Þjónusta fyrir ferðamenn
Upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn:
Því miður er ekki nein upplýsingamiðstöð starfandi þannig að við vísum beint á þá þjónustuaðila sem þú vilt leita til.
Gisting:

Ferðaþjónustan Borg, (Skúli Sveinsson). Svefnpokapláss og uppbúin rúm. Eldunaraðstaða - sturta. S:



472-9870 /



854-4470 /


894-4470 http://www.borgarfjordureystri.is/index.php?pid=286 - gistingborg@simnet.is

Félagsheimilið Fjarðarborg
Fyrirtækið Já sæll ehf sér um rekstur Fjarðarborgar sumarið 2009. Sími: Skúli Sveinsson 894-4470 Helgi Hlynur 848-5515

Ásbyrgi - farfuglaheimili, (Jóhanna Borgfjörð). Svefnpokapláss og uppbúin rúm. Eldunaraðstaða - sturta. S: 472-9962, Fax: 472-9961 bergrunj@mi.is

Álfheimar Ferðaþjónusta: Svefnpokapláss og uppábúin rúm. Veitingasala. Arngrímur Viðar: 861-3677 arngrimur@fatravel.is

Réttarholt, (Bryndís). Svefnpokapláss og uppbúin rúm. Eldunaraðstaða - sturta. S:



472-9913/
893-9913. helgima@mi.is


Gistiskálar í Breiðuvík, Húsavík og Loðmundarfirði (opnar sumar 2009) (Ferðafélag Fljótsdalshéraðs). Um bókanir í skálana sér Ferðafélag Fljótsdalshéraðs í síma 
863-5813 www.fljotsdalsherad.is/ferdafelag/ - ferdafelag@egilsstadir.is
Tjaldsvæði:

Við Álfaborg. Borgarfjarðarhreppur. Sturtur, þurrkklefar, rafmagn fyrir áhöld og tæki. Upplýsingar og bókanir hjá tjaldvörðum: 857-2005 ahaldahusborg@simnet.is
Við gistiskálana í Breiðuvík og Húsavík og Loðmundarfirði, (Ferðafélag Fljótsdalshéraðs). Um bókanir í skálana sér Ferðafélag Fljótsdalshéraðs - sími:
863-5813 www.fljotsdalsherad.is/ferdafelag/ - ferdafelag@egilsstadir.is
Veitingar:

Álfheimar Ferðaþjónusta, (Jóhanna Borgfjörð/Arngrímur Viðar)





472-9962 /861-3677 fax: 472-9962 bergrunj@mi.is

Álfacafé. Smellið hér
Verslun:

Samkaup Strax matvara, bensín (kortasjálfsali), ferðavörur, S:


472-9940/472-9941
Heilsugæsla:
Heilsugæslusel Heiðargerði. S: 472-9945 - 112
Heilsugæslan Egilsstöðum. S: 471-1400 - 112
Löggæsla:
Lögreglan Egilsstöðum. S: 112 / 471-1223/854-8854
Bílaþjónusta:
Bensínstöð N1. Kortasjálfsali. S: 
472-9940
Bankaþjónusta:
Landsbankinn. S: 


410-8554
Safn/sýning:

Kjarvalsstofa: Í Félagsheimilinu Fjarðarborg. Sýning á munum og verkum Jóhannesar S. Kjarvals og tengsl hans við Borgarfjörð rakin. Mjög áhugaverð sýning sem tengir þennan einstaka listamann við staðinn.
Í tengslum við Kjarvalsstofu er einnig „Í leit að landslagi“, en þar hefur verið komið fyrir eftirprentun af þrem landslagsmálverkum Kjarvals og með því að taka smá gönguferð þá er hægt að sjá þau sem næst þeim stað sem Kjarval málaði þau. Einstök upplifun að sjá fyrirmyndina og verkið saman.
Í Kjarvalsstofu eru tvær myndasýningar, önnur með gömlum ljósmyndum af fólki á Borgarfirði, raðað niður eftir fjölskyldum. Elstu myndirnar eru fyrir næst síðustu aldamót og yngstu eru þrá því um 1960. Hin sýniningin er kvikmynd frá því um 1965 - 1985. Báðar þessar myndasýningar hafa fengið góðar undirtektir „burtflúinna“ sem sita dolfallnir á sig og sína á skjánum.
Í gamla pósthúsinu er nú sýning sem unnin er með sagnafólki í Noregi. Þar getur maður hlustað á norskar sögur í bland við íslenskar og lifað sig inn í þann sagnaheim.



Ævintýraland: Í gamla pósthúsinu á Borgarfirði hefur verið sett upp skemmtilegt ævintýraland á vegum Kjarvalsstofu þar sem lögð er áhersla á þjóðsögur og allskyns ævintýri.
Fuglaskoðun:


Hafnarhólmi: Við Hafnarhólma er mjög góð aðstaða til fuglaskoðunar. Útsýnispallur er uppi á Hólmanum og þar er m.a. mikil lundabyggð. Takmarkað aðgengi er á pallinn yfir varptímann. Annar útsýnispallur er við ritubyggð í Hólmanum.

Bakkaeyri: Fuglaskoðunarhús er staðsett við gamla frystihúsið nærri bryggjunni í þorpinu. Þar hafa sést allt upp í 20 tegundir í einu.
Afþreying og sport:

Gönguleiðir:
Fjöldi merktra gönguleiða um "Víknaslóðir" svæðið milli Njarðvíkur og Seyðisfjarðar, alls um 140 km.
Gott gönguleiðakort, fæst víða, m.a. hjá Ferðafélagi Íslands í Mörkinni 6, Reykjavík, Eymundsson í Kringlunni, Upplýsingamiðstöðinni á Seyðisfirði, Upplýsingamiðstöðinni á Egilsstöðum og hjá ferðaþjónustuaðilum á Borgarfirði.
Þú getur líka pantað kortið hér: helgima@mi.is Kortið kostar kr. 500,- + kr 100,- í sendingarkostnað.
Skipulagðar gönguferðir:
Nokkrir aðilar verða með skipulagðar ferðir um svæðið í sumar, m.a. Ferðafélag Íslands, Ferðafélag Fljótsdalshéraðs, Ferðafélag Íslands og heimamenn. Nánari upplýsingar annarsstaðar á síðunni.

Skipulagðar hestaferðir:
Skipulagðar hestaferðir eru um svæðið á vegum Gæðinga-Tours.
Íþróttir:

Ungmennafélag Borgarfjarðar, UMFB, er með mjög góðan grasvöll við hlið Fjarðarborgar í miðju þorpinu. Þar hafa verið haldin knattspyrnumót undanfarin sumur.
„Pollamót“ fyrir fullorðna og yngri eru haldin á Álfaborgarsjens um verslunarmannahelgina.
Þar er líka lítill malbikaður völlur sem mikið er notaður, bæði til knattspyrnu- og körfuboltaiðkunar. Nýlega var tekin í notkun yfirbyggður sparkvöllur sem er frjáls öllum til afnota.
Veiðileyfi í Fjarðará:
Einstaklingar hafa tekið ána á leigu til nokkurra ára.
Jeppaferðir:
Skúli Sveinsson, ekur með fólk og/eða farangur til „Víkna“ og Loðmundarfjarðar. S:



472-9870 /



854-4470 /


894-4470
Til baka