Skólabíll/rúta
Forföll nemenda/veikindi á að tilkynna til skólans með góðum fyrirvara þannig að starfsfólk skólans geti komið
þeim upplýsingum til skólabílstjóra. Ef foreldrar fá frí fyrir börn sín utan skólatíma ber þeim að láta
skólabílstjóra vita. Ef nemendur ætla á eigin vegum hjólandi eða gangandi ber foreldrum einnig að láta skólabílstjóra
vita.
1. Nemendur eiga að vera tilbúnir þegar skólabíllinn kemur heim í hlað, eða fer frá skóla.
2. Í skólabílnum eiga allir að nota bílbelti og sitja kyrrir í sætum sínum. Hvers kyns hávaði
og læti eru bönnuð í bílnum.
3. Samferðarfólki ber að sýna fyllstu kurteisi og tillitssemi og hlýða í einu og öllu bílstjóra
og gæslufólki.
4. Neysla sælgætis er alltaf bönnuð í ferðum með skólabíl og rútu.




