Í grunnskóla Borgarfjarðar er viðhaft einstaklingsmiðað nám. Með því er átt við að kennarinn kappkosti að koma með sveigjanlegum hætti til móts við einstaklingsbundnar þarfir nemenda. Nemendur þurfa því ekki að vera að læra það sama á sama tíma, heldur geta þeir verið að fást við ólík viðfangsefni, misþungt efni, mismunandi námsefni eða unnið hver á sínum hraða, upp á eigin spýtur eða í hópum. Þeir sem halda fram einstaklingsmiðuðum aðferðum leggja yfirleitt áherslu á ábyrgð nemenda á eigin námi og á virka þátttöku þeirra. Nemandinn fær þjálfun í sjálfstæðum vinnubrögðum og lærir að gera áætlanir um nám sitt. Markmiðið er að efla og meta þroska, árangur og getu hvers nemanda út frá honum sjálfum. Gert er ráð fyrir sveigjanleika í kennsluaðferðum og verkefnum sem nemendur fást við þannig að hver fá kennslu við sitt hæfi.
Gert er ráð fyrir að nemendur stundi einhverja heimavinnu s.s. heimapróf eða verkefni sem auðvelt er að ráða við. Lögð er mikil áhersla á að nemendur standi skil á heimavinnu. Nemendur í 8. 9., og 10. bekk verða að þjálfa sig í að vinna heimavinnu og sjá það sem eðlilegan hluta af skólastarfinu. Það er afar einstaklingsbundið hvað börn geta unnið mikið í kennslustundum og stefna skólans í heimanámi er, því meiri vinna í skólanum því minna heimanám. Það er afar mikilvægt að barnið lesi heima helst daglega, upphátt eða í hljóði meðan það er að ná tökum á lestrinum. Heimanám hjá yngstu nemendunum er skráð í skóladagbækur, aðrir nemendur fá heimanám sitt skráð í Mentor. Mikilvægt er að nemendur og foreldrar fylgist vel með á Mentor.Foreldrar eru hvattir til að hafa samband við umsjónarkennara ef einhverjar spurningar vakna um heimanám.




