Í Grunnskóla Borgarfjarðar er stuðst við sívirkt mat. Það er talið gera nemendur meðvitaðri um nám sitt
og líðan í skólanum og bæta námsáhuga.
Uppbygging matsins:
- Innra mat. Fylgst er með frammistöðu nemenda í námi, samskiptum og líðan.
- Foreldraviðtöl, foreldrar og nemendur mæta til fundar við kennara þar sem rætt er almennt um
nám og líðan viðkomandi nemanda.
- Verkefni, verkefnabækur og fleira sem lagt er fyrir er yfirfarið og metið með tilliti til frammistöðu.
- Próf lögð fyrir í lok haustannar og vorannar, skyndipróf og heimapróf eftir þörfum.
- Samræmd próf í 4., 7. og 10. bekk
Á skólaárinu eru foreldraviðtöl haldin einu sinni á hvorri önn, í nóvember og mars. Er þá búið að senda gátlista heim til foreldra með almennu mati á hverri námsgrein. Eftir jólapróf og vorpróf fá nemendur einkunnaspjöld þar sem gefin er umsögn og/eða einkunn.




