Lífið í sveitinni
Vikudvöl í Njarðvík við Borgarfjörð eystri
Vikudvöl í sveitinni þar sem fólki gefst kostur á að kynnast lífi
bænda í leik og starfi.- Gestum gefst tækifæri til að kynnast dýrunum á bænum og njóta þess sem náttúran hefur upp á að bjóða í Njarðvík við Borgarfjörð eystri.
- Víkin er umlukin fögrum fjallahring og fjaran steinsnar frá bænum.
- Um er að ræða íbúð sem tekur allt að 6 manns í gistingu.
- Hægt er að velja um dvöl með eða án fæðis, allt eftir samkomulagi.
- Á búinu eru um 400 kindur, 2 hundar 1 hestur.
Sauðburður,
gönguferðir, jeppaferðir, heyskapur, berjaferðir, göngur og réttir, sláturtíð, fengitími, jól og áramót, þorrinn,
páskarnir.Hver árstími hefur sinn sjarma og gestum er frjálst að velja um hvíld eða upplifun.
Boðið er upp á að sækja gesti í Egilsstaði og á Akureyri






