Grunnskólinn á grænni grein

  Í síðustu viku þ.e. 23. febrúar 2013 endurnýjuðum við umsókn okkar um Grænfánann og getum átt von á heimsókn frá landvernd til að taka út skólann í maí.

Grunnskólinn á grænni grein

 
Í síðustu viku þ.e. 23. febrúar 2013 endurnýjuðum við umsókn okkar um Grænfánann
og getum átt von á heimsókn frá landvernd til að taka út skólann í maí. Með umsókninni þurfti að fylgja greinargerð um hvaða markmiðum við höfum verið að vinna að s.l. tvö ár eða frá því að við fengum fánann í desember 2010.


Greinargerð með nýjum og endurskoðuðum  markmiðum:

 

1.  Áframhaldandi vinna með moltugerð og matjurtagarð.

Við höfum unnið að því að útbúa okkur moltu í þar til  gerðri tunnu sem er staðsett í matjurtagarðinum okkar. Þessa moltu notum við síðan til að bæta moldina í garðinum og fá betri uppskeru úr honum en þar  ræktum við m.a. kartöflur.

 2. Flokkun á rusli.

Við flokkum rusl í skólanum í sérstök ílát sem farið er síðan með niður á Heiði sem er flokkunarstöðin  í sveitarfélaginu.  

3. Áframhaldandi vinna með orku-  pappírssparnað og endurnýtingu.

Við spörum pappír með því að ljósrita báðum megin á blöðin. Við sendum rafræn skilaboð og notum heimasíðu skólans www.borgarfjordureystri.is/grunnskoli fyrir tilkynningar og fréttir.

 Við spörum orku með því að slökkva ljósin eftir að birtir á daginn, draga gluggatjöldin fyrir á kvöldin til að hindra hitatap og hafa glugga ekki opna að óþörfu.
Við endurnýtum eins og við getum t.d., í mynd og handmennt ganga gamlir og þreyttir hlutir í endurnýjun lífdaga eða jafnvel fá nýtt hlutverk.

4. Gróðursetja tré í nágrenni skólans.

Á hverju vori gróðursetjum við tré við Álfaborg. Gefum eldri plöntum áburð og reitum frá þeim.

5. Stuðla að bættri lýðheilsu með hreyfingu og hollu matarræði.

Við leggjum áherslu á styttri og lengri gönguferðir með alla nemendur skólans. T.d. er á hverju hausti farið í langa gönguferð sem tekur allan daginn og stundum gist í skálum. Á hverju ári er Borgarfjarðarhreysti þar sem nemendur, foreldrar og kennarar etja kappi saman í óhefðbundnum íþróttum. Einnig tökum við þátt í verkefninu göngum í skólann og norræna skólahlaupinu svo eitthvað sé nefnt. Við hvetjum nemendur til að borða  hollan mat og er boðið upp á ávexti í nestistímum og hollan mat í skólamötuneytinu.

6. Fuglar laðaðir að skólalóðinni með því að gefa þeim í vetrarhörkum og útbúa fyrir þá
fuglahús.

Í handmennt voru búin til fluglahús sem fest voru á girðingu. Þar er hægt að gefa fuglunum korn, brauðafganga og eplaúrgang.

7. Kynna stefnu skólans út á við og vera dugleg að fræða nemendur og foreldra um  
    umhverfisvernd.
    Setja inn á vef skólans stefnu skólans, fréttir og kynningarefni. Kynna fyrir nemendum og 
    foreldrum umhverfissáttmálann okkar og niðurstöður úr umhverfisgátlista.
 

 

"Grunnskóli á grænni grein" 
 
Eins og kunnugt er hóf  Grunnskóli Borgarfjarðar haustið 2005 þátttöku í Grænfánaverkefni  Landverndar; „skóli á grænni grein“ og 17. desember 2010 fengum við grænfánann afhentan. Vel hefur tekist að vinna eftir settum markmiðum, en það er brýnt að vera vel vakandi og virkja alla, jafnt nemendur, foreldra sem og starfsfólk skólans því þótt fáninn blakti við hún er verkefninu aldrei lokið.

Til þess að hægt væri að draga grænfánann að húni þurftum við að stíga skrefin sjö að settu marki sem voru að:
1.      stofna umhverfisráð skólans
2.     meta stöðu umhverfismála í skólanum
3.      gera áætlun um aðgerðir og markmið til umhverfisbóta
4.      sinna stöðugu eftirliti og endurmati á umhverfismálum
5.     fræða nemendur um umhverfismál
6.     kynna stefnu sína út á við og fá aðra með
7.     setja skólanum formlega umhverfisstefnu.

 Grunnskóli Borgarfjarðar hefur unnið að þessum aðgerðum og náð settum markmiðum.  Moltukassi er við skólann og allar umbúðir frá skóla og mötuneyti er flokkað.  Umbúðir og ýmis efni eru nýtt til föndurgerðar og kennslu.  Pappírsnotkun hefur minnkað til muna ljósritað er báðum megin og aukablöð nýtast sem risspappír í smíðatímum og við málningarvinnu.  Ljós eru slökkt í miðrými og á göngum þegar bjart er orðið og í þeim stofum sem kennslu er lokið.  Nemendur setja niður kartöflur og grænmeti í skólagarða sem eru rétt við skólann og á hverju vori fáum við plöntur úr Yrkjusjóði og plöntum í friðland Álfaborgarinnar. Árlegur hreinsunardagur er í skólanum og fara nemendur um þorpið og hreinsa, plast og annað dót sem sést á skólalóðinni er tekið jafnóðum.
Í umhverfisnefnd velja nemendur þrjá fulltrúa og allir starfsmenn skólans eru þátttakendur og einn valinn sem tengiliður sem sér um fundahald og annað.
Umhverfisnefnd fer yfir helstu mál á fundum og metur stöðu mála, þá er henni falið að minna hina nemendur á pappírs- og ljósasparnað og annað sem kemur uppá.

Eftirlit og endurmat:  Starfsfólk fer yfir stöðuna og tekur fyrir eitt og annað sem þarfnast lagfæringar og farið er yfir gátlista.

Fræðsla:  Fræðslan er tengd við námsefnið og útivist og göngutúrar nýttir til að kenna nemendum að bera virðingu fyrir umhverfi sínu. Nemendum kennd flokkun í sýnikennslu. Ekki hafa verið gerð sérstök verkefni fyrir námshópana um umhverfismál.  Útivist hefur aukist hjá okkur jafnt og þétt seinustu ár og til gamans má geta þess að flestir nemendur gengu í haust yfir tvo fjallvegi þ.e.til Breiðuvíkur og Stapavíkur. Allir með í verkefninu göngum í skólann.

Kynning á stefnunni:  Nemendur miðla heim, foreldrar koma í skólann og í byrjun gáfum við út lítið fréttabréf og sendum í öll hús.  Hér er öll flokkun frekar auðveld stutt að fara með sorp og hreppsfélagið hefur sent upplýsingar í öll hús.

Umhverfissáttmálinn okkar hljóðar svona:

Grunnskóli Borgarfjarðar leggur áherslu á:

  • að nemendur læri að ganga vel um náttúruna og umhverfi sitt og sýni plöntum og dýralífi virðingu 
  • að draga úr notkun pappírs og efna sem notuð eru í skólanum 
  • að endurnýta og endurvinna allt sem hægt er, s.s. trjágreinar, einnota umbúðir o.s. frv. 
  • að auka vitund nemenda og starfsfólks fyrir umhverfi sínu 
  • að spara orku 
  • hreyfing og hollusta.

 
Leiðirnar sem við ætlum að fara til að ná þessu eru að:

  • kynnast náttúrunni með gönguferðum, auka vitund um allt sem ræktað er í heimabyggð (nærætur) hlúa að umhverfinu, rækta grænmeti og gróðursetja tré 
  • fara vel með auðlindir jarðarinnar (tré og olía) pappír, plastumbúðir, endurvinna og endurnýta það sem hægt er sem og minnka mengun. 
  • bæta umhverfisvitund nemenda og starfsmanna skólans með umræðum.
 



 
headerheaderheader
GestabókHafa sambandHeim
East Iceland today. Sunrise / Sunset | 7.9° / SSA 4

Ferðamálahópur Borgarfjarðar

Upplýsingar um ferðamál: s: 863-2320
Vefumsjón: Hafþór Snjólfur Helgason
hshelgason@gmail.com

Fréttabréf

Póstlisti

Vertu vinur okkar

Vertu vinur okkar á facebook og fylgstu með okkur þar.
Stefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya