Forsíða
Gönguleiðir
Göngukort
Tillögur að gönguferðum
Gönguferðir 2005
Stiklað um Víknaslóðir
Þjónusta við ferðamenn
GPS-punktar á gönguleiðum
Ýmiss fróðleikur um svæðið
Myndasafn
Áhugaverðir áfangastaðir
Örnefnaskrá hreppsins
Álfasögur
Fornsögur
Ýmsar sagnir
Söngtextar
Fréttir frá Borgarfirði
Borgarfjarðarfréttir
Hreppsfundagerðir
Annað
Álfaborgarsjens 2005
Gestabók
Myndagetraunir
Ferðamannakönnun 2003
Ýmiss net- og vefföng

 

Skipulagðar gönguferðir sumarið 2004

Hér eru nokkrar ferðir sem skipulagðar eru um Víknaslóðir í sumar.   Það er Ferðafélag Fljótsdalshéraðs sem skipuleggur þær allar.

Flestar ferðirnar hafa langar dagleiðir og því þarf að hafa það í huga varðandi börn og unglinga.

Ferðaáætlun F.F.F. á Víknaslóðum sumarið 2004

20. júní SólstöðugangaGengið í Stapavík
Ferðafélag Fljótsdalshéraðs. 
S: 471-2000 eða falegs@simnet.is

Til baka er farið yfir Gönguskarð til Njarðvíkur. Lagt af stað frá Upplýsingamiðstöðinni Egilsstöðum kl. 21.00
Fararstjóri:  NN

10.-15. júlí Víknaslóðir 1
- Trússferð - án fæðis.
Ferðafélag Fljótsdalshéraðs. S: 471-2000 eða falegs@simnet.is

Verð: Félagsmenn, 22.500 kr. Aðrir 25.500 kr.
Ferðin hefst á Borgarfirði. Farið frá Fjarðarborg kl. 8:30.
1.d. Ekið á Vatnsskarð. Gengið í Stórurð (Hrafnabjargaurð) og áfram um Grjótdalsvarp til Borgarfjarðar.
2.d Gengið um Brúnavík, Hvalvík, á Glettingskoll, Kjólsvík og til Breiðuvíkur.
3.d. Gengið frá Breiðuvík um Herjólfsvík til Húsavíkur ef veður leyfir. Annars um Víknaheiði til Húsvíkur.
4.d. Dvalið í Húsavík, gengið til Álftavíkur og heim að bæ í Húsavík.
5.d. Gengið frá Húsavík um Nesháls til Loðmundarfjarðar. Kvöldverður, morgunverður og nesti í Loðmundafirði er innifalið í verði ferðarinnar.
6.d. Gengið um Kækjuskörð til Borgarfjarðar.
Fararstjóri: Helgi Hlynur Ásgrímsson

 

10.7. - 13.7.  Víknaslóðir - Borgarfjörður eystra (4 dagar)
Útivist
- s: 562-1000 - utivist@utivist.is
Brottför kl. 10:00 frá Borgarfirði eystra. 0407LF17
Ferð í samvinnu við Skúla Sveinsson og fleiri á Borgarfirði eystra. Gengið frá Borgarfirði til Húsavíkur og þaðan til Loðmundarfjarðar. Frá Loðmundarfirði verður haldið um Kækjuskörð til Borgarfjarðar. Hægt er að tengja þessa ferð við ferðina sem hefst 14.7.

14.7. - 17.7.  Borgarfjörður eystra - Stapavík - Breiðuvík (4 dagar)
Útivist
- s: 562-1000 - utivist@utivist.is
Brottför frá Borgarfirði eystra. 0407LF19
Ferð í samvinnu við Skúla Sveinsson og fleiri á Borgarfirði eystra. Sérstæð útfærsla á ferð um Víknaslóðir þar sem komið verður við í Stapavík, Borgarfirði eystra og Breiðuvík. Hátindur ferðarinnar verður ganga í Stórurð sem er einstaklega mikilfenglegt framhlaup. Í skjóli við Dyrfjöllin eru svo stór björg og grænar tjarnir að erfitt er að trúa sínum eigin augum.


17.-22. júlí (6 dagar) Víknaslóð - Borgarfjörður eystri
Ferðafélag Íslands - S: 568-2533 -
fi@fi.is
Gönguferð um fjölbreytt landslag og fagrar víkur. Ferð í samvinnu við Ferðafélag Fljótsdalshéraðs.


24.-29. júlí Víknaslóðir 3
– Trússferð með fullu fæði
Ferðafélag Fljótsdalshéraðs.  S: 471-2000 eða falegs@simnet.is

Verð: Félagsmenn 32.500 kr. Aðrir 35.500 kr.
Upphaf ferðar er á Borgarfirði.
1.d. Ekið frá Fjarðarborg á Vatnsskarð kl. 8:30. Gengið í Stórurð (Hrafnabjargaurð) og áfram um Grjótdalsvarp til Borgarfjarðar.
2.d Gengið um Brúnavík, Hvalvík og Glettingskoll, Kjólsvík og til Breiðuvíkur.
3.d Gengið frá Breiðuvík um Herjólfsvík til Húsavíkur ef veður leyfir. Annars um Víknaheiði til Húsavíkur.
4.d. Dvalið í Húsavík, gengið til Álftavíkur og heim að bæ í Húsavík.
5.d. Gengið frá Húsavík um Nesháls til Loðmundafjarðar.
6.d. Gengið um Kækjuskörð til Borgarfjarðar.
Fararstjóri: Bryndís Snjólfsdóttir
 

7.8. - 10.8.  Víknaslóðir - Borgarfjörður eystra (4 dagar)   -  (suðursvæði)
Útivist - s: 562-1000 - utivist@utivist.is
Brottför kl. 10:00 frá Borgarfirði eystra. 0408LF12
Ferð í samvinnu við Skúla Sveinsson og fleiri á Borgarfirði eystra. Gengið frá Borgarfirði til Húsavíkur og þaðan til Loðmundarfjarðar. Frá Loðmundarfirði verður haldið um Kækjuskörð til Borgarfjarðar.


4-5. september Fjölskylduferð í Breiðuvík
Ferðafélag Fljótsdalshéraðs. 
S: 471-2000 eða falegs@simnet.is
Verð: Fullorðnir/börn 1.500/500 kr.
Mæting við Fjarðarborg á Borgarfirði eystri kl 12:00. Í Breiðuvík er gist í skála Ferðafélagsins eina nótt. Laugardeginum og sunnudeginum verður varið í stuttar gönguferðir um nágrenni skálans. Grillað saman á laugardagskvöldið. Farið til baka til Borgarfjarðar seinni part sunnudags.
Farastjóri: Kristín Björnsdóttir/Guðmundur Sveinsson Kröyer

11. september Fjarðarheiði - Loðmundafjörður um Þófadal
Ferðafélag Fljótsdalshéraðs.  S:
471-2000 eða falegs@simnet.is
Verð: 6.000 kr.
Mæting við Upplýsingamiðstöðina á Egilsstöðum kl 8:00. Gengið frá Fjarðarheiði um Vestdalsheiði, um Afréttarskarð niður Þófadal, Bárðastaðadal og að Stakkahlíð í Loðmundafirði þar sem borðaður verðu kvöldverður. Farið verður með rútu til baka til Egilsstaða um kvöldið.
Farastjóri: Þórhallur Þorsteinsson

Upplýsingar og bókanir í ferðum hjá Ferðafélagi Fljótsdalshéraðs eru hjá Ferðaskrifstofu Austurlands í síma 471-2000 eða falegs@simnet.is - www.fatravel.is  Þar er einnig tekið við pöntunum í skála Ferðafélags Fljótsdalshéraðs (Breiðuvík, Húsavík).
Styttri ferðir, s.s. dagsferðir, verða auglýstar með viku fyrirvara á heimasíðu Ferðafélags Fljótsdalshéraðs, www.egilsstadir.is/ferdafelag. Þar er einnig að finna ýmsar upplýsingar um félagið.

 

Uppfært 24.1.2004

Forsíða


©2002 hornafjordur.net