Ferðafélag Fljótsdalshéraðs ferðaplan

Víknaslóðir 2012  FFF-20 Fugla- og blómaskoðunarferð (Lúxusferð) 22. júní: Brottför frá Gistiheimilinu Borg kl.11 og ekið upp í Hjaltastaðaþinghá. Gengið

Lengri ferðir Ferðafélags Fljótsdalshéraðs

Víknaslóðir 2012

 FFF-20 Fugla- og blómaskoðunarferð (Lúxusferð)
22. júní: Brottför frá Gistiheimilinu Borg kl.11 og ekið upp í Hjaltastaðaþinghá. Gengið frá Unaósi yfir í Stapavík og skoðuð súrsmæra.  Gengið yfir Gönguskörð og vonast til að sjá eggtvíblöðku.  Á Borgarfirði verður skoðaður lyngbúi og ljósalyng og einnig verður farið út í Hafnarhólma og skoðaður lundinn, blikönd og fleiri tegundir. Gist verður á Gistiheimilinu Borg.

23. júní: Ekið frá Borgarfirði upp á Húsavíkurheiði.  Þaðan verður gengið niður í Húsavík.  Blómaskoðun t.d. mýrarberjalyng.  Gist í Húsavíkurskála.

24.júní: Gengið yfir Nesháls til Loðmundarfjarðar og skoðað bláklukkulyng. Gengið til baka til Húsavíkur og ekið þaðan til Borgarfjarðar þar sem ferðin endar.
Fararstjóri: Skúli Sveinsson.
Verð kr.  28.000.-. Innifalið: Gisting, trúss og leiðsögn. Möguleiki á að kaupa fullt fæði.

Skráning í ferðina er í síma 472 9870 eða gistingborg@simnet.is 

 



FFF-21: Víknaslóðir – (Lúxusferð)
22. júlí:  Brottför frá Gistiheimilinu Borg, Borgarfirði eystri  kl. 10. Gengið í Stapavík, sem er gömul uppskipunarhöfn og verslunarstaður. Einnig skoðaðir helstu staðir á Borgarfirði.  Gist í Gistiheimilinu Borg

23. júlí: Gengið í Stórurð undir Dyrfjöllum. Urðin er mjög stórfengleg brotabergsurð, sem hefur myndast við gos undir vatni eða ís og Urðin sjálf er framhlaup undan skriðjöklum.  Gist í Gistiheimilinu Borg.

24. júlí: Gengið til Brúnavíkur og þaðan til Breiðuvíkur.  Gist í skála Ferðafélags Fljótsdalshéraðs.

25. júlí: Gengið um nærliggjandi víkur. Gist aftur í Breiðuvíkurskála.

26. júlí: Gengin önnur leið til baka til Borgarfjarðar.
Fararstjóri: Árni Áskelsson.
Verö kr. 42.000.- Innifalið Gisting, trúss og leiðsögn. Möguleiki á að kaupa fullt fæði.

Skráning í ferðina er í síma 472 9870 eða gistingborg@simnet.is 



FFF-22:   Víknaslóðir – Gönguferð (lúxusferð)
30. júlí:  Brottför frá Gistiheimilinu Borg, Borgarfirði eystri kl. 10. Sameinast í bíla. Ekið frá Borgarfirði inn á Húsavíkurheiði.  Gengið á Hvítserk og niður í Húsavík þar sem gist er í Húsavíkurskála.

31.júlí: Gengið til Álftavíkur og þaðan aftur í Húsavíkurskála og gist þar.

1.ágúst: Gengið frá Húsavík til Loðmundarfjarðar.  Gist í skála Ferðafélags Fljótsdalshéraðs að Klyppsstað í Loðmundarfirði.

2.ágúst: Gengið á Herfell eða Kerlingu, gist aftur í Loðmundarfirði.

3.ágúst: Gengið um Kækjuskörð til Borgarfjarðar.
Fararstjóri: Árni Áskelsson.
Verð kr. 82.000.-. Innifalið: Gisting, fullt fæði, leiðsögn og trúss.   

Skráning í ferðina er í síma 472 9870 eða gistingborg@simnet.is

 



FFF-23: Víknaslóðir – Gönguferð
2.ágúst: Brottför frá Gistiheimilinu Borg, Borgarfirði eystri kl. 10.  Gengið í Stapavík, sem er gömul uppskipunarhöfn og verslunarstaður.  Einnig skoðaðir helstu staðir á Borgarfirði.  Gist í Gistiheimilinu Borg.

3.ágúst: Gengið í Stórurð undir Dyrfjöllum. Stórurð er orðinn einn mest umtalaði áfangastaðurinn hjá göngufólki á Íslandi enda alveg stórfenglegur staður og hrikaleikinn allsráðandi. Gist í gistiheimilinu Borg.

4.ágúst: Gengið á Hvítserk milli Borgarfjarðar og Húsavíkur og á nærliggjandi fjöll.

Fararstjóri: Hafþór Snjólfur Helgason, landfræðingur
Verð kr. 28.000 – Innifalið: Gisting, trúss og leiðsögn.  Möguleiki á að kaupa fullt fæði.

Skráning í ferðina er í síma 472 9870 eða gistingborg@simnet.is 

Mynd augnabliksins

Könnun

Stefniru á að koma á Borgarfjörð á Þessu ári
headerheaderheaderheader
GestabókHafa sambandHeim
East Iceland today. Sunrise / Sunset | -6° / VNV 8

Ferðamálahópur Borgarfjarðar

Upplýsingar um ferðamál: s: 893-9913
Vefumsjón: Hafþór Snjólfur Helgason
hshelgason@gmail.com

Fréttabréf

Póstlisti

Vertu vinur okkar

Vertu vinur okkar á facebook og fylgstu með okkur þar.
Stefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya