Álfacafé / Álfasteinn steiniðja
Álfacafé: sími 472-9900 / 862-9802 / 892-9802
netföng: alfacafe@simnet.is / alfasteinn@simnet.is
Álfacafé á Facebook - Vertu vinur okkar

Álfacafé er notalegt kaffihús í Bakkagerðisþorpi, staðsett við hliðina á Fiskverkun Kalla Sveins.
Þar er lögð áhersla á góða þjónustu og úrvalshráefni í matargerð. Sérstaklega er mælt með hinni margbreytilegu fiskisúpu, sem hlotið hefur einróma lof gesta á liðnum árum, þá er einnig er hægt að fá kökur og brauðrétti af ýmsu tagi og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi. Þráðlaust Internet er á kaffihúsinu sem gestum er velkomið að nota á ferðalagi sínu.

Hægt er að versla harðfisk, hákarl og fleiri fiskafurðir frá Fiskverkun Kalla Sveins, en fiskurinn þaðan er landsþekktur fyrir gæðin. Veitingasalur Álfacafé tekur um 70 manns í sæti og er því tilvalið að halda þar uppákomur af ýmsu tagi. Í Álfacafé eru seldar vörur frá Álfasteini sem nú hefur aftur tekið til starfa á Borgarfirði eftir nokkuð hlé.

Starfsfólk Álfacafé býður þig velkomin til Borgarfjarðar
Hafið samband og leitið tilboða fyrir hópa.
sími 472-9900 / 892-9802
netfang alfacafe@simnet.is
Til baka