Leikskólanám

Leikskólanám   Ađalnámskrá leikskóla er fagleg stefnumörkun um menntunarhlutverk leikskólans og stefnumótandi leiđarvísir um uppeldisstarf í leikskóla.

Leikskólanám

Leikskólanám

 

Aðalnámskrá leikskóla er fagleg stefnumörkun um menntunarhlutverk leikskólans og stefnumótandi leiðarvísir um uppeldisstarf í leikskóla. Hún byggist á barnhverfri hugmyndafræði þar sem þroski barnsins og þarfir eru þungamiðjan, markmiðslýsingu laga um leikskóla, reglugerð um starfsemi leikskóla og uppeldisáætlun fyrir leikskóla frá 1993. Námskránni er ætlað að samræma uppeldi og menntun barna í leikskólum, ásamt því að vera viðmið þegar leikskólastarf er metið og tryggja gæði þess. Á grundvelli þessa leiðarvísis á sérhver leikskóli að gera eigin skólanámskrá.

Leikskólanám er samþætt nám þar sem námssvið og námsþættir fléttast inn í leik barnsins og daglegt líf í leikskólanum. Barnið er í brennidepli og allt starf miðast við þroska þess og þarfir. Leikskólanám á að efla aðhliða þroska barnsins; þar samtvinnast: hreyfifærni, tilfinningalíf, vitsmunir, félagsvitund, félagshæfni, fegurðarskyn, sköpunarhæfni, siðgæði og lífsviðhorf. Uppeldi og menntun barnanna er samvinnuverkefni allra starfsmanna í leikskólanum. Einnig trúum við því að gott samstarf við foreldra og fjölskyldur barnanna sé forsenda þess að vel takist til.          

Nám barns stjórnast af áhuga þess og það læri af eigin reynslu. Þess vegna eru einkunarorð okkar “ leikum og lærum.” I leik lærir barn að þekkja og virða sjálft sig og aðra, það þróar með sér jákvæða sjálfsmynd og sjálfstæði svo sem að standa á eigin skoðunum og sjálfsaga. Það lærir einnig að eiga samskipti við aðra og félagslega færni, svo sem umburðarlyndi, málamiðlun, samningaviðræður og vandamálalausnir. Í þessu felst mikil lífsleikni. Félagsleg virkni og þátttaka býr barn undir það að verða ábyrgur þjóðfélagsþegn. Við dagleg störf gefast fjölmörg tækifæri til að byggja upp traust, barnið lærir að hafa frumkvæði og bjarga sér sjálft.

Dagskipulag leikskólans er ramminn utan um starfið. Það byggist á athöfnum sem fullnægja líkamlegum grunnþörfum barnsins og fjölbreyttum leik, ásamt endurtekningu sem skapar festu. Samkvæmt því tekur barnið til skiptis þátt í frjálsum leik og fyrir fram skipulögðum stundum. Er þetta gert til að barnið viti alltaf á hverju það á von og verði þar af leiðandi öruggara en ella. Við mótun sjálfsmyndar sé mikilvægt að grunnþörfum einstaklinga sé fullnægt og að umhverfi barnsins þjóði upp á öryggi, traust, sjálfstæði og möguleika þess til að hafa frumkvæði.

Starfsmaðurinn á að skapa fjölbreytt tækifæri til leikja og athafna fyrir barnið. Leikurinn er kennsluaðferð starfsmannsins og námsleið barnsins. Starfsmaðurinn á að vera sjálfum sér samkvæmur og góð fyrirmynd barnanna. Hann á alltaf að vera nálægur, sýna börnunum virðingu, hlýju og ummhyggju ásamt því að aðstoða þau við lausn ágreinings.

 Með þetta að leiðarljósi leggur leikskólinn áherslu á:

  • að móta og þróa leikskólastarf sem byggist á samvinnu fag– og uppeldisstétt
  • að þróa leikskólastarf þar sem komið er til móts við þarfir barna á ólíkum  þroskastigum með það að markmiði að efla  alla eiginleika barnsins með leik 
  • að stuðla að jafnrétti og einnig gildi og virðingu hvers einstaklings 
  • að móta glaða, virka, ábyrga, skapandi, hugvitssama, gagnrýna og sjálfstæða  einstaklinga sem eru færir um að velja og hafna í lífinu 
  •  að barnið læri sjálfstjórn og öðlist færni í samskiptum 
  • að barnið sé viðrukennt á eigin forsendum og njóti gleði, öryggis og vellíðunar í  skólanu
  • að í skólanum sé hver einstaklingur metinn á eigin forsendum og þar ríki hlýlegt og örvandi andrúmsloft.

Leiðir okkar að þessum framtíðarmarkmiðum eru:  

  • Leikurinn
  • Daglegar venjur
  • Námssvið
  • Hópastaf og skólastundir

 

Námssvið

Samkvæmt Aðalnámskrá leikskóla eru námssviðin í leikskólauppeldi:  hreyfing, málrækt, myndsköpun, tónlist, náttúra og umhverfi, menning og samfélag, tölvur, hefðir og hátíðir. Auk þessara námssviða höfum við bætt við vísindum og stærðfræði sem við vinnum með.

Í Leikskólanum Glaumbæ höfum við sett okkur markmið í eftirfarandi námssviðum:

Hreyfing: Hreyfiuppeldi er samofið öllu leikskólastarfi.  Hreyfing er undirstaða alls þroska og því mikilvægt að hreyfing barna sé fjölbreytt og skipi stóran þátt í lífi þeirra. Með hreyfingu tjá börnin sig og fá útrás. Um leið styrkist líkamsvitund og eykur getu barnsins til fjölbreyttra athafna sem efla sjálfstraustið. Með hreyfingu lærir barnið að þekkja sjálft sig og skynja rými. Dagleg útivist gefur góða möguleika til eflingar hreyfiþroskans. Starfsfólk á að vera virkt í útivistartíma með börnunum og efla þau til dáða og taka þátt í þeirri gleði sem aukin færni veitir þeim. Sérstaða leikskólans er sú að gott tækifæri gefst til gönguferða um mjög fjölbreytt landslag s.s. fjöruferðir, fjallgöngur( Álfaborgin) og heimsóknir í heimkynni húsdýranna.  Margvísleg tækifæri eru fyrir hreyfiþjálfun í frjálsum leik inni. Við fáum að nýta okkur salinn í Fjarðarborg eins og undanfarin ár og núna í vetur getum við einnig farið og hreyft okkur í sparkhöllinni. Eins eru hreyfistundir á leikskólanum þar sem dýnur, boltar, stólar, klifrugrind og leikföng,  sérstaklega ætluð til hreyfiþjálfunar eru notuð.

Markmið:

  • að barni njóti þeirrar gleði sem hreyfingin veitir
  • að auka þol, einbeitingu og styrk
  • að efla sjálfsmynd og sjálfstraust
  • að þjálfa gróf– og fínhreyfingar
  • efla líkamsvitund og alhliða þroska
  • að læra að virða leikreglur fara að fyrirmælum og  meta aðstæður.

Málrækt:  Tungumálið er mikilvægasta tæki manna til boðskipta. Áhersla skal lögð á málörvun og málrækt í öllu starfi með börnunum.  Í hópastarfinu, samverustundunum,  í fataklefanum og við matarborðið er tækifærið notað til að efla mál og málskilning barnanna. Einnig leggjum áherslu á virka hlustun sem er börnunum m.a. hvatning til að efla mál sitt og frásagnargleði.  Lesið er daglega fyrir öll börnin og einnig eru ljóð sungin og lesin. Lögð er áhersla á að starfsmenn tali vandað mál því að þeir eru fyrirmynd barnanna.

Markmið:

  • að efla málþroska og málskilning
  • að tryggja að öll börn í leikskólanum hafi möguleika á tjáskiptum
  • að auka orðaforða og hugtakaskilning
  • að auka tjáskipti sem er undirstaða félagslegrar þátttöku.

Myndsköpun:  Myndsköpun er daglegur þáttur í leikskólanum.Börn hafa ríka þörf fyrir að tjá sig í myndmáli. Listsköpun eflir sjálfstraust barnanna og styrkir jákvæða sjálfsmynd þeirra. Hún örvar einnig hugmynda-flug og löngun til að skapa. Samhæfing augna og handa eykst og þau fá útrás fyrir tilfinningar sínar. Aðalatriði myndsköpunar er að þau fái að vinna með ýmis efni, maka og mála með fingrunum eða pensli. Þau læra að blanda liti og skynja betur fjölbreytileika litanna. Efni til myndsköpunar er haft aðgengilegt svo þau geti sjálf náð í það sem þau vanhagar um.  Þau eiga auðvelt með að tjá sig um myndirnar sínar og eru hvött til dáða.

           Markmið:

  • að örva sköpunarhæfni og sköpunargleði 
  • að börnin fái tækifæri til að koma hugsunum sínum og reynslu í myndrænt  form og túlka þær 
  • að börnin öðlist nægilega hreyfifærni og                            
  • samhæfingu til að teikna, forma og lita 
  • að auka sjálfstraut barnanna og muna að                     
  •  það er ferlið sem skiptir máli.

Tónlist:  Söngstundir eru hluti af hverri samverustund og einnig í hópastarfi. Börnin læra ný lög og texta og þá oft í tengslum við það efni sem er í gangi hverju sinni. Geisladiskar og bönd eru notuð jafnt sem efni til að hlusta á, dansa eftir eða skapa rétt andrúmsloft fyrir hreyfingu eða slökun.

           Markmið:

  • að æfa söng, hlustun og taktskyn 
  • að öðlast jákvætt viðhorf til tónlistar og læra að njóta hennar 
  • að veita innsýn í söng og tónlistarhefðir.

 
Náttúra og umhverfi:  Við eigum því láni að fagna að hafa náttúruna alveg við hliðið hjá okkur.  Við notfærum okkur þetta og kynnum börnunum undur náttúrunnar og árstíðaskiptin. Barni er hollt að kynnast fjölbreytileika náttúrunnar, komast í návist við hana og læra að virða og njóta fegurðar hennar.       

Markmið:

  • að börnin læri að bera virðingu fyrir náttúrunni
  • að efla þekkingu á náttúrunni, svo sem helstu húsbýrum og plöntum
  • að vekja börnin til umhugsunar um árstíðaskipti og margbreytileika veðurfars
  • að börnin kynnist gróðursetningu, ræktun og  endurvinnslu.

Vísindi: Áhugi barna á að leysa þrautir og kanna mismunandi áhrif og eiginleika hluta er óendanlegur. Tilraunir með vatn og áhrif þess á ýmis efni, með loft, hita og kulda eru óþrjótandi viðfangsefni. Það vekur umræðu og undrun að sá fræjum og fylgjast með vexti þeirra eða skoða skordýr í víðsjá. Og ekki er það síður fræðandi að rannsaka gömul tæki, nota verkfæri til að skrúfa þau í sundur og skoða inn í þau. Með rannsóknum örvum við vitsmuna- og félagsþroska barnanna. Þau fá að uppgötva, þreifa sig áfram og gera mismunandi tilraunir.

           Markmið:

  • að vekja áhuga og efla skilning barnsins fyrir eiginleikum hluta og efna 
  •  vinna með margvísleg skaðlaus efni og gera tilraunir sem byggjast á reynslu og  hugmyndaflugi 
  •  velta fyrir okkur undrum lífsins.

Stærðfræði: Unnið er með stærðfræðina í daglegu starfi leikskólans, í hópastarfi, matmálstímum, vali, fataherbergi, samverustundum o.fl. Við leitumst við að finna stærðfræðina í okkar nánasta og daglega umhverfi og leika okkur með hana. Við vinnum með hugtök s.s. fjöldi, stærra en og minna en, undir, ofan á, við hliðina á, skipta á milli, margfalda, mælingar, mælieiningar, formin og margt fleira. Vinnan er unnin á forsendum barnanna og höfð hlutbundin, þ.e. að börnin geti handfjatlað og leikið sér með viðfangsefnin.

           Markmið:

  • að öðlast þekkingu í gegnum leikinn á stærðum og hugtökum tengdum   stærðfræði. 

 


headerheaderheader
GestabókHafa sambandHeim
East Iceland today. Sunrise / Sunset | 6.8° / S 5

Ferđamálahópur Borgarfjarđar

Upplýsingar um ferðamál: s: 863-2320
Vefumsjón: Hafþór Snjólfur Helgason
hshelgason@gmail.com

Fréttabréf

Póstlisti

Vertu vinur okkar

Vertu vinur okkar á facebook og fylgstu með okkur þar.
Stefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya