Daglegar venjur

  Dagskipulag Dagskipulagið myndar ramma um uppeldisstarfið í leikskólanum. Það heldur lífinu í skólanum í hæfilega föstum skorðum og skapar öryggi og

Daglegar venjur

 

Dagskipulag

Dagskipulagið myndar ramma um uppeldisstarfið í leikskólanum. Það heldur lífinu í skólanum í hæfilega föstum skorðum og skapar öryggi og festu sem eykur vellíðan barna og starfsfólks.

Kl. 10:00  - 10: 30        Úti / innivera

Kl. 10:30— 11: 00       Samvera / söngstund

Kl. 11: 00—12:00      Vinnustund

Kl. 12:00 — 12:45      Hádegismatur

Kl. 13:00 —14:00       Útivera

Kl. 14:00 — 14:30     Vinnustund

Kl. 14:30 — 15:00       Samvera / söngstund

Kl.  15:30 – 15:30        Síðdegishressing

Kl. 15:00 – 16:00         Útivera / heimferð

 

            Móttaka:  Við tökum á móti hverju barni og foreldrum þess með virðingu og gleði. Með því leggjum við grunn að góðum degi.

Samveru– og söngstund :  Í þessum stundum eru lesnar eða sagðar sögur, leiknir leikir, sungið og spjallað saman. Áhersla er á þátttöku allra og vellíðan. Söngur gefur gott tækifæri til þátttöku allra, hann er gleðigjafi og tengingarleið við menn og málefni.

Máltíðir:  Sinna þarf næringarþörf barnanna með góðum og hollum mat. Við fáum sendan mat frá mötuneyti skólans þrisvar í viku: á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum. Aðra daga er ekki leikskólinn opinn fyrir hádegi. Í nestistímum leggjum við áherslu á að barnið komi með smurt brauð, ávexti og grænmeti sem nesti. Sætindi eru viðhöfð einstöku sinnum og þá oft eitthvað sem börnin hafa sjálf útbúið í leikskólanum. Við leggju áherslu á góða borðsiði en viljum jafnframt kenna börnunum að njóta þeirra félagslegu aðstæðna sem skapast við sameiginlegar máltíðir og leggjum áherslu á frið og ró við matarborðið.

Hreinlæti: Sinna þarf hreinlætisþörfum hvers og eins af natni.  Við leggjum grunn að góðum hreinlætisvenjum barnanna með því að kenna þeim handþvott eftir útivist og     salernisferðir og fyrir máltíðir.

Að klæða sig úr og í :  Íslensk veðrátta gerir kröfur til góðs skjólfatnaðar mikinn hluta ársins. Veigamikill þáttur í uppeldi er útivist barnanna og hreyfing í öruggu umhverfi. Yngstu börnunum er sinnt hverju og einu við að klæða sig. Smám saman krefjast þau þess að bjarga sér sjálf og ber að virða sjálfsbjargarviðleitni þeirra og ýta undir hana. Í forstofunni gefst oft góður tími til að spjalla við barnið, fræða það um líkamann, fatnað, veðurfar og annað sem örvar málþroska þess og orðaforða. Áhersla er lögð á að börnin læri að ganga snyrtilega frá fatnaði sínum og að þau taki þátt í frágangi.

Útivist:  Með daglegri útivist er komið til móts við hreyfiþörf  barnanna. Í útivistinni fær barnið frelsi til að nota raddstyrk og grófhreyfigetu að vild án þess að trufla aðra.

Aðlögun barns: Aðlögun barns er einn þáttur í uppeldisstarfinu og skiptir miklu máli fyrir barnið og foreldra þess. Auk þess skiptir það máli að vel takist til með kynni barnsins við hópinn og starfsfólkið. Nauðsynlegt er að gefa öllum örnum nægan tíma til aðlögunar. Markmiðið er að tryggja strax í upphafi að barnið öðlist öryggi og að því geti liðið vel í leikskólanum. Barnið þarf að kynnast nýju fólki og öðrum börnum, ásamt því að aðlagast daglegum venjum og siðum í leikskólanum. Eftir því sem barnið er yngra þarf það venjulega lengri tíma.  Starfsfólkið metur í samráði við foreldra hversu marga daga barnið þarf að vera með foreldrum áður en það er tilbúið að takast á við þetta nýja umhverfi.

Heimferð: Við kveðjum börnin og foreldra þeirra að loknum vinnudegi og leggjum áherslu á að börnin fari sátt heim svo þau hlakki til að koma aftur til starfa næsta dag.

headerheaderheader
GestabókHafa sambandHeim
East Iceland today. Sunrise / Sunset | 6.9° / S 4

Ferðamálahópur Borgarfjarðar

Upplýsingar um ferðamál: s: 863-2320
Vefumsjón: Hafþór Snjólfur Helgason
hshelgason@gmail.com

Fréttabréf

Póstlisti

Vertu vinur okkar

Vertu vinur okkar á facebook og fylgstu með okkur þar.
Stefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya