Eins og undanfarin ár er mötuneyti Grunnskóla Borgarfjarðar í Fjarðarborg. Allir nemendur
skólans eiga þess kost að fá hádegisverð þá daga sem þeir eru í skólanum eftir hádegi. Boðið er upp á
venjulegan heimilismat og leitast við að hafa nokkra fjölbreytni í fæðuvali. Einn kennari borðar með nemendum hverju sinni og hefur þá umsjón
með hádegishléinu.Sú venja hefur skapast að hafa tilbreytingu í mat á afmælisdögum. Sami háttur verður á og sl. skólaár að matseljan Jóhanna Óladóttir ætlar að hafa afmæli mánaðarins, en þá er einn þriðjudagur í mánuði valinn og hafður veislumatur að hætti barnanna.
Hádegishlé hefst kl. 12:05 til 12:40.
Sími í Fjarðarborg er: 472-9920
Mælst er til að nemendur:
gefi sér góðan tíma að borða og ræði saman á hljóðlegu nótunum setji stólinn að borðinu að máltíð lokinni beri af borðum og þrífa eftir sig ef hellist niður. Einnig er mjög góður siður að þakka fyrir sig að máltíð lokinni.




