Gott samstarf foreldra og leikskóla er forsenda fyrir góðri líðan barnsins og árangursríkri dvöl í leikskólanum. Samvinna foreldra og leikskóla þarf að byggjast á gagnkvæmu trausti, virðingu og opnum samskiptum.
Markmið okkar í foreldrasamstarfi eru:
- að veita foreldrum upplýsingar um starfsemi leikskólans, þroska og líðan barnanna.
- að geta rætt við foreldra um aðstæður þeirra og uppeldisviðhorf og skapa umræðuvettvang fyrir skoðanaskipti um uppeldi barna.
Til að ná þessum markmiðum er lögð áhersla á góða aðlögun barna og foreldra. Á töflu í anddyri skólans eru upplýsingar um dagskipulag og fleira sem varðar foreldra og börn.




