|
Þrjár hugmyndir að gönguferðum á Víknaslóðum.
Ef þið viljið skoða svæðið okkar vel þá
mælum við eindregið með, miðað við 4-6 daga göngur, að þið skiptið svæðinu í
tvennt, nyrðri og syðri hluta. Ef þið hinsvegar viljið skoða sem
mest af svæðinu á sem skemmstum tíma þá er upplagt að taka „hraðferð“ um svæðið
en þá verða að sjálfsögðu útundan margir athyglisverðir staðir.
Skoðið vel kort af svæðinu og takið svo ákvörðun. Ferð með staðkunnugum
leiðsögumanni gefur ferðinni mun meira gildi.
Hikið ekki við að hafa samband við heimamenn um nánari upplýsingar og aðstoð við
ferðaskipulag. Velkomin á Víknaslóðir.
Ferðatillaga 1.
5 göngudagar.
Víknaslóðir - Stórurð og Víkur sunnan Borgarfjarðar eystri. Allt svæðið
-
hraðferð.
Farangur fluttur milli staða (trússferð). Allt fæði innifalið.
Komið til Borgarfjarðar að kvöldi - gist á
Borgarfirði.
1. Ekið á Vatnsskarð kl. 8:00 og gengið þaðan í Stórurð –
komið til baka til Borgarfjarðar kl. 18:00. Kvöldrölt um þorpið. Gist á
Borgarfirði.
2. Gengið um Brúnavík til Breiðuvíkur og gist þar.
3. Gengið til Húsavíkur og gist þar.
4. Gengið til Loðmundarfjarðar og gist í Stakkahlíð.
5. Gengið um Kækjuskörð til Borgarfjarðar. Komið þangað
um kl. 17:00 Kvöldverður og ferðalok. Gist á Borgarfirði.
Ferðatillaga 2.
5 göngudagar.
Víknaslóðir - Stórurð og Víkur sunnan Borgarfjarðar eystri -
norðursvæði.
Farangur fluttur milli staða (trússferð). Allt fæði innifalið.
Komið til Borgarfjarðar að kvöldi – gist á
Borgarfirði.
1. Ekið á Vatnsskarð kl. 8:00 og gengið þaðan í Stórurð –
komið til baka til Borgarfjarðar kl. 18:00. Gist á Borgarfirði. Kvöldrölt um
þorpið.
2. Ekið að Unaósi og gengið í Stapavík og áfram til
Njarðvíkur.
3. Gengið um Brúnavík til Breiðuvíkur. Gist þar tvær nætur.
4. Gengið í Kjólsvík og á Glettingskoll. Gist í Breiðuvík.
6. Gengið um Víknaheiði til Borgarfjarðar. Komið þangað um
kl. 17:00 Kvöldverður og ferðalok. Gist á Borgarfirði.
Ferðatillaga 3.
5 göngudagar.
Víknaslóðir - Loðmundarfjörður og Víkur sunnan
Borgarfjarðar eystri.
(suðursvæði).
Farangur fluttur milli staða (trússferð). Allt fæði
innifalið.
Komið til Borgarfjarðar að kvöldi – gist á
Borgarfirði.
1. Gengið til Húsavíkur og gist þar tvær nætur.
2. Gengið út í Álftavík og að Húsavíkurbæjum. Gist í Húsavík.
3. Gengið til Loðmundarfjarðar og gist næstu tvær nætur í
Stakkahlíð.
4. Gengið um Loðmundarfjörð - gist í Stakkahlíð.
5. Gengið um Kækjuskörð til Borgarfjarðar. Komið þangað um
kl. 17:00 Kvöldverður og ferðalok. Gist á Borgarfirði.
|