|
Formáli.
Hér fylgir með sextánda ferðamannakönnun okkar hér á Borgarfirði eystri
og um leið sautjánda ferðamannatalningin í Álfasteini. Í sumar fengust
160 svör sem eru frekar slakar heimtur en könnunin nær eingöngu til
íslendinga. Svarhlutfall miðað við íslenska ferðamenn er því rúm 3% en
2003 voru það tæp 4%.
Í sumar komu 200 fleiri ferðamenn í Álfastein en árið áður eða 7608 á
móti 7403 í fyrra.
Í könnuninni í fyrra kom fram að 79,5 % gesta hefðu komið í Álfastein
sem þýðir þá að á Borgarfjörð hafi komið árið 2002 9.318 manns. Nú komu
hinsvegar 95,0 % í Álfastein sem þýðir að það hafi komið 8.008 manns á
Borgarfjörð sem er veruleg fækkun frá fyrra ári eða um 14%. Það er
umhugsunarvert.
Ekki var gerð nein könnun á fjölda né samsetningu göngufólks á svæðinu.
Hinsvegar er talsverð fækkun þar sem vel kemur í ljós með færri
gistinóttum í Borgarfirði, á Víkum og í Loðmundarfirði.
Ferðamálahópurinn er með heimasíðu,
<
www.borgarfjordureystri.is > með ýmsum
gagnlegum upplýsingum fyrir göngufólk og þá ferðamenn sem til
Borgarfjarðar koma. Stöðugt er verið að bæta þær upplýsingar til að
auðvelda fólki að skipuleggja gönguferðir um svæðið. Á heimasíðunni er
fjöldi ljósmynda, göngukortið sem gefið var út 2003 ýmsar tillögur að
gönguferðum á Víknaslóðum auk upplýsinga um skipulagðar gönguferðir á
Víknaslóðum.
Þessi ferðamannakönnun er unnin á sama hátt og áður, ekki vísindalega en
þó má ýmislegt af henni læra ef við viljum og eins og ávallt áður kemur
margt fróðlegt fram í svörum við spurningum 12,13 og 14.
Eins og undanfarin ár lágu eiðublöðin frammi í Fjarðarborg og í
Álfasteini.
Þeir sem svöruðu könnuninni í sumar fá bestu þakkir svo og þeir aðrir
sem heimsóttu okkur á Borgarfjörð.
Borgarfirði 21. september 2003.
Helgi Magnús Arngrímsson,
formaður Ferðamálahóps Borgarfjarðar.













Fjölmargar álfa og huldufólkssögur eru
tengdar Borgarfirði eystri.






Spurning 12
Hverju finnst þér að þurfi að breyta hér til að þjónusta ferðamenn betur?
Meiri kynning á því hvað hér er í boði á einum stað í bænum. (Reykjavík)
Betri merkingar á húsunum sem eru til sýnis. (Akureyri) Merkja betur
verslunina. (Skagafjörður)
Virðist vera í góðum málum. (Reykjavík).
Hafa skýrar eitt, „informationscenter“ – etv. Er það nú þegar, forstofan
í Fjarðarborg? Bókasafnsaðstaða m/ bókum um þjóðsögur héðan og líf
fólksins. (Reykjavík)
Algjörlega nauðsynlegt að koma á einhverskonar baðaðstöðu fyrir
ferðafólk, sturtu, sundlaug. Ath. Mætti setja upplýsingar í kirkjuna um
aldur, altaristöflu o.fl. ( )
Þjónustan í Kaupfélaginu er alltaf að batna. Þ.e. meira vöruúrval. ( )
Hafa fleiri afþreyingarstaði svo sem sundlaug eða heita potta. Opna
kanínuhús, álfasafn og annað svoleiðis. (Reykjavík)
Vantar sundlaug og snirrtilegra umhverfi. Dáldið sóðalegt hér.
(Keflavík)
Heitur pottur – golfvöllur. ( )
Mér finnst að búðirnar ættu aðv era opnar lengur. (Reykjavík)
Mér finnst þjónustan mjög góð. Búðin mætti vera betur merkt.
(Reykjahverfi, S-Þing).
Sundlaug, betri verslun en kannski ekki hægt. (Vopnafjörður)
Hafa sundlaug og kannski hjólabáta á sjónum. (Vestmannaeyjar)
Opna sturturnar á tjaldstæði. (Mosfellsbær)
Laga veginn og merkja betur. Gott væri ef hægt væri að fá leiðsögn um
svæðið. ( )
Mér sýnist hér vera flest fyrir hendi. (Akureyri)
Rútuferðir um helgar til Egilsstaða. (Hafnarfjörður)
Galdra þokuna burtu. (Borgarfjarðarsýsla)
Halda áfram á sömu braut. (Garðabær)
Kaffihús. ( )
Sjoppu. ( )
Upplýsingamiðstöð um leið og maður kemur í bæinn. (Reykjavík)
Upplýsingarþjónusta, sundlaug, bensínstöð + verslun. Sameina þarf
upplýsingaþjónustu og verslun og staðsetja við bæjardyr. (Mosfellsbær)
Get ekki svarað því að svo stöddu. (Akureyri)
Ég kann vel við það hversu ósnortinn staðurinn er og ég myndi ekki vilja
sjá æpandi ferðamannatilboð o.s.frv. (Reykjavík)
Mætti vera sundlaug eða lítið kaffihús. (Reykjavík) Sundlaug + kaffihús.
(Garðabær)
Minnka verðið. ( )
Já, líflegri staður. (Djúpivogur)
Þvottavél á tjaldstæði. (Hafnarfjörður)
„HOT POT“ heitur pottur. (Reykjavík)
Sundlaug. (Reykjavík) Sundlaug. (Hólmavík) Sundlaug. (Akureyri) Myndi
breyta miklu að fá sundlaug – stór þáttur hjá mér og minni fjölskyldu
þegar við veljum okkur gististað. Þarf ekki að vera stór – í raun væri
nóg að hafa heita potta. ( ) Gera sundlaug (skemmtilega). (Reykjavík) Sé
ekki hverju þarf að breyta en einhverju má bæta við s.s. sundlaug.
(Garðabær) Koma upp sundlaug og gera staðinn að betri ferðamannastað því
að hér er mjög fallegt. (Eyjafjöll) Vantar sundlaug – dregur að
fjölskyldur með börn. (Hvolsvöllur) Sundlaug. Að öðru leiti er margt til
fyrirmyndar. (Akureyri)
Veit ekki, var bara að koma hingað. ( ) Veit það ekki – var að koma.
(Akureyri) Veit ekki. (V-Eyjafjöllum) Veit ekki. (Skagafjörður) Veit
ekki alveg. (Reykjavík) Veit ekki.... (Reykjavík) Vorum að koma, getum
ekki dæmt. ( )
Engu. (Skagafjörður) Engu. (Kópavogur) Enga. (Akureyri) Engu. ( ) Engu
sérstöku. (Hróarstunga).
Ekki mikið. ( ) Ekki miklu. (Hafnarfjörður)
Heitur pottur eða sundlaug. (Svarfaðardalur) Sundlaug / heitur pottur.
(Norðurland eystra) Sundlaug eða a.m.k. heitir pottar. ( ) Sundlaug /
heitir pottar. (Reykjavík) Sundlaug eða a.m.k. heitir pottar.
(Reykjavík)
Vegurinn hingað frekar truntulegur fyrir bæjarfólk sem alist hefur upp á
malbiki !! ( ) Bæta veginn hingað að. (Hólmavík) Erfiður vegur hingað.
(Reykjavík) Bæta vegi að Bakkagerði. (Höfuðborgrsvæðið)
Auglýsa staðinn betur. (Keflavík) Auglýsa meira. (Hafnarfjörður) Auglýsa
betur. ( ) Auglýsa. (Reykjavík) Reyna að vekja meiri athygli.
(Reykjavík)
Spurning 13
Hvernig kom staðurinn þér fyrir sjónir?
Veit ekki, bara vel held ég. (Reykjavík)
Sæmilega. (Djúpivogur)
Mjög vinalegur og fallegur en veðrið var ekki mjög gott – ekki nóg
útsýni vegna þoku. (Reykjavík)
Vinalegur og sérstæður. ( )
Skildi ekki hvað fólk mundi gera hérna. (Akureyri)
Gamaldags. (Reykjavík)
Vei, hann er mjög fallegur og gott að vera hér. (Reykjavík)
Frábær staður, heillaðist þegar ég keyrði inn í bæinn og sá fjöllin á
hæðinni. (Reykjavík)
Vel, gott skipulag á göngustöðum. ( )
Hann kom vel fyrir. Það var gaman að skoða fjöruna og smábátahöfnina og
höfðan. (Neskaupstaður)
Tómlegur, en hlýlegur. Mætti „fegra“ bæinn. (Mosfellsbær) Lítill og
tómur. (Reykjavík)
Mjög vel, frekar afskektur. (Reykjavík)
Húsum ekki nógu vel við haldið. ( )
Fallegur það litla sem sést fyrir rigningu. (Hafnarfjörður)
Vel hlýlegur, lítið sjávarþorp. ( )
Mjög fallegur og sérstakur. Verið ekkert að reyna að vera eins og aðrir.
Leggið áherzlu á sérstöðuna. (Akureyri)
Gæti hugsað mér að koma og tjalda hérna. ( )
Rólegur staður og snyrtilegur. (Garðabær)
Geysi fallegur og vinalegur. ( ) Mjög fallegur. (Keflavík) Fallegur og
vinalegur. (Svarfaðardal) Mjög fallegur. (Reykjavík)
Gamaldags og framandi. (Kópavogur)
Fallegur, landrými gott, fjallahringur stórkostlegur, snyrtilegt,
eitthvað mætti athuga með ryðguðu tankana. (Suðurland)
Mjög skemmtilegur. (Akureyri)
Vel, þrátt fyrir dimmviðri. (Reykjanesbær)
Sá eiginlega ekkert fyrir þoku. (Reykjavík)
Fallegur, áhugaverður, miklir útivistarmöguleikar. (Hafnarfjörður)
Vel, en það mætti gera staðinn fínni ! (Eyjafjöll)
Fallegur og miklar sögur sem vekja áhuga. (
Fallegur og þjónustan í versluninni alveg stórgóð !! (Mosfellsbær)
Vel, sérstakt, minnir á gamla tíð. (Reykjavík)
Stórkostleg uppgötvun. Ótrúlega fallegt hér og mikið að skoða.
(Reykjavík)
Ymdislegur í góðu veðri, margt að berja augum. ( )
Mjög fallegt, friðsælt, vinalegt fólk. (Svarvaðardalur)
Snyrtilegur t.d. Hafnarhólminn (umhverfið). Mikil þjónusta við ferðamenn
miðað við stærð staðar. (Norðurland eystra)
Mjög vel. Fínt tjaldstæði og allt til fyrirmyndar. (Reykjavík)
Vel uppbyggður fyrir ferðaþjónustu. (Akureyri)
Frá því ég kom hingað fyrst fyrir ca 20 – 25 árum hefur þessi staður
heillað mig án þess að ég geti útskýrt það frekar í stuttu máli.
(Kópavogur)
Snyrtilegur vel í meðallagi. Alúð við gömul hús og minjar. Mikil
náttúrufegurð. (Dalvíkurbyggð)
Afskektur. Þurfti að vera hægt að keyra yfir á Seyðisfjörð. (Reykjavík)
Snyrtilegur bær, frábært landslag. Almennilegheit og góð þjónusta.
(Reykjahverfi S-Þing)
1 árs eða minna. (Reykjavík)
Illa, mikið DRASL hér. (Keflavík)
Fallegur. Svolítið sjóaður en fínn. (Akureyri)
Náttúrufegurðin heillandi. Mjög vel. Maturinn hjá Jóhönnu alveg til
fyrirmyndar. Nýbökuð brauð slá alltaf í gegn. (Garðabær)
Vel – vantar þó að taka til gamalt véladrasl. (Reykjavík)
Ofsalega notalegur, hlýlegur. (Fjarðabyggð)
Fallegur, fallega staðsettur innanum fjöllin, mörg húsanna orðin
þreytuleg en samt falleg. (Akureyri)
Mjög fallegur, mikill stórhugur í fólki. (Garðabær)
Sem skemmtilegur lítill bær með stórbrotinni náttúru. (Reykjavík)
Vel að öðru leiti en því að Nýji Jörfi er ljótur blettur á annars
fallegu þorpi. ( )
Einangrað þorp með erfiðar samgöngur en það gerir þetta allt svo
sjarmerandi. (Skagafirði) Vel, virðist einangrað. (Garðabær)
Fallegur, rólegur, styrkjandi. (Reykjavík)
Fallegt þorp og skemmtilegasta fjaran á landinu. (Hvolsvelli)
Stórkostlega fallegt. Mikið búið að fegra þorp og dal. ( )
Minnsta bæjarfélag sem ég hef komið í. ( )
Einstaklega fallegur. (Reykjavík)
Vel, snyrtilegur staður. Skemmtileg kennileyti. (Akureyri) Mjög
snyrtilegur, fallegur. ( )
Frábær náttúrufegurð og vingjarnlegt fólk. (Reykjavík)
Vel. (Hafnarfjörður) Vel. (Stykkishólmur) Vel. (Hafnarfjörður) Vel. ( )
Vel. (Hafnarfjörður) Vel. (Hólmavík) Vel. (Akureyri) Vel. ( ) Vel. ( )
Vel. (Akranes) Vel. (Reykjavík) Vel. (Reykjavík) Vel. (Egilsstaðir) Vel.
(Akureyri) Vel. ( ) Vel. (Vestfirðir) Vel. (Reykjavík) Vel. (Hella) Vel.
( ) Vel. (Reykjavík) Bara vel. (Reykjavík) Bara vel. ( )
Mjög vel. (Hafnarfjörður) Mjög vel. (Kópavogur) Mjög vel. (Reykjavík)
Mjög vel. (Vopnafjörður) Mjög vel. (Reykjavík) Mjög vel. (Mosfellsbær)
Ágætlega. (Reykjavík) Ágætlega. (Reykjavík) Ágætlega. (Mosfellsbær)
Ágætlega. (Skagarfjörður) Ágætlega. (Reykjavík) Ágætlega. (Kópavogur)
Frekar lítill. (Vestmannaeyjar) Lítið þorp. (V-Eyjafjöll) Smár.
(Mosfellsbær)
Fallegur og lítill. (Seltjarnarnes) Mjög fallegt lítið kauptún.
(Skagafjörður) Fámennur – fallegur. (Reykjavík)
Notalegur – vinalegur – rólegur. (Kópavogur) Frábærlega. (Suðurland)
Eins og alltaf – alveg stórkostlega. (Hróarstunga) Yndislegur. Alltaf
jafn gaman að koma hér. (Akureyri) Vel eins og ég bjóst við. (Akureyri)
Vel – frábær. (Reykjavík) Alltaf mjög vel. (Reyðarfjörður) Mjög vel.
Skemmtilegt og fallegt. ( ) Notalegur, fallegur, sjarmerandi.
(Reykjavík) Fallegur – vinalegur. (Reykjavík) Fallegur, vinalegur.
(Djúpivogur) Fallegur, friðsæll. (Seyðisfjörður) Hlýlegur og
snyrtilegur. (Reykjavík) Ægifagur. (Hafnarfjörður) Mjög fallegur og
hlýlegur staður. (Garðabær) Lítill og sætur. (Hólmavík) Mjög fallegur /
yndislegur. (Reykjavík) Falleg fjöll (kom reyndar í þoku).
(Höfuðborgarsvæðið) Falleg náttúra. (Reykjavík) Fagur. (Hafnarfirði)
Fallegur. (Hafnarfjörður) Fallegur. (Skagafjörður) Notalegur.
(Reykjavík)
Spurning 14
Hvað kom þér mest á óvart hér?
Hvað sum hús eru í óreiðu, þ.e.a.s. mikið drasl. (Reykjavík)
Hverslu stórt þorpið er – höfnin og fuglaskoðunaraðstaðan. (Reykjavík)
Umhverfið. (Akureyri)
Að íbúatalan sé ekki hærri. (Reykjavík)
Að Kjarval hefði alist hér upp. ( )
Hve mikil menning er hér, Kjarvalsstofa. (Garðabær)
Sjónmengun þ.e. á Grund. Hvað bærinn Grund fær að vera með mikinn
sóðaskap kringum húsin. R. Þorst.
Fjöldi köngulóa!. ( )
Fjaran. (Hvolsvöllur)
Góða veðrið, bjóst við þoku. (Reykjavík)
Álfasteinn og fjaran. (Skagafjörður)
Hvað er fallegt og að allt sé til staðar, skóli, leikskóli, fiskvinnsla,
veitingastaður, verslun. (Garðabær)
Frábær aðstaða á tjaldstæðinu. (Akureyri)
Sú ótrúlega fjölbreytni í framleiðslu Álfasteins. (Fjarðabyggð)
Gæði tjaldsvæðis – eitt af betri á landinu. (Reykavík)
Snyrtilegt umhverfi á jafnfámennu byggðarlagi. ( )
Það sama og þrisvar áður – „grípandi, hrikaleg falleg náttúra“
(Reykjavík)
Hvað mikið hefur verið gert hér fyrir ferðamenn síðan ég kom h´r síðast
1991. (Reykjavík)
Dreyfð byggð, lítill staður. (Akureyri)
Álfasteinn ehf. (Keflavík)
Kjarvalsstofa – hafði ekki séð hana áður. Afar vel heppnuð.
(Hafnarfjörður)
Hvað staðurinn er menningarlegur. Vel að öllu staðið. ( )
Fátt. (Suðurland)
Hvað fólk var líbó. (Reykjahverfi S-Þing.)
Kjarfalsstofa er mjög flott. (Vopnafjörður) Kjarvalsstofa. (Reykjavík)
Stærri byggð en ég átti von á. (Reykjavík)
Eins og alltaf – alveg stórkostlegur staður. (Hróarstunga)
Hvað samlokan og frönsku kartöflurnar voru góðar. (Reykjavík)
Greinilegur baráttuvilji íbúa gegn byggðareyðingu og skipulögð vinna í
þjónustu við ferðafólk. (Dalvíkurbyggð)
Góður matur og góð þjónusta. (Vestfirðir)
Í stuttu máli: Fátt kemur lengur á óvart en samt nýt ég hverrar mínútu.
(Kópavogur)
Hve vel allt er skipulagt og vel merkt. (Akureyri)
Merking gönguleiðanna. Kjarvalsstofa (hafði séð flest áður en aldrei
hana). (Norðurland eystra)
Hvað allt var öðruvísi. (V-Eyjafjöll)
Hvað það er snyrtilegt um að litast. (Svarvaðadalur) Hvað allt er
snyrtilegt og fallegt. (Akureyri)
Hélt að það byggju fleiri hér. (Vestmannaeyjar)
Smábátahöfnin, hvað er mikið af merktum gönguleiðum. Fólkið er
sérstaklega glaðlegt og almennilegt. (Skagafjörður)
Dulúðin í landslaginu. (Hafnarfjörður)
Fuglabyggðin í Hafnarhólma. (Hafnarfjörður) Fuglalífið og fegurðin.
(Akureyri) Fuglalífið við höfnina. (Garðabær) Lundinn. ( ) Höfnin og
allir lundarnir. (Reykjavík)
Torfhúsið, hvað það er flott og að hér búa 130 manns. (Reykjavík)
Menningarlegt, myndarlegt og metnaðarfullt yfirbragð á öllu. (Suðurland)
Blind þoka niður í sjó. (Borgarfjarðarsýsla) Þokan. (Reykjavík)
Veðrið ( það var ömurlegt veður þegar ég kom). ( )
Höfnin. ( )
Staðurinn kemur alltaf skemmtilega á óvart. (Akureyri)
Allt eins og ég bjóst við, bara minna. (Reykjavík)
Fjölbreytileiki náttúrunnar. (Svarfaðardalur)
Fegurð landslagsins, Dyrfjöll. Fallegt lítið sjávarþorp. (Keflavík)
Hvað vegurinn hingað var hrikalegur utan í fjalli og stórbrotin.
(Hafnarfjörður)
Steinarnir. (Kópavogur)
Hvað það búa fáir hér. (Reykjavík)
Hvað margir af íbúum reykja! Góð aðstaða við tjaldstæði. (Mosfellsbær)
Hvað mikið virðist hafa verið gert hér í ferðamálum miðað við smæð
sveitafélagsins. Langar að koma seinna til að ganga. (Mosfellsbær)
Mikil áhersla lögð á gönguleiðir og nálægð við náttúruna. Mjög gott.
(Reyðarfjörður)
Svo margt. ( )
Að kaupfélagið skuli vera opið á sunnudögum. (Hólmavík)
Ekkert – jú kannski vegurinn hingað. (Akureyri)
Minn bátur við stóra bryggju. (Hólmavík)
Fegurðin ósnortið þorp og náttúra sem verður að viðhalda. Gott
tjaldstæði – vingjarnlegt fólk. ( )
Hversu lallegt er hér og að ókeypis sé í sturturnar á tjaldstæðinu.
(Reykjavík)
Verðið í Álfasteini. (Reykjavík)
Að þið seljið svona flotta steina hér. ( )
Höfnin – kyrrðin – hreinleikinn. (Reykjavík)
Hvað allir eru glaðir og brosmildir. (Skagafjörður)
Hafði heyrst að hér væri fallegt en upplifunin var miklu betri en
sögusagnir. ( )
Mikið af svona söfnum og eitthvað um álfa. (Akureyri)
Snyrtimennska og mjög góð aðstaða á tjaldsvæði – með því besta á
Austfjörðum. (Hafnarfjörður) Frábær aðstaða á tjaldstæði. (Kópavogur)
Snirtilegt umhverfi. (Stykkishólmur)
Hvað þorpið er þétt og samheldni þorpsbúa að virðist. (Reykjavík)
Hvað margir sækja staðinn. (Hafnarfjörður)
Mikil menning – hár standard – vel að öllu staðið. (Reykjavík.
Ekkert. ( ) Ekkert sérstakt. (Reykjavík) Ekki ákveðið. (Hafnarfjörður)
Ekkert. (Djúpivogur) Ekkert. (Reykjavík)
Allt. (Eyjafjöll) Allt ! Hafði ekki hugmynd um þennan stað, villtist
hingað eiginlega – stórkostleg uppgötvun. (Reykjavík) Allt.
(Seyðisfjörður)
Fegurðin. (Kópavogur) Fegurðin. (Reykjavík) Fegurð. (Akureyri)
Náttúrufegurðin. (Reykjavík) Náttúrufegurðin. (Reykjavík)
Fjallafegurðin. (Reykjavík)
Friður og ró. (Reykjavík) Kyrrðin! (Reykjavík) Fegurðin og kyrrðin. ( )
Friðsæld og fallegt umhverfi. ( ) Kyrrðin og hvað hér er fallegt.
(Reykjavík)
|
|