggjuna er að finna fuglaskoðunarhús, hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Í fjörunni fyrir neðan húsið er hægt að sjá á þriðja tug fuglategunda, en besti tíminn til þess að líta þessa fugla augum er í maí og júnímánuði.






