Viðbragðsáætlun gegn einelti

  Eineltisáætlun Grunnskóla Borgarfjarðar  Skilgreiningar:  Hvað er einelti? Líkamlegt einelti: Getur verið barsmíðar, spörk, hrindingar eða pústrar af

Viðbragðsáætlun gegn einelti

 
Eineltisáætlun Grunnskóla Borgarfjarðar

 Skilgreiningar: 
Hvað er einelti?
  • Líkamlegt einelti: Getur verið barsmíðar, spörk, hrindingar eða pústrar af öðru tagi.
  • Andlegt einelti: Felst í ertni, hótunum eða höfnun, útilokun frá hópnum.
Af hverju er einstaklingur lagður í einelti?
Því er erfitt að svara, oft byrjar einelti á saklausri stríðni eða athugasemdum og það vefur upp á sig.
Nemendur finna gjarnan veika punkta hjá einstaklingum sem eru ekki alveg samkvæmt norminu, oft byrjar einn nemandi að koma með athugasemdir um einhvern til að draga athyglina frá sér.

  1. Klæðnaður, börn koma í fötum sem eru ekki alveg samkvæmt tísku/eða hátísku. Eru í skítugum og illa lyktandi fötum.  Ath. nærföt í íþróttum.
  2. Persónuleg þrif,  börn mæta í skólann óþrifin t.d. með skítugt hár og lykta af svita,
  3. Sögumenn,  þeir sem eru að upphefja sjálfa sig með allskyns sögum úr daglega lífinu.
  4. Metingur,  börn sem eru alltaf að metast um lífsgæðin, allt best hjá þeim.
  5. Útlit,  þeir sem eru í góðum holdum/of grannir,  smæð, gleraugu, o.s.frv.
  6. Aðstandendur,  foreldrar/forráðamenn sem eru ekki eins og fjöldinn.
  7. Ofurnemandinn og sá slaki.
  8. Þeir sem kunna ekki að taka tapi eða sigra.
  9. Óútreiknanlegir þættir.

Að þekkja einelti.
Hugsanlega er að um einelti sé að ræða ef nemandinn:

  • neitar að fara í skólann,  kvartar undan vanlíðan á morgnana
  • þorir ekki að ganga einn heim eða í skólann
  • einkunnir lækka á erfitt með að hafa hugann við námið
  • kemur heim í rifnum fötum, bækur eru blautar eða rifnar í skólatöskunni
  • fer einförum,  félagshæfni ekki til staðar
  • blandar sér ekki í leiki annarra barna
  • gefur engar skýringar á breyttri hegðun
  • mætir heim með áverka sem hann getur ekki útskýrt eða segir ósatt um pústrana
  • hegðun breytist, verður uppstökkur og jafnvel árásagjarn
  • vill ekki taka þátt í neinu sem er á vegum skólans.
Verði foreldrar eða starfsfólk skólans varir við einhver þessara einkenna eða önnur sem benda til að barninu líði illa er mikilvægt að kanna málið, hafa samband við umsjónarkennara og e.t.v. foreldra skólafélaga barnsins því einelti getur verið hvað verst utan skóla.


Fyrirbyggjandi aðgerðir og viðbrögð:

1. Nemendur
Allir nemendur skulu vera meðvitaðir um að  einelti og ofbeldi leyfist ekki.
Strax í upphafi skólagöngu á að leggja áherslu á að allir nemendur eru skólasystkin og að það sé neikvætt að skilja einhvern útundan og taka einn fyrir stríða honum eða tuska hann til.
Öllum nemendum sé það ljóst að komi upp ágreiningur sem þeir geti ekki leyst, þá skuli þeir leita aðstoðar hjá fullorðnum áður en allt fer í bál og brand. Það er oft erfiðara að leysa málin ef komin er harka í það.
Nemendum er bent á að láta alltaf vita ef þeir eða aðrir verða fyrir einelti eða ofbeldi, það er réttur allra  að geta liðið vel í skólanum sínum og notið virðingar. Það flokkast ekki undir hugtakið að vera “klöguskjóða”  ef nemendur segja frá því að einhverjum líði illa vegna eineltis eða annars ofbeldis.
Nemendur eiga að  taka afstöðu gegn einelti og ofbeldi í verki með því að bregðast við til hjálpar og láta vita. Nemendum verður einnig að vera ljóst að skilja einhvern útundan og hunsa er jafnmikið einelti og að hæðast að eða berja.

2. Foreldrar
Upplýsingum verði komið til allra foreldrar/forráðamenn  hver sé stefna  skólans í eineltismálum  og þeir hvattir til að taka afstöðu með skólanum.
Foreldrar eru beðnir um að ræða þessi mál við börn sín og hvetja þau til að segja frá ef vart verður við einelti í skólanum eða utan hans.
Foreldrum ber að innræta börnum sínum hin góðu lífsgildi þ.e. bera virðingu fyrir öðrum og hvetja þau til góðra samskipta við skólafélaga og kennara sína.
Foreldrar láti börn sín vita að þeir séu ætíð til staðar og  tilbúnir til að hlusta á þau og veita þeim stuðning ef þeim líður illa..
Foreldrar hafi samband við umsjónarkennara eða skólastjóra ef þá grunar að einelti eigi sér stað í skólanum.

3. Starfsfólk
Allir starfsmenn séu vakandi fyrir því að einelti og ofbeldi geti komið upp í skólanum og séu tilbúnir til að bregðast strax við ef þeir verða vitni að slíku.
Umsjónarkennarar leggi áherslu á að efla bekkjarandann og brýni fyrir nemendum að einelti og ofbeldi leyfist ekki í skólanum.
Starfsfólk þarf að vera tilbúið að hlusta á nemendur og nemendur verða að geta treyst því að þeir geti talað við starfsfólk í trúnaði og njóti nafnleyndar. Trúnaður er í flestum tilfellum forsenda þess að nemendur láti vita af einelti og/eða ofbeldi.
Þegar foreldrar eða nemendur snúa sér til starfsfólks vegna eineltis- eða ofbeldis-mála er mikilvægt að starfsfólk taki ábendingum alvarlega og sé tilbúið að hlusta, aðstoða og benda á við hvaða aðila er hægt að tala.

4. Ábyrgð
Ef upp kemur einelti eða annað ofbeldi í skólunum eiga umsjónarkennari og skólastjóri að vinna að lausn málsins og hafa samband við foreldra. Leita skal aðstoðar námsráðgjafa, skólasálfræðings og annars fagfólks eftir þörfum.
Annað starfsfólk, foreldrar og nemendur geta aðstoðað við lausn mála.
Vakni grunur um einelti eða ofbeldi á strax að láta umsjónarkennara viðkomandi nemenda vita.
Umsjónarkennari nemanda sem orðið hefur fyrir einelti ber ábyrgð á að koma upplýsingum um málið til annarra kennara og fólks sem annast gæslu.

5. Skólareglur
Skólareglur innihaldi ákvæði um góð samskipti og að einelti og ofbeldi leyfist ekki.

6. Kannanir og upplýsingar
Kanna skal líðan nemenda árlega. Þetta er hægt að gera með einföldum spurningakönnunum (tengslakönnun) sem hæfa aldri nemenda. Einstaklingsviðtöl og ritunarverkefni, þar sem nemendur eru fengnir til að skrifa um tilfinningar sínar og samskipti í skólanum koma líka til greina.
Aflað sé upplýsinga um nýja nemendur frá foreldrum/félagsráðgjafa og fyrri skóla svo hægt sé að vinna að því að skólaskipti gangi vel.
Foreldrar barna sem verða fyrir einelti eða öðru ofbeldi í skólanum fái upplýsingar um það eins fljótt og verða má ásamt upplýsingum um hvernig skólinn ætli að tryggja sem best öryggi barnsins.

7. Skráning
Skólastjóri sjái um að skrá upplýsingar um öll eineltis- og ofbeldismál. Þar komi fram lýsing á hvernig tekið var á málinu, hvernig það leystist og hverjir eiga að fylgja málinu eftir.
Umsjónarkennarar haldi eigin skrá um eineltis- og ofbeldismál sem upp koma hjá þeim, hvernig mál þróast og hvernig unnið er úr þeim.

8. Gæsla
Skólinn þ.e. skólastjóri ber ábyrgð gagnvart foreldrum á að gæsla sé góð í frímínútum, á göngum, á skólalóð, í búningsklefum og sturtum í íþróttahúsi.


Hvernig tekið er á einelti

  • Ef grunur um einelti (eða annað ofbeldi) kemur upp á að láta umsjónarkennara viðkomandi nemenda vita, hann á að kanna málið og hafa samráð við skólastjóra og allt starfsfólk skólans vinnur sameiginlega að úrbótum.
  • Tryggja þarf öryggi þolanda og afla góðra upplýsinga um málið eins fljótt og hægt er. Ekki á að spyrja þolanda í viðurvist annarra barna og varast skal að gefa gerendum kost á að hópa sig saman í varnarstöðu.
  • Þolandi og foreldrar hans eiga að fá stuðning. Þolandinn á að fá að vita að eineltið sé ekki honum að kenna.
  • Árangursríkast er að tala við gerendur einn og einn í senn.  Þegar talað er við gerendur á að gera þeim ljóst að þeir verði að hætta eineltinu. Sá sem ræðir við gerendur á að sýna þeim kurteisi, varast skammir en ganga út frá því að þeir bæti ráð sitt.

  • Þegar foreldrar gerenda eru kallaðir til á að leggja áherslu á að ná góðu samstarfi við þá. Gera skal ráð fyrir að foreldrarnir vilji ekki að barn þeirra leggi aðra í einelti. Foreldrar eiga oft erfitt með að trúa að barn þeirra hagi sér þannig.
  • Þegar nemandi leitar hjálpar vegna eineltis eða ofbeldis verður að koma í veg fyrir að hann verði fyrir hefndaraðgerðum frá gerendum.
  • Fylgjast þarf með málsaðilum eftir að unnið hefur verið að lausn eineltismála til þess að sama sagan endurtaki sig ekki. Fylgst vel með úr fjarlægð og skólaliða bent á að hafa vakandi auga með þolanda og gerendum.


Hvernig tekið er á ofbeldi

Ofbeldismál þar sem börn verða fyrir líkamlegum áverkum eða öðru ólöglegu athæfi í skólanum skulu alltaf tilkynnt viðkomandi foreldrum. Jafnframt áskilur skólinn sér allan rétt til að grípa til viðeigandi aðgerða gagnvart gerendum í slíkum málum. 
Verði ágreiningur milli skólastjóra/kennara og foreldra/forráðamanna barna um meðferð mála sem ekki tekst að leysa getur hvor aðili um sig vísað málinu til skólaráðs.

Lykilatriði á heimili og í skóla er:   Að þar ríki hlýja, einlægur áhugi og alúð hinna fullorðnu.




headerheaderheader
GestabókHafa sambandHeim
East Iceland today. Sunrise / Sunset | 6.8° / S 6

Ferðamálahópur Borgarfjarðar

Upplýsingar um ferðamál: s: 863-2320
Vefumsjón: Hafþór Snjólfur Helgason
hshelgason@gmail.com

Fréttabréf

Póstlisti

Vertu vinur okkar

Vertu vinur okkar á facebook og fylgstu með okkur þar.
Stefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya