Skólaárið 2012 - 2013 stunda 18 nemendur nám við skólann. Þeim
er að mestu kennt í þremur námshópum er skiptast þannig:
1. - 3. bekkur, 4 nemendur,
6. - 7. bekkur, 5 nemendur
9. - 10. bekkur, 9 nemendur.
Bekkjarnámskrá skal vera nánari útfærsla á aðalnámskrá grunnskóla en jafnframt gefur hún kost á að
laga fyrirmæli aðalnámskrár að sérstöðu hvers skóla og staðbundnum aðstæðum, draga þessi sérkenni fram og nýta
þau til eflingar námi og kennslu. Aðalnámskrá setur skólum almenn viðmið en það er aftur á móti hvers skóla að
útfæra þau nánar í skólanámskrá bæði með tilliti til þess nemendahóps sem stundar nám í skólanum
sem og þeirra kennsluhátta sem skólinn aðhyllist
Engin ein kennsluaðferð er árangursríkari en önnur; heldur gildir ávallt að nota fjölbreyttar aðferðir sem henta efninu og markmiðum hverju sinni. Í aldursblönduðum hópum (samkennslu) er gert ráð fyrir mismunandi hæfni og námsaðferðum. Nemendur gera ráð fyrir og hafa vanist því að þeir eru á ólíku getustigi en upplifa sig samt sem áður hluta af hópnum. Það er ljóst að slíkt skipulag kallar á aukna og góða samvinnu milli kennara.
Allar kennsluáætlanir geta foreldrar/forráðamenn nálgast
með sínu eigin lykilorði á mentor.is




