Forsíða
Gönguleiðir
Göngukort
Tillögur að gönguferðum
Gönguferðir 2005
Stiklað um Víknaslóðir
Þjónusta við ferðamenn
GPS-punktar á gönguleiðum
Ýmiss fróðleikur um svæðið
Myndasafn
Áhugaverðir áfangastaðir
Örnefnaskrá hreppsins
Álfasögur
Fornsögur
Ýmsar sagnir
Söngtextar
Fréttir frá Borgarfirði
Borgarfjarðarfréttir
Hreppsfundagerðir
Annað
Álfaborgarsjens 2005
Gestabók
Myndagetraunir
Ferðamannakönnun 2003
Ýmiss net- og vefföng

 

 

Hit Counter

Gestabók

Sendu okkur texta í gestabókina og við setjum hann hér inn.

6.8.2005
Komið þið blessuð!
Gaman að sjá hvað Borgfirðingar eru frumlegir að láta sér detta í hug að halda tónleika í gömlu síldarbræðsunni. Frábært að láta verða af þessu. Flottar blómaskreytingar sem pössuðu vel. Meira af svona!
Smá orðsending til Ollu frænku, ég sá í gestabókinni að hún hefði lent í viðgerð í Færeyjum!: Vona að þú sért farin að dansa aftur, en er það kannske bara færeyskur "dansur" sem þú dansar héreftir??? Hafðu það gott frænka mín og þið öll heima á Borgarfirði.
Engar myndir frá sénsinum????
Kær kveðja
Anna Sigurðar.

3.8.2005
Til hamingju með síðuna hún er frábær. Mér finnst voða gaman að sjá myndir af fólki og stöðum sem maður heyrir ættingjana tala um og ég er enn að læra um sjálf.
Þrátt fyrir stuttan tíma á Borgarfirði er ég alltaf jafn stolt af því að hafa átt heima á Borgarfirði eystri.
Kveðja Bergný Jóna (Bibbudóttir í Vinaminni, dóttir Arnbergs og Stebbu)

27.7.2005
Kæru Borgfirðingar!
Það er gaman að sjá þessa menningarlegu síðu. Þetta framtak er til fyrirmyndar og ótrúlegt af svo fámennu byggðarlagi. Ég og mínir óskum Borgfirðingum alls hins besta og góðs gengis á “sjensinum” 2005. Kveðja, Gugga frá Móbergi

24.7.2005
Var á tónleikum í bræðslunni í gærkvöldi - stórkostlegir!! Þetta nýja tónleikahús slær öllu við - skreytingarnar hennar Bryndísar voru frábærar líka - meira svona!!
Áfram Borgarfjörður :)
Kv. Guðný í Jörfa.

8.7.2005
Kæru Kæru sveitungar.
Ætlaði að vera komin á Ós, en það dregst, vegna viðgerðar sem ég fór í.   Var í ferðalagi í Færeyjum og lennti þar í að þurfa að fara í aðgerð, skipt var um mjaðmalið í mér, svo nú er smá Færeyjingur.
Kem um leið og ég get
Olla Jóhanns

19.3.2005
Kæru sveitungar!
Mikið fannst mér gaman að sjá myndir frá þorrablótinu, en ég sé að það er allt of langt síðan ég hef verið á mannfagnaði á Borgarfirði, ansi
margir sem ég þekki ekki.
Kíki reglulega á síðuna til að sjá hvort eitthvað er nýtt að heiman.
Bið ykkur öll vel að lifa.
Kær kveðja
Anna á Skriðubóli

8.3.2005
Blessaðir sveitungar.
Mikið gleður það mig að fréttir fari að byrtast hér á síðunni og óska ég frænda mínum til hamingju með það að ætla að drýfa hana áfram, ekki það að hún hafi ekki verið góð hjá Helga vini mínum, en ég veit að hún verður áhugaverð hjá þér frændi eins og þín er von og vísa.
Ekki spillir að krydda hana með myndum.
Bestu kveðjur
Sverrir Að.

6.2.2005
Gleðilegt nýtt ár. Mikið varð ég glöð að sjá þessar þorrablótsmyndir . Þær sanna enn og aftur að Borgfirðingar eystri eru bestir. Kveðja Þ.Sig.

6.12.2004
Gleðileg jól !!!
Hälsningar Louise och Tobias

6.12.2004
Sæll Helgi og Borgfirðingar vítt og breitt. Ég er fegin að þú ert komin á skrið því ég hef saknað frétta og mynda úr heimabyggðinn. Vona að þið eigið gleðileg jól og góð áramót. Kveðja Þura Sig.

2.12.2004
Flott síða sem gaman er að skoða.
Sveinbjörn Orri Jóhannsson,  Seyðisfirði

24.11.2004

Heiti ég og Óskar
mér helst ber það til hóls
Að koma þarna að austan
af ættum Skriðubóls.

Síðan er góð! En vantar þó meira af myndum af því sem er í byggðinni t.d. kaupfélaginu og skólanum.
Óskar Guðmundsson (sonur Önnu Sig)

31.7. 2004
Glæsileg síða flottar myndir margarhverjar, en hvar eru álfasögunar?
Kem fljótlega í heimsókn.
Kv.    Kristófer Karlsson

25.7. 2004
Hæ,hæ !
Mikið er gaman að sjá þessa síðu, datt bara óvart hér inn.
Ég heiti Guðný Sigurrós Haraldsdóttir (Rósa) og er ættuð frá Borgarfirði, mamma mín var úr Vinamynni, og var ég tvö sumur í sveit í Geitavík hjá Margréti og Daníel og það voru bestu sumur sem ég man eftir.
Ég er skýrð eftir fóstur mömmu hennar mömmu og bróðir minn var skýrður eftir fóstur pabba hennar sem sagt Sigurður og ég sá að það er gömul mynd af honum Sigga Sveins afa okkar hér með bátslíkan sem hann smíðaði, hann gaf bróðir mínum þennan bát og á hann bátin ennþá og heldur vel uppá hann. En ég var að skoða gamlar myndir hér sem var mjög gaman, en ef þú Helgi vilt þá á ég margar myndir síðan ég var barn þarna í sveit og sjálfsagt að lána þér þær eins á ég myndir sem ég fékk eftir mömmu og þær eru sko gamlar og mjög gaman að skoða. En bestu kveðjur til allra Rósa sumarbarn í Geitavík.

11.3. 2004
Flott síða hlakka tilað koma í heimsókn.  Mér finnst endilega vanta álfasöguna sem gerðist á Hvoli um álfkonuna í Hólnum.  Edda.

20.2. 2004
ótrúlega flott síða, til hamingju borgfirðingar!
Kveðja, Dagný Sævars og fjölsk. í Danmörku

18.2. 2004
Hæ, hæ !!!
Þessi síða er alveg frábær ............. eins og ég hef sagt áður þá lít ég
hér inn á hverjum degi !!!
Þú átt alveg hrós skilið fyrir þetta Helgi !!!
Kveðja,
Arna

3.2. 2004
Ágætu sveitungar
Ég verð nú bara að senda þorrablótsnefnd Borgfirðinga 2004 kveðjur og þakklæti fyrir alveg stórkostlega skemmtun á
þorrablótinu á laugardaginn var, ég hef alveg örugglega verið búinn að gleyma hvað þetta eru góðar skemmtanir þar sem ég hafði ekki komið á blót síðan 1979 eða í 25 ár. Maturinn góður uppvarting með ágætum menn og konur eins og þaullært fólk í þeim efnum, skemmtiefnið alveg frábært, á heymsmælikvarða, söngur fullkominn hjá söngvörunum þrem ( s.b. tenórarnir þrír )
sem sagt frábær skemmtunn, kem örugglega að ári ef ég má.

Helgi Arngríms þú átt skilið hrós fyrir að halda úti þessari síðu, alltaf hlínar mér um hjartarætur þegar ég les fréttir að heiman.
Hef verið aðeins að benda local.is sem er frétta miðill fyrir Norðaustur kjördæmi á fréttnæmt sem gerist heima en ekkert kemur á þeim miðli frá Borgarfirði.

Bestu kveðjur til allra Borgfirðinga
Sverrir Að.

27.12. 2003.
Gleðilegt nýtt ár í Fjörðinn.  Ég get vottað þetta með snjóinn fyrir norðan - allavega á Dalvík.  Framhliðin á húsinu mínu er að hálfu á kafi í snjó - eitthvað sem vekur óneitanlega minningar frá Borgarfirði.  góðar stundir.  Þura Sig.

27.12. 2003.
We wish to everybody in the village Merry Christmas and a very happy – healthy and prosperous 2004

from Athens - Greece
Theodore – Dagny – Marina – Markos - Athina

16.12. 2003.
Sælir Borgfirðingar gaman að skoða síðuna hjá ykkur það er gaman að sjá hvað er um að vera á Borgarfirði ég óska öllum borgfirðingum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári
Bjarki Björgólfsson Vopnafirði
Heimasíðan mín er www.simnet.is/kompan

16.12. 2003.
Sælir kæru sveitungar.
Tetta er alveg frabær sida, til hamingju med hana Helgi! Tad er ometanlegt ad fa frettir og myndir ad heiman, ta finnst manni ekki eins langt heim.
Hedan fra Noregi er allt gott ad fretta, vid høfum ekki fengid snjo i vetur og faum vist ekki fyrir jol. En Sigga systir er buin ad hafa skøtuveislu tannig ad jolaskapid er a sinum stad!
Bestu jolakvedjur til allra,
Elli Ola og fjølskylda i Noregi.

15.12. 2003.
Borgfirðingar heima og heiman.   Þetta hljómar eins og jólakveðja í ríkisútvarpinu.  Var að kíkja á fréttir og getraunina - ekki þekki ég alla þessa blessaða karla, en suma.  Jólakveðjur til allra.  Kveðja Þura Sig.

11.12. 2003.
Æðislegt að geta fylgst með jólaskreytingunum heima, þetta er allt miklu jólalegra og glæsilegra en hér í borginni.  ..En bíðið bara þar til við Jónsi komum í bæinn! ;)
Kveðja til allra!
Harpa Rún

8.des. 2003.
Frábær síða sem ég heimsæki mjög oft og hef gaman af.
Kveðja,   Erla Sigríður Sveinsdóttir,

24.nóv. 2003.
Frábært Helgi, þakka þér fyrir að leiða mig inn á vefinn, maður ánetjast fréttum úr átthögunum og líður eins og fíkli sem fær ekki efnin sín ef engar fréttir eru eða myndir, en gaman af þessu og kærar kveðjur heim í fjörðinn fagra.  
Kveðja Gunna í Geitavík.

23.nóv. 2003.
Sælir Borgfiirðingar!
Var að frétta af þessari nýju síðu, var alveg búin að gefast upp á að kíkja inn á gömlu síðuna því þar gerðist ekki neitt!!! Gaman að sjá að aftur er eitthvað að frétta frá Borgarfirði!!! Hafið það nú gott og passið ykkur á jólastressinu
Anna frá Skreðubóli

22.nóv. 2003.
Gaman að sjá Borgarfjörðinn í tölvunni.  Kveðja Karólína Rún Helgadóttir.

22.nóv. 2003.
Sælt veri fólkið, skemmtileg síða og gaman að geta kíkt austur í gegnum tölvuna..... Kær kveðja Hulda Pálsdóttir (ættuð frá Snotrunesi) og fjölskylda :)

30.okt. 2003.
Haldið ekki að ég hafi álpast inn á nýja fréttasíðu að heiman í tölvunni og varð ekkert smá glöð.  Það fór nefnilega fyrir mér eins og Þuru frænku minni því allt í einu var ég farin að hásyngja á kennarastofunni (kíkti aðeins á söngtextana!!!!) og fékk heldur lélegar undirtektir, sko þessir Sunnlendingar kunna ekki gott að meta!!!! 
Héðan af sléttunni er allt bærilegt að  frétta, kominn örlítill vetur 5 stiga frost og smá föl.  Kærar kveðjur til ykkar heima og líði ykkur sem allra best, B. Gyða Ólad.

24.okt. 2003.
Halló heim í fjörðinn. Gaman að lesa um alla nýbýlingana , vona að þeim líði vel í firðinum okkar. Var á Bóli um síðustu helgi við að koma fyrir nýjum útihurðum. Frábært að geta fylgst með fréttunum og eins er alltaf gaman að sjá myndir að heiman. Kveðja Þura frá Bóli.

17. okt. 2003
Sælt veri fólkið, Helgi og allir hinir.
Ég les alltaf (amk einu sinni í viku) allt sem kemur fram hér á síðunni.
Takk fyrir það. Vonandi held ég áfram að ganga að ykkur hér. Allra bestu
kveðjur héðan af Skaganum, Fjóla Ásgeirsd. (Gunnu í Jörfa)

27. sept. 2003
Heilir og sælir Borgfirðingar. Ég er nýbúin að frétta af þessari síðu og mátti til með að skoða hana og hún er ekki af verri endanum. Ég byrjaði auðvitað á að skoða fréttirnar og svo söngtextana og var farin að raula við tölvuna.
Kveðja Þura frá Skriðubóli.

3. sept. 2003
Góðan dag. 
Ég er bara að prófa hvernig þetta virkar.   Helgi A.

 

Forsíða


©2002 hornafjordur.net