Gönguferð ársins 2012 fyrir Íslendinga í útivist
4
daga gönguferð á Borgarfirði eystra (Víknaslóðum) með Ferðaskrifstofu Austurlands, Flugfélagi Íslands og
Ferðaþjónustunni Álfheimum á. (Athugið 10% afsláttur fyrir hópa)- Gisting í tveggja manna herb. með baðherbergi, fullt fæði, leiðsögn og ferðir frá og til Egilsstaða: kr. 58.900 (50% afsl. fyrir 8-16 ára)
(Með flugi frá Reykjavík kr. 74.900)
- Gisting í svefnpokaplássi í tveggja manna herb. með sameiginlegu baði, fullt fæði, leiðsögn og ferðir frá og til Egilsstaða. kr. 45.800 (50% afsláttur fyrir börn 8-16 ára) (Með flugi frá Reykjavík aðeins kr. 64.900)
Lúxusferð um eitt af bestu göngusvæðum á Íslandi þar sem litfögur og tignarleg fjöll, fjölbreytt flóra og mannlíf, auk
sögu liðinna tíma heillar gesti og gangandi. Gist er í Álfheimum sem er nýtt gistihús í þorpinu Bakkagerði. Göngusvæðið
er fjölbreytt og vel skipulagt, með fjölda stikaðra gönguleiða við allra hæfi, sem ásamt góðri leiðsögn staðkunnugra vita okkur
innsýn í þennan heillandi heim álfa og Borgfirðinga.
Ferðin er að mestu leiti frekar auðveld í göngu og hentar öllum sem eru heilsuhraustir og eru vanir gönguferðum. Í ferðinni er reiknað með
þægilegum gönguhraða frá 2.5-4 km á klst. Allt er þó miðað við landslag, veður og ástand göngufólks hverju sinni.
Auðvelt er að að bæta við dagsferðina fyrir þá er vilja kíkja á fjallatoppa þó að fjallaskörð og dalir sé
leið númer 1. Nánar um göngu hvers dags má sjá í dagsskipulagi hér að neðan.
Dagur 1 Reykjavík – Egilsstaðir –Unaós – Stapavík – Njarðvík- Borgarfjörður eystri
Komið til Egilsstaða með morgunflugi Flugfélags Íslands tilbúin til göngu og ekið áleiðis til Borgarfjarðar. Við Unaós eftir um 45
mín akstur er gengið meðfram Selfljóti út að Krosshöfða og þá í Stapavík þar sem uppskipun var á síðustu
öld við all sérstæðar aðstæður. Úr Stapavík er gengin forn póstleið um Gönguskörð til Njarðvíkur þar
sem gangan endar og ekið er áleiðis til Borgarfjarðar. Afslöppun og komið sér fyrir í hótelherbergjum í Álfheim þar sem
dvalið er næstu 4 nætur. Kvöldverður og pöbbarölt. Myndir frá Borgarfirði má sjá hérna.
Dagur 2 Brúnavík Nokkuð létt ganga um slóða. Gengið um 14 km., hækkun um 700 m.
Við hefjum daginn við Hafnarhólma í umhverfisvottaðri bláfánahöfn, lífæð Borgarfjarðar með fjölbreytt fuglalíf
þar sem lundinn er í fararbroddi. Eftir heimsókn í lundabyggðina er haldið áleiðis upp Hafnarfjall til Brúnavíkurskarðs sem er hin
forna leið til Brúnavíkur. Þegar niður í víkina er komið er áð í gömlum húsarústum og þá gengið
niður á Brúnavíkursand þar sem líparítklettar mynda stórfenglega umgjörð um svarta sandfjöruna. Gengið til baka inn
Brúnavík og þá um Hofstrandarskarð til Borgarfjarðar. Myndir frá Brúnavík má sjá hérna.
Dagur 3 Breiðavík. Auðveld en 18 km. löng ganga um slóða. Hækkun um 400m.
Ekið inn í afrétt á móts við Urðarhóla þar sem gengið er meðfram Urðarhólavatni og Gæsavötnum um
Víknaheiði og Vatnstungur til Breiðuvíkur, litfagurri og heillandi eyðivík. Haldið heim á leið um Gagnheiði þar sem
útsýnisskífa er staðsett með góðu útsýni yfir Víknaslóðir og Borgarfjörð, þá um Þrándarhrygg
og undir Svartfelli til Borgarfjarðar þar sem bíður ljúfengur kvöldverður í Álfheimum. Myndir frá Breiðuvík má sjá hérna.
Dagur 4 Stórurð (Nokkuð erfið yfirferðar og um 16 km löng . Hækkun um 700 m)
Eftir akstur upp í Vatnsskarð er gengið sem leið liggur um Geldingafell með ægifögru útsýni, þaðan undir Súlum þar til opnast
útsýni yfir Stórurð. Gengið er niður í Stórurð sem erfitt er að lýsa með orðum svo stórfengleg er
náttúrufegurð hennar. Það er ekkert launungarmál að þarna er á ferðinni eitt best varðveitta leyndarmál náttúru
Íslands enda gönguleiðin kosin sú besta á Íslandi af hlustendum rásar 2 í marsmánuði.
Úr Stórurð er síðan venjulega gengið undir Dyrfjöllum til Borgarfjarðar þar sem tröllvaxtnir hamrar Dyrfjallanna varða leiðina en einnig
er möguleiki að ganga styttri leið undir Rjúpnafelli áleiðis að veginum uppfrá Unaósi til Vatnsskarðs. Myndir frá Stórurð má sjá
hérna
Dagur 5 Borgarfjörður – Reykjavík
Ekið til Egilsstaða eftir morgunmat í Álfheimum í veg fyrir flug Flugfélags Íslands til Reykjavíkur.
Ferðaáætlun getur breyst á milli daga vegna veðurfars eða annarra ytri aðstæðna.
Bókanir og nánari upplýsingar hjá Ferðaþjónustunni Álfheimum hjá Arngrími Viðari og Þórey í síma
8613677 eða netfangið : info@elftours.is





