Almennar fréttir - 28.07 2012 - Hafþór Snjólfur Helgason - Lestrar 104 - Athugasemdir (0)
Tónlistarhátíðin Bræðslan á Borgarfirði eystri fer fram í áttunda skiptið í sumarið 2012.

Bræðslan hefur styrkt sig í sessi sem einn af áhugaverðari stoppistöðum Íslands yfir sumarmánuðina. Í gegnum tíðina hafa komið fram á Bræðslunni Emilíana Torrini, Damien Rice, Belle & Sebastian, Magni, Fanfarlo, Lay Low, Þursaflokkurinn, Megas og Senuþjófarnir, Páll Óskar og Monika, Eivör Pálsdóttir, KK og Ellen svo fáein séu nefnd.
Að jafnaði hafa rúmlega 1.000 manns sótt Borgarfjörð eystri heim Bræðsluhelgina sem verður að teljast ágætis viðbót við íbúafjöldann sem telur um 140 manns. Tónlistarhátíðin Bræðslan dregur nafn sitt af samnefndri síldarbræðslu þarsem tónleikar hátíðarinnar fara fram að laugardagskveldi.
Forsala á Bræðsluna er á midi.is og afgreiðslustöðum mida.is og er vert að taka fram að síðustu ár hefur selst upp á Bræðsluna í forsölu enda aðeins 800 aðgöngumiðar í boði í forsölu.
Bræðslan fékk Eyrarrósina 2010 við hátíðlega athöfn að Bessastöðum en Eyrarrósin er sérstök viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni sem Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Flugfélag Íslands standa að.
Bræðslan er styrkt af Menningarráði Austurlands og Tónlistarsjóði Mennta - og menningarmálaráðuneytisins auk þess sem Flugfélag Íslands er sem fyrr aðalmáttarstólpi Bræðslunnar.
Rás 2 hefur sent út frá Bræðslunni öll árin og verður einnig á staðnum í sumar. í kringum Bræðslutónleikana
http://www.facebook.com/braedslan
Miðasala á Bræðsluna fer fram á mid
Aðalstyrktaraðilar Bræðslunnar eru

Athugasemdir