Á næstunni

Norðurhluti Víknaslóða FFF-21: Víknaslóðir – (Lúxusferð).(2-3 skór): 22. júlí:  Brottför frá Gistiheimilinu Borg, Borgarfirði eystri  kl.

Á næstunni

FFF-21: Víknaslóðir – (Lúxusferð).(2-3 skór):

22. júlí
:  Brottför frá Gistiheimilinu Borg, Borgarfirði eystri  kl. 10.
Gengið í Stapavík, sem er gömul uppskipunarhöfn og verslunarstaður.
Einnig skoðaðir helstu staðir á Borgarfirði.  Gist í Gistiheimilinu Borg.

23. júlí:
Gengið í Stórurð undir Dyrfjöllum, sem er gömul askja.  Urðin er mjög stórfengleg brotabergsurð, sem hefur myndast við gos undir vatni eða ís og Urðin sjálf er framhlaup undan skriðjöklum.  Gist í Gistiheimilinu Borg.

24. júlí:
Gengið til Brúnavíkur og þaðan til Breiðuvíkur.  Gist í skála Ferðafélags Fljótsdalshéraðs.

25. júlí
: Gengið um nærliggjandi víkur. Gist aftur í Breiðuvíkurskála.

26. júlí:
Gengin önnur leið til baka til Borgarfjarðar.

Fararstjóri: Árni Áskelsson
Verö kr. 42.000.-.  Innifalið Gisting, trúss og leiðsögn. Möguleiki á að kaupa fullt fæði.

Skráning í ferðirnar á Víknaslóðir er í síma 472 9870 eða gistingborg@simnet.is 


Athugasemdir

headerheaderheader
GestabókHafa sambandHeim
East Iceland today. Sunrise / Sunset | -3° / Logn 0

Ferðamálahópur Borgarfjarðar

Upplýsingar um ferðamál: s: 893-9913
Vefumsjón: Hafþór Snjólfur Helgason
hshelgason@gmail.com

Fréttabréf

Póstlisti

Vertu vinur okkar

Vertu vinur okkar á facebook og fylgstu með okkur þar.
Stefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya