Almennar fréttir - 08.07 2012 - Hafþór Snjólfur Helgason - Lestrar 210 - Athugasemdir (3)

Jónas í Fjarðarborg
Á undan tónleikunum var mikið matarhlaðborð en þar á eftir tók Jónas öll völd og spilaði öll sín bestu lög í bland við annað gott. Til að byrja með var Jónas einn en borgfirskir tónlistarmenn bættust svo við á sviðið.
Jónas spilar í Fjarðarborg öll kvöld vikunnar nema á mánudögum og hefjast tónleikarnir kl 21:00 nema annað sé tekið fram.
Við vonumst til að sjá sem flesta gesti á öllum þessum tónleikum.





