Gönguleiðir og Ferðalög
    

 


Íslenska      France

GÖNGUFERÐ Á VÍKNASLÓÐUM

 

ÖNNUR FERÐ STALA

Í ÁGÚST 2005

 

Stala-hópur copy.jpg

 

 

Fyrsta ferð STALA á Víknaslóðir við Borgarfjörð eystri var farin í lok júlí og byrjun ágúst 2002. Fararstjórar voru hjónin Helgi Arngrímsson og Bryndís Snjólfsdóttir frá Borgarfirði. Gengið var frá Borgarfirði til Brúnavíkur og um Súluskarð að skála í Breiðuvík, gengið einn dag þaðan til Kjólsvíkur og á Gletting, svo næsta dag um Víknaheiði og hjá Hvítserki að skála í Húsavík. Þaðan var farið daginn eftir um Náttmálafjall að Hvítserki og niður í Urðarhóla og svo gist á Borgarfirði. Síðasta göngudaginn var farið úr Vatnsskarði í Stórurð við Dyrfjöll og gengið austan Dyrfjalla í Bakkagerði. Gönguleiðum og ýmsum útúrdúrum og skemmtilegheitum á göngu, í náttstöðum og víðar er lýst í frásögn Helgu Jóhannsdóttur af ferðinni.

 

Önnur ferð STALA á Víknaslóðir var farin í byrjun ágúst 2005. Nú var farið frá Borgarfirði í Loðmundarfjörð, gengið einn dag þar og svo gengið út með firðinum og yfir til Húsavíkur. Daginn eftir var farið í Ytri Álftavík og litast um í Húsavík, en síðasta göngudaginn var haldið að Unaósi við Héraðsflóa og gengið út í Stapavík og farin gömul þjóðleið þaðan yfir til Njarðvíkur. Helgi og Bryndís voru aftur fararstjórar í þessari ferð, enda þótti annað ekki koma til greina eftir góð kynni í fyrri ferðinni.

 

 

ÖNNUR FERÐ STALA Á VÍKNASLÓÐIR

 

Starfsmenn við Kröflu skipulögðu og höfðu umsjón með þessari ferð.

 

Ferðafélagar:

         Anna Elín Bjarkadóttir                 Ásgeir Þorbergsson

         Birkir Fanndal

         Bjarkar Þór Ólason                      Olga Hrönn Olgeirsdóttir           Flekkur

         Björn Júlíusson

         Ebba H Gunnarsdóttir

         Eggert Guðjónsson                        Bryndís Helga Hannesdóttir

         Gerður Jensdóttir                          Böðvar Baldursson

         Ingvar Björnsson                           Hólmfríður Erla Benediktsdóttir

         Ingvar Hafsteinsson                      Þyrí Kristjánsdóttir

         Jón H Gíslason                              Bergsveinn Halldórsson

         Lilja Gísladóttir                             Tómas G Guðjónsson

         Magni Hagalín Sveinsson             Heiðbjört Ófeigsdóttir

         Pétur Bjarni Gíslason                    Sigríður Stefánsdóttir

         Sævar Örn Kristjánsson

         Vilbergur Kristinsson                    Jóhanna A Gunnarsdóttir

                                                                 Þórunn L Vilbergsdóttir

 

Fararstjórar:     Helgi Arngrímsson og Bryndís Snjólfsdóttir

 

Sjá: www.borgarfjordureystri.is

 

GÖNGUFERÐIN

 

IB-traktor.jpgMánudaginn 1. ágúst 2005, síðdegis, komu 27 manns á vegum STALA að gistiheimilinu Ásbyrgi á Borgarfirði þar sem skyldi vera aðsetur næstu nótt. Flestir kusu að gista í húsinu, en nokkur gistu í eigin fellihýsum á lóðinni við húsið. Um kvöldið gekk Helgi fararstjóri með hópnum um Bakkagerði. Hann lýsti staðnum og sagði sögu hans og ýmissa húsa. Stella í Lindarbakka var svo elskuleg að hleypa hópnum inn til sín í þetta gamla hús þar sem brot úr sögu þess voru rakin. Í Bakkagerðiskirkju rakti Helgi sögu kirkjunnar þar sem m.a. álfkona úr Álfaborg kom við sögu, og hann sagði einnig sögu altaristöflunnar sem Kjarval gerði að ósk sveitunga sinna. Loks var komið við í gömlu síldarbræðslunni, sem nokkrum dögum áður var dubbuð upp í hljómleikasal þar sem söngkonan Emilíana Torrini, borgfirskrar ættar, hélt fjölsótta tónleika.

 

 

 

 

IB-Kirkjusteinn.jpgÞriðjudagur 2. ágúst rann upp með morgunsól og logni á firðinum. Borgarfjörður var sannarlega fallegur hvar sem var litið. Helgi kom og lýsti ferðaáætluninni, og Pétur skipaði í hópa til að skipta með sér verkum á gististöðum. Fyrsti áfangi göngunnar var um Kækjudal og Kækjuskörð til Loðmundarfjarðar að Stakkahlíð. Ekið var inn í botn Borgarfjarðar innundir Þverá og bifreiðum lagt þar. Tilhlökkun var í öllum og þá kannski mest í hundinum Flekki, sem kunni sér ekki læti við busl í ánni og að eltast um móana. Gengið var upp Kollutungur og framhjá Stórasteini eða Kolli, þar sem bjó dvergur sem bóndinn í Hvannstóði átti í útistöðum við, og áfram inn Kækjudal að Kirkjusteini þar sem er álfakirkja Borgfirðinga og Víkurbúa. Þegar innar dró í dalinn var landið brattara og brattast síðustu brekkurnar upp í Kækjuskörð. Þau sem frískust voru hlupu upp á Þriggjahnjúkafjall og nutu þar betra útsýnis í góðviðrinu en hin. Á leiðinni niður í Loðmundarfjörð er fögur fjallasýn, meðal annars Gunnhildur sunnan fjarðar, Karlfell fyrir botni fjarðarins með kynjamyndum í þykkum flikrubergslögum, og Flatfjall og Bungufell með perlusteinslögum. Á milli síðasttöldu fjallanna, niður hlíðina og yfir fjarðarbotninn, gefur að líta eitt stærsta framhlaup landsins, Stakkahlíðarhraun eða Loðmundarskriður. Í Stakkahlíð tóku á móti hópnum staðarhaldarar Smári Magnússon og fjölskylda, og þar var gist við góðan beina og skemmtilegt viðmót húsráðenda.

 

 

 

IB-Stakkahl.hr..jpgMiðvikudagurinn 3. ágúst hófst með göngu inn að Klyppstað. Þar stendur kirkja frá árinu 1891. Gengið var í kirkjuna þar sem saga hennar var rakin. Rústir steinsteypta bæjarins að Klyppstað vöktu athygli. Frá Klyppstað var haldið nokkru innar að mynni Norðurdals að fallegum fossi í Norðurdalsá. Á leiðinni til baka að Stakkahlíð var gengið framhjá bænum Sævarenda, sem fór síðastur í eyði í Loðmundarfirði, en þar hefur verið stunduð æðarrækt um árabil. Fyrirhugað hafði verið að ganga á Kerlingu þennan dag, en lágskýjað var og þoka á fjallatoppum svo að breyting varð þar á. Gengið var frá Stakkahlíð upp í Fitjar og þar haldið út á Stakkahlíðarhraun og gengið um berghlaupið með Stóru-Hrauná. Við jaðar hraunsins er gömul falleg rúst af tveimur húsum, kannski seli. Á leiðinni um hraunið voru einnig ummerki um könnun á perlusteinsnámum sem gerð var fyrir um 35 árum. Landslag er þarna stór­skornara en virðist úr fjarlægð og Stóra-Hrauná rennur um djúpt gil sem hún hefur grafið í framhlaupið. Landið er víða vel gróið og blómskrúðugt. Stiklað var yfir ána, sem var ekki öllum auðvelt, og stefna tekin á Stakkahlíð þar sem aftur var gist.

 

IB-Baunagras.jpgFimmtudaginn 4. ágúst var gengið út með norðurströnd Loðmundarfjarðar og yfir Nesháls að skála í Húsavík. Hann gekk á með rigningarskúrum en veður var stillt. Frá Stakkahlíð var haldið fyrst eftir vegslóð en svo eftir sjávarkambinum út fjörðinn, þaðan sem mátti líta klettótta strönd, sjávarstapa og malarvoga. Staldrað var við hjá hafnarmannvirki Loðmfirðinga, rústum virkjunar í Litlu-Hrauná við Seljamýri og rústum steinsteypta bæjarins að Seljamýri. Á leiðinn var á einum stað baunagras með baunum í belgjum. Áð var við Nes þar sem skáldið Páll Ólafsson bjó um tíma. Á Nesi er nýlegt sumarhús. Frá Nesi var haldið eftir vegslóðinni yfir Nesháls að Húsavíkurskála og á leiðinn skoðuð hvít bláklukka sem skar sig úr blárri klukkubreiðunni. Það var hresst og glatt göngufólk sem kom að skálanum og tíndi af sé votar spjarir og skó og setti í þurrkklefann sem er við skálann. Síðdegis létti þokunni af fjallatoppum. Það notfærðu sex fjallagarpar sér og gengu á Skæling eftir kvöldmat.

 

 

 

IB-Ytri-Alftavik.jpgFöstudaginn 5. ágúst vöknuðu margir við vondan draum þegar Anna Elín hrasaði í stiganum upp á svefnloftið, féll niður hann og gat sig hvergi hrært fyrir kvölum. Sjúkrabíll og læknir komu frá Egilsstöðum og í ljós kom að hún hafði farið úr axlarlið. Læknirinn aðstoðaði Önnu Elínu við að smella í liðinn og hún fór með sjúkrabílnum í Egilsstaði til frekari rannsóknar. Ekkert alvarlegra kom þar í ljós og hún hélt aftur til Borgarfjarðar og dvaldi þar til loka ferðarinnar. Ytri-Álftavík var á dagskránni og stefnan var tekin þangað og til baka um bæinn Húsavík aftur að Húsavíkur­skála. Veður gekk á með skúrum í fyrstu en birti til þegar leið á daginn. Gengið var út suðurhlíðar Húsavíkur í rennblautu lyngi og grasi og upp að Álftavíkurtindi. Flestir héldu áfram um Álftavíkur­skarð og niður á hjalla þannig að vel sást í Ytri Álftavík. Vaskur hópur brá sér alla leið niður í víkina og í Lotnu. Til baka var haldið sömu leið en stefna tekin frá Álftavíkurtindi á bæinn Húsavík. Eftir stuttan stans í fjörunni undan bænum þar sem fræðst var um útgerð Færeyinga frá Húsavík var haldið í kirkjuna, sem er bændakirkja byggð 1937, og saga hennar og fólksins sem reisti hana sögð. Frá kirkjunni var lallað í Húsavíkurskála þar sem aftur var gist.

 

IB-I-Stapavik.jpgLaugardagurinn 6. ágúst var tekinn snemma því frá Húsavíkurskála skyldi ekið að Unaósi til að hefja göngu út í Stapavík og þaðan yfir Gönguskarð til Njarðvíkur. Veðurútlit var gott. Ekið var, hver á sínum bíl, að Hlíðartúni í Njarðvík þar sem nokkrir bílar voru skildir eftir, en fólk sameinaðist í hina yfir Vatnsskarð að Unaósi. Gengið var út með ströndinni og áð við Eiðaver, en þar var Margrét ríka á Eiðum með útræði forðum. Þar er að finna brenninetlu og súrsmæru, og þar sást líka blóm sem enginn í hópnum kannaðist við en líktist helst rós án þyrna. Stuttur stans var á Krosshöfða við rúst húss verslunarstjóra, sem reist var snemma á síðustu öld, en í Stapavík litlu utar var á þeim tíma höfn Héraðsbúa en Borg­firðingar og Seyðfirðingar voru þarna einnig með aðstöðu. Gengið var í Stapavík og minjar um uppskipunarbúnað skoðaðar. Frá Stapavík var gengið um Gönguskarð til Njarðvíkur. Rifjuð var upp sagan um Gunnar Þiðrandabana á leiðinni og hvernig Þorragarður í Njarðvík var upphaf þeirrar sögu. Þegar komið var niður í Njarðvík var gengið með Þorragarði að Hlíðartúni þar sem bílarnir biðu.

 

IB-Flekkur.jpgSíðdegis og á kvöldin var ýmislegt gert til hressingar og gamans. Heitt sturtubað í Stakkahlíð var óvænt ánægja, en ekki víluðu sumir fyrir sér að skola af sér svitann í Víkurá við Húsavíkurskála.  Þórunn hóf strax fyrsta kvöldið kennslu í að spila Gúrku, það mættu fáir fyrsta kvöldið en færri komust að en vildu undir það síðasta. Sungið var undir stjórn og undirspili Helga, og fararstjórar skipuðu ferðalanga til upplesturs á frásögnum og til kvæðalesturs. Ekki má gleyma sameiginlegum máltíðum, samtölum og samveru fólks og kynnum af nýju fólki.

 

Laugardagskvöld var hátíðarkvöldverður í Fjarðarborg. Þar voru ræður fluttar, skipuleggjendum af hálfu STALA þakkað fyrir góða ferð, og fararstjórunum Helga og Bryndísi þökkuð góð fararstjórn og leiðsögn og ánægjuleg kynni.

 

Aðfararnótt sunnudagsins 7. ágúst var aftur gist í og við Ásbyrgi, og að loknum morgunverði í Fjarðarborg tíndust ferðalangarnir frá Borgarfirði með góðar minningar í farteskinu.

 

Myndir sem felldar eru í textann hér að framan eru eftir undirritaðan og konu hans, en Pétur Bjarni Gíslason var ljósmyndari ferðarinnar og tók betri myndir.

 

 

Reykjavík, 19. ágúst 2005

Ingvar Björnsson

Til baka

Áhugavert

puffins.jpg

Vebcam.jpg

Kortasjá.jpg

víkna facebook.jpg

vedur.jpg

Skólafréttir.jpg

Ferðaþjónustan

Álfheimar.jpg

ásbyrgiiiii.jpg

Borg II.jpg

Réttarholt.jpg

alfacafe.jpg

fjarðarborgII.jpg

rettinn.jpg

Tjaldsvæði.jpg

Fuglaskoðun.jpg

Kjarval.jpg

Ævintýraland.jpg

Áætlunarferðir.jpg

FFF.jpg

Austurlamb.jpg

 

Ganga.is

Ferðamálahópurinn Borgarfirði

Vefumsjón: Hafþór Snjólfur Helgason. hsh2@hi.is  s:863-2320