Heilsugæsla

Starfssvið skólaheilsugæslunnar er m.a. að fylgjast með heilbrigði og þroska barnanna. Bent er á, að börn með lesblindu/lestrarörðugleika ( dyslexiu )

Heilsugæsla

Starfssvið skólaheilsugæslunnar er m.a. að fylgjast með heilbrigði og þroska barnanna.

Bent er á, að börn með lesblindu/lestrarörðugleika ( dyslexiu ) geta haft gagn af augnskoðun hjá augnlækni.

Einnig er fylgst með því að börnin hafi fengið þær bólusetningar sem tilmæli Landslæknis segja til um.  Hafi börnin ekki fengið þessar bólusetningar, er haft samband við foreldra/forráðamenn.  Skipulagri heilbrigðisfræðslu í öllum bekkjadeildum skólanna er sinnt.

Á vegum skólaheilsugæslunnar er einnig starfrækt Lífsstílsteymi fyrir of þung og of feit börn, þar sem áherslan er lögð á hreyfingu og hollt mataræði.

Hafi foreldrar athugasemdir eða spurningar, eru þeir beðnir um að hafa samband við skólahjúkrunarfræðing.

Skólahjúkrunarfræðingur Grunnskólans á Borgarfirði er:
Susanne Neumann, sími 868-0860
Netfang: heilsabf@hsa.is

Viðverutími hjúkrunarfræðings í skólanum skiptist í viðtalstíma, skólaskoðanir, fræðslu og önnur mál sem upp kunna að koma.Viðverutíminn er eftir þörfum og samkomulagi við starfsfólk skólans.

Skólalæknir er:
Pétur Heimisson, hægt er að ná í hann í símatíma á heilsugæslunni í síma 470-3000

 

Reglubundnar skoðanir og bólusetningar:

        1. bekkur: sjónpróf

        4. bekkur: sjónpróf, hæðarmæling og þyngdarmæling

        7. bekkur: sjónpróf, lyktarskynspróf, hæðarmæling og þyngdarmæling.

           Bólusett gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum (ein sprauta )

         9. bekkur: sjónpróf, heyrnarpróf, hæðarmæling og þyngdarmæling.

           Bólusett gegn mænusótt, barnaveiki, kíghósta og stífkrampa (ein sprauta)

 

 

 

headerheaderheader
GestabókHafa sambandHeim
East Iceland today. Sunrise / Sunset | 6.8° / S 7

Ferðamálahópur Borgarfjarðar

Upplýsingar um ferðamál: s: 863-2320
Vefumsjón: Hafþór Snjólfur Helgason
hshelgason@gmail.com

Fréttabréf

Póstlisti

Vertu vinur okkar

Vertu vinur okkar á facebook og fylgstu með okkur þar.
Stefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya