|
Fundargerðir
Borgarfjarðarhrepps eru sendar út til íbúa. Þær eru settar hér
inn með leyfi hreppsnefndar.
< < Forsíða
Fundargerðir frá 2004
Fundargerðir frá 2003
Fundargerð 21
- 17. desember 2002
Fundargerð 20 - 10. nóvember 2002
Fundargerð 19
- 4. nóvember 2002
Fundargerð 18
- 21. október 2002
Fundargerð 02.12.16
- 21
Árið 2002, mánudaginn 16. des. kom hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps
saman til fundar í Hreppsstofu kl 17:00. Til fundar mættu
hreppsnefndarmennirnir Helga, Jón Sigmar, Jakob og Baldur ásamt
sveitarstjóra. Jóna Björg í stað Kristjönu.
Fyrir var tekið:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
M.a. skýrði sveitarstjóri frá því að Skipulagsstofnun hefði samþykkt
helmingsþátttöku í kostnaði við aðalskipulag Borgarfjarðarhrepps. Þá
greindi hann frá fundi með starfsmönnum Hafnamálastofnunar um
bátahöfnina og aðstæður í henni.
2. Byggingarnefndarfundargerð 25. nóv. framlögð og samþykkt.
3. Héraðsstjórnarfundargerð 9. des. tekin til umræðu og
smáathugasemda.
4. Byggðakvóti:
Byggðakvóti "hinn nýi" er nú til úthlutunar hjá sjávarútvegsráðherra
og rann umsóknarfrestur út í dag. Sveitarstjóri sagði frá umsókn sem
hann hafði sent um úthlutun til báta á Borgarfirði til þess að reyna að
tryggja að kvótinn komi byggðarlaginu að notum.
5. Sveitarstjórnarnámskeið:
Fyrirhugað námskeið fyrir sveitarstjórnarmenn verður helgarnar
15.-16. og 22.-23. feb.
6. Bréf Álfasteins:
Álfasteinn hyggst ráða nýjan framkvæmdastjóra til starfa í janúar
n.k.
og fer fram á að hreppurinn leggi Álfasteini til leigulausa íbúð fyrir
hann í eitt ár.
Samþykkt að verða við þessu erindi með þremur atkvæðum. Tveir sátu hjá.
7. Sorpförgunargjaldskrá:
Samþykkt að lækka nokkuð sorpförgunargjöld skv. þremur hæstu flokkum
gjaldskrárinnar.
8. Fasteignagjöld 2003:
A: Lóðagjöld 2% af fasteignamati lóðar.
B: Sorphirðugjald kr 6.000 á íbúð en þar sem lítið sorp er kr 3.500.
50 pokar innifaldir í sorphirðugjaldi en aukapokar til sölu í áhaldahúsi
í heilum búntum.
C: Vatnsskattur: Á íbúðarhúsnæði 0,4% af fasteignamati að hámarki kr
10.000 og að lágmarki kr 5.000. Fjarðarborg kr 10.000, FKS kr 30.000
D: Holræsagjald: 0,13% af fasteignamati.
E: Fasteignaskattur á íbúðarhús og bújarðir 0,36%
F: Fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði 1%
G: Sorpförgunargjald: Óbreytt frá álagningu þessa árs nema FKS kr
50.000
H: Sveitarotþróagjald skv. óbreyttri gjaldskrá.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 20:30
Jón Björg Sveinsdóttir
Jakob Sigurðsson
Helga Erlendsdóttir
Jón S Sigmarsson
Baldur Guðlaugsson
Magnús Þorsteinsson ritaði fundargerð
Fundargerð
02.11.19-20
Árið 2002, þriðjudaginn 19. nóvember, var haldinn fundur í hreppsnefnd
Borgar-fjarðarhrepps, sem hófst kl 17:00 í Hreppsstofu. Allir
nefndarmenn á fundi nema Helga. Jóna Björg var í hennar stað.
Sveitarstjóri sat einnig fundinn. Fyrir var tekið:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
Greint frá nokkrum málum, sem á döfinni eru.
Jóna Björg sagði einnig lauslega frá fyrsta fundi nefndar um skóla-og
félagsþjónustu á Norðursvæði.
2. Útsvarsprósenta tekjuárið 2003 ákveðin 13,03%, sem er
leyfilegt hámark.
3. Umsagnir um lagafrumvörp:
Sveitarstjóra falið að meta hvenær ástæða er til að leggja lagafrumvörp
fyrir nefndina til umsagnar.
4. Sævarendabréf:
Ólafur Aðalsteinsson fer þess á leit við hreppsnefndina að hún mæli með
umsókn hans um leigu á Sævarenda. Hreppsnefndin samþykkir að veita
Ólafi umbeðin meðmæli. Það er álit hreppsnefndar að Ólafur Aðalsteinsson
sé fullfær til að viðhalda gögnum og gæðum jarðarinnar Sævarenda í
Loðmundarfirði enda hefur hann nú þegar þó nokkra reynslu í umhirðu
æðarvarps á Sævarenda. Einnig má benda á að Ólafur hefur áralanga
reynslu í eyðingu refa og minka sem grenjaskytta í Borgarfjarðarhreppi
5. Byggðakvóti:
Hreppsnefndin hefur ekkert við það að athuga að byggðakvóti, sem
Glettingi var úthlutað verði fluttur yfir á Haförn.
6. Byggingarnefndarfundargerð:
Fundargerð nefndarinnar frá 5. nóv. samþykkt.
7. Héraðsstjórnarfundargerð 12. nóvember lögð fram.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 19:40.
Baldur Guðlaugsson
Jóna Björg Sveinsdóttir
Kristjana Björnsdóttir
Jakob Sigurðsson
Jón S Sigmarsson
Magnús Þorsteinsson ritaði fundargerð
Fundargerð 02.11.04 -
19
Árið 2002, mánudaginn 4. nóv. var haldinn fundur í hreppsnefnd
Borgarfjarðarhrepps, sem hófst kl 17:00 í Hreppsstofu. Allir nefndarmenn
mættir ásamt sveitarstjóra.
Fyrir var tekið:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
Greint frá ýmsum málum og verkefnum sem unnið hefur verið að frá
síðasta fundi.
2. Sorpförgunargjald:
Sorpförgunargjöld bænda, útgerðarmanna og smærri atvinurekenda
ákveðin óbreytt kr 4.000 fyrir árið 2002, gjald FKS skv. 4. flokki kr
75.000.
3. Þrifnaðarsamþykkt:
Fram lögð drög að samþykkt um umgengni og þrifnað utan húss á
starfssvæði Heilbrigðisnefndar Austurlands, sem hreppsnefndin samþykkti
einróma.
4. Lóðasamningar:
Fram lagðar tillögur að tveimur nýjum lóðasamningum, sem koma í
stað eldri samninga. Hreppsnefndin er samþykk breyttum samningum.
5. Fulltrúi á aðalfund Héraðsnefndar Múlasýslna 19. nóv:
Kosinn Kristjana Björnsdóttir, Jakob Sigurðsson til vara.
6. Fjármálaráðstefna 7. og. 8. nóv.:
Kynnt ráðstefnan og helstu mál sem þar verða á dagskrá.
7. Félagsíbúðir:
Hreppsnefndin ákvað að setja í sölu á almennum markaði tvær
félagsíbúðir,
Breiðvang II og Ásbrún I. Seljist önnur hvor þeirra verður sölu á hinni
frestað til næsta árs enda verði þá komið framlag frá Varasjóði
húsnæðismála í þá fyrri.
Lagt fram bréf frá Ólafi Aðalsteinssyni sem tekið verður fyrir á næsta
fundi.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 20:30
Baldur Guðlaugsson
Helga Erlendsdóttir
Kristjana Björnsdóttir
Jakob Sigurðsson
Jón S Sigmarsson
Magnús Þorsteinsson, fundarritari -
Fundargerð
02.10.21-18
Árið 2002, mánudaginn 21.
okt., var fundur í hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps sem hófst kl. 17:00 í
Hreppsstofu. Á fundinum voru hreppsnefndarmennirnir Kristjana, Jón
Sigmar, Baldur og Jakob ásamt sveitastjóra. Helga tilkynnti forföll og
ekki náðist í varamann. Fyrir var tekið:
1. Skýrsla
sveitarstjóra:
Fram lagður samningur um eftirlaun sveitarstjóra, sbr. fundargerð
16. sept. sl. Nefndarmenn höfðu ekkert við hann að athuga og fólu
oddvita að undirrita hann.
2. Greinargerð um
umhverfismál:
Oddviti og Jón Sigmar tóku að sér að gera tillögu að greinargerð.
3. Vegamál:
Hreppsnefndin ítrekar fyrri samþykktir nefndarinnar um
forgangsröðun í vegagerð á Borgarfjarðarvegi. Þá telur nefndin
algerlega óviðunandi að í núgildandi langtímaáætlun er ekki gert ráð
fyrir neinni viðbót á bundnu slitlagi á Borgarfjarðarvegi. Málið verður
tekið upp á vettvangi Héraðsstjórnar.
4. Útgerðarmál:
Framlögð greinargerð um útgerð og fiskvinnslu á Borgarfirði, sem
send var sjávarútvegsráðherra o.fl. sbr. síðustu fundargerð.
Fjallað var talsvert um meðferð byggðakvótans og taldi hreppsnefndin að
vegna eftirlitsskyldu nefndarinnar yrði ekki hjá því komist að leita
eftir því við Byggðastofnun að hún veiti nefndinni þær upplýsingar sem
hún hefur um meðferð fiskvinnslukvótans í Borgarfjarðarhreppi undanfarin
ár. ( Baldur lýsti sig vanhæfan við umfjöllun um byggðakvótann).
5.
Héraðsstjórnarfundargerð 17. okt.:
Hreppsnefndin er samþykk því að fresta endurskoðun samnings um
félagsþjónustu á Héraðssvæði. Nefndin er einnig samþykk einni
almannavarnarnefnd í umdæmi Sýslumannsins á Seyðisfirði.
6.
Héraðsstjórnarsamningur:
Hreppsnefndin sér ekki ástæðu til að óska eftir endurskoðun á
samningnum.
Fleira ekki gert. Fundi
slitið 20:30
Baldur Guðlaugsson
Kristjana Björnsdóttir
Jakob Sigurðsson
Jón S. Sigmarsson
Magnús Þorsteinsson, fundarritari.
Hunda- og
kattaleyfisgjöld eru nú fallin í gjalddaga.
Eigendur eru beðnir að greiða þau á Hreppsstofu
mánudaginn 28. okt. kl 14 - 16.
Þá fara nýskráningar einnig fram.
|