|
Fundargerðir
Borgarfjarðarhrepps eru sendar út til íbúa. Þær eru settar hér
inn með leyfi hreppsnefndar.
< < Forsíða
Fundargerðir frá 2004
Fundargerðir frá 2002
Fundargerð 24 - 15.
desemer 2003
Fundargerð 23 - 1. desember
2003
Fundargerð 22 - 24. nóvember
2003
Fundargerð 21 - 17. nóvember
2003
Fundargerð 20 - 3. nóvember
2003
Fundargerð 19 - 23. október 2003
Fundargerð 18
- 20. október 2003
Fundargerð 17
- 6. október 2003
Fundargerð 16 - 15. september 2003
Fundargerð 15 - 3. september 2003
Fundargerð 14
- 11. ágúst 2003
Fundargerð 13
- 3. júlí 2003
Fundargerð 12 - 2. júní 2003
Fundargerð 11
- 12. maí 2003
Fundargerð 10 - 28. apríl 2003
Fundargerð 9 - 7. apríl 2003
Fundargerð
8 - 17. mars 2003
Fundargerð 7 - 3. mars 2003
Fundargerð 6 - 17. febrúar 2003
Fundargerð 5 - 10. febrúar 2003
Fundargerð 4 - 3.
febrúar 2003
Fundargerð 3 - 27.
janúar 2003
Fundargerð 2 - 20.
janúar 2003
Fundargerð 1 - 6. janúar
2003
Fundargerð 03.12.15 - 24
Árið
2003, mánudaginn 15. desember, kom hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps saman
til fundar í Hreppsstofu kl 17:00. Á fundinum voru Kristjana, Jóna
Björg, Jón Sigmar, Jakob og Baldur ásamt sveitarstjóra. Þetta gerðist á
fundinum:
1. Skýrsla
sveitarstjóra:
Sveitarstjóri greindi frá ýmsum málum sem
hann hafði unnið að frá síðasta fundi. Kristjana oddviti sagði frá því
sem hún hafði haft afskipti af í vikufjarveru sveitarstjóra.
2. Nefndalaun:
Nefndalaun í Borgarfjarðarhreppi ákveðin
kr 3.000 og tvöfalt til formanna enda séu fundir minnst tveir árlega og
fundargerðum skilað til hreppsnefndar.
3. Staðardagskrá
21:
Samb. ísl. sveitarfélaga býður nú upp á
aðstoð við fámenn sveitarfélög við að koma sér upp Staðardagskrá 21.
Hreppsnefndinni finnst verkefnið áhugavert og mun huga að þátttöku í
því.
4. Nýi kvóti:
Sjávarútvegsráðuneytið hefur staðfest
tillögu hreppsnefndar Borgarfjarðarhrepps um skiptingu byggðakvótans
milli einstakra báta.
5. Njarðvíkurkvóti:
Andrés Hjaltason fer þess á leit að
Borgarfjarðarhreppur kaupi af honum um það bil 50 ærgilda greiðslumark í
sauðfé gegn því að þau haldist áfram á jörðinni Njarðvík.
Hreppsnefndin telur ekki forsendur til að verða við þessu erindi.
Fleira ekki gert. Fundi
slitið kl 19:15
Baldur Guðlaugsson
Jóna Björg Sveinsdóttir
Kristjana Björnsdóttir
Jakob Sigurðsson
Jón S Sigmarsson
Magnús Þorsteinsson, fundarritari
Fundargerð 03.12.01 - 23
Árið 2003, mánudaginn
1. des. kom hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps saman á fund í Hreppsstofu
kl 17:00. Fundarmenn: Baldur, Jóna Björg, Kristjana, Jakob og Jón Sigmar
ásamt sveitarstjóra. Þetta gerðist á fundinum:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
M.a. greint frá því að tillaga um úthlutun hreindýraarðs 2003 hefur
borist hreppnum og mun liggja frammi á Hreppsstofu.
2. Svæðisskipulag:
Fljótsdalshreppur hefur gengið frá aðalskipulagi sínu 2002 - 2014.
Skipulagið krefst óverulegra breytinga á Svæðisskipulagi Héraðssvæðis
1998 - 2010,
sem hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps er samþykk fyrir sitt leyti.
3. Héraðsstjórnarfundargerð 27. nóv. lögð fram til kynningar.
4. Búfjáreftirlit:
Lögð fram tillaga að samstarfssamningi um búfjáreftirlit á Héraðssvæði
ásamt niðurjöfnunarskrá, sem hreppsnefndin samþykkti einróma.
5. Fasteignagjöld 2004:
· Lóðagjöld 2% af fasteignamati lóðar.
· Sorphreinsunargjald kr 8.000 á íbúð en þar sem lítið sorp er kr 5.000.
50 pokar innifaldir í sorphreinsunargjaldi. Aukapokar til sölu í
áhaldahúsi í heilum búntum.
· Sorpförgunargjald skv. óbreyttri gjaldskrá: Bændur, útgerðarmenn o.fl.
kr 4.000, FKS kr 50.000
· Sveitarotþróagjald skv. óbreyttri gjaldskrá, kr 3.000 á rotþró.
· Vatnsskattur: Á íbúðarhúsnæði 0,4% af fasteignamati að hámarki kr
10.000 og að lágmarki kr 5.000. Fjarðarborg kr 10.000, FKS kr 30.000
· Holræsagjald: 0,13% af fasteignamati.
· Fasteignaskattur á íbúðarhús og bújarðir 0,36%
· Fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði 1%
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 18:45
Undirskriftir
Magnús Þorsteinsson
- fundarritari -
Fundargerð 03.11.24 - 22
Árið 2003, mánudaginn
24. nóv. kom "kvótahreppsnefnd" Borgarfjarðarhrepps saman á fund í
Hreppsstofu kl 17:00. Á fundinum voru Kristjana, Jakob og Jóna Björg
ásamt sveitarstjóra. Fyrir var tekið eina mál fundarins:
Úthlutun á byggðakvóta:
Við lok umsóknarfrests kl 16:00, 24. nóv. höfðu borist sjö umsóknir, þar
af ein þar sem umsækjandi gerði fyrirvara um að hann treysti sér ekki
til að ábyrgjast að byggðakvótanum verði landað til vinnslu á
Borgarfirði.
Umsóknin uppfyllir ekki sett skilyrði um úthlutun byggðakvótans og
verður hreppsnefndin því að hafna henni.
Hreppsnefndin samþykkti síðan að leggja til við sjávarútvegsráðuneytið
að byggðakvóta Borgarfjarðarhrepps, 20,7 þorskígildislestum verði skipt
milli eftirtalinna sex báta, 3,45 þorskígildislestir til hvers:
Sæfaxi sknr 2465, Eydís sknr 2132, Sædís sknr 2508, Teista sknr 6827,
Góa sknr 6605 og Baui frændi sknr 6030.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 18:00
Undirskriftir
Magnús Þorsteinsson
fundarritari
Fundargerð 03.11.17 - 21
Árið 2003, mánudaginn 17.
nóv. var haldinn hreppsnefndarfundur, sem hófst kl 17:00 í Hreppsstofu.
Fundarmenn: Kristjana, Jakob, Jón Sigmar, Baldur og Jóna Björg ásamt
sveitarstjóra. Fyrir var tekið:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
Lögð fram gögn um ehf-væðingu o.fl. Oddviti sagði frá fjármálaráðstefnu
og Álfasteinsfundi. Samþykkt að framlengja ráðningarsamning
sveitarstjóra til miðs árs 2004.
2. Útsvarsprósenta tekjuárið 2004 ákveðin 13,03%, sem er
hámarksálagning.
3. Aðalfundur Héraðsnefndar Múlasýslna:
Fulltrúi Borgarfjarðarhrepps kosinn Kristjana Björnsdóttir og Baldur
Guðlaugsson til vara.
4. Gjaldskrá HAUST:
Ný gjaldskrá staðfest af hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps.
5. Hafna- og sjóvarnaáætlun 2005 - 2008:
Að athuguðu máli telur hreppsnefndin vænlegra að stefna að lengingu
Nýju-bryggju í bátahöfn í átt að Hólma í stað flotbryggju á svæðinu, sem
er á framkvæmdaáætlun 2006. Einnig verður sótt um sjóvarnafé til að
verja Fiskmóttöku og Karlfjörubakka.
6. Skipulag/Náttúruverndaráætlun:
· Hreppsnefndin fellst fyrir sitt leyti á tillögu í drögum að
Náttúruverndaráætlun 2004 - 2008 um friðlýsingu sjaldgæfra plöntutegunda
í Borgarfjarðarhreppi. Nefndin telur þetta raunhæft fyrsta skref í átt
að hugsanlegum frekari friðlýsingum í sveitarfélaginu.
· Stefnt er að því að hefja fornleifaskráningu í hreppnum í tengslum við
vinnu að aðalskipulagi Borgarfjarðarhrepps 2004 - 2016. Í framhaldi af
fornleifaskráningunni verði leitað samstarfs við landeigendur í Víkum og
Loðmundarfirði um friðlýsingu yngri búsetuminja á svæðinu.
· Í aðalskipulaginu verði Víkur og Loðmundarfjörður skilgreind sem
útivistarsvæði með göngu - og jeppaleiðum.
( Þá voru ræddar hugmyndir sveitarstjóra um friðlýsingu Loðmundarfjarðar
hvað varðar lausagöngu búfjár.)
Hér viku Baldur og Jón Sigmar af fundi.
7. Byggðakvóti hinn nýi:
Sjávarútvegsráðuneytið hefur fallist á eftirfarandi tillögur
hreppsnefndar Borgarfjarðarhrepps um úthlutun aflaheimilda, sbr. 4. gr.
reglugerðar nr 596, 8. ágúst 2003, um úthlutun á 1.500
þorskígildislestum til stuðnings sjávarbyggðum, með smá
orðalagsbreytingum:
1. Hreppsnefndin
auglýsir eftir umsóknum um Byggðakvóta.
2. Byggðakvótanum verður skipt jafnt milli þeirra báta sem
skráðir voru og gerðir út frá Borgarfirði í upphafi fiskveiðiársins.
3. Þeir sem fá úthlutað byggðakvóta skuldbindi sig til að leggja
hann upp til vinnslu á Borgarfirði. Þá skuldbindi þeir sig ennfremur til
að selja ekki eða leigja frá sér aflaheimildir á fiskveiðiárinu umfram
það sem þeir leigja eða kaupa til sín.
4. Telji einhver, sem hefur fengið til sín byggðakvóta, sér
nauðsynlegt að láta frá sér meiri aflaheimildir en þeir fá til sín sbr.
3. tl. þá skal viðkomandi gera fyrir lok maímánaðar sveitarstjórn grein
fyrir því og afsala sér jafnframt byggðakvótanum, sem þá verður skipt
milli annarra báta sem úthlutun hafa fengið.
Til úthlutunar eru 20,7
þorskígildistonn í Borgarfjarðarhreppi. Umsóknarfrestur er til kl 16:00
mánudaginn 24. nóv.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 20:00
Undirskriftir
Magnús
Þorsteinsson
fundarritari
Fundargerð 03.11.03 - 20
Árið 2003, mánudaginn
3. nóv. kom hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps saman til fundar í
Hreppsstofu kl 17:00. Fundarmenn: Kristjana, Jón Sigmar, Jakob, Baldur
og Jóna Björg ásamt sveitarstjóra. Þetta gerðist á fundinum:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
Lítillega greint frá Hafnafundi, Jöfnunarsjóðsframlögum,
klæðingarkostnaði og snjómokstursreglum. Sunnudagur bætist nú við
snjómokstursdaga á Vatnsskarði.
2. Tjaldsvæði/Ferðamannaaðstaða:
Lagt fram yfirlit yfir tekjur og gjöld á tjaldsvæðinu í sumar. Talsvert
vantaði á að tekjurnar stæðu undir rekstrarkostnaði. Hreppsnefndin ákvað
að hækka gistigjöldin í 750 kr. Óbreytt gjaldskrárákvæði að öðru leyti.
3. Héraðsstjórnarfundargerð 17. okt. lögð fram til kynningar.
4. Minjasafn Austurlands:
Oddviti, sem er í stjórn Minjasafnsins gerði grein fyrir fjárhagsáætlun
safnsins o.fl.
5. Skipulag/Náttúruverndaráætlun:
Fjallað um friðunarhugmyndir í drögum að Náttúruverndaráætlun og
skilgreiningu Víkna- og Loðmundarfjarðar í aðalskipulagi
Borgarfjarðarhrepps 2004 - 2014. Stefnt að ályktun um málið á næsta
fundi.
6. Þriggja ára fjárhagsáætlun 2004 - 2006:
Áætlunin samþykkt einróma við síðari umræðu. Skatttekjur eru áætlaðar 44
- 46 millj. árlega og heildartekjur 80 - 82 millj. Rekstrargjöld 70 - 75
millj.
7. Bréf Helga Arngrímssonar:
Hreppsnefndin harmar misskilning sem svarbréf hreppsnefndar dagsett
11.09. 2003 til ferðamálahóps Borgarfjarðar hefur valdið. Hreppsnefnd
lýsir ánægju með störf hópsins og ítrekar að hún metur þau mikils.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 22:30
Undirskriftir
MÞ ritaði
fundargerð
Fundargerð 03.10.23 - 19
Árið 2003,
fimmtudaginn 23. okt. var haldinn fundur í hreppsnefnd
Borgarfjarðarhrepps kl 17:00 í Hreppsstofu. Á fundinum voru Baldur,
Kristjana, Jakob og Jón Sigmar ásamt sveitarstjóra og Einari E Sæmundsen
hjá Landmótun, sem gerði grein fyrir framvindu og stöðu vinnunnar við
aðalskipulag fyrir Borgarfjarðarhrepp. Hann lagði fram fyrstu drög að
greinargerð með skipulaginu og drög að uppdráttum, annarsvegar af
hreppnum öllum og hins vegar af Bakkagerði og bátahöfninni við
Hafnarhólma í smærri mælikvarða. Þá gerði hann grein fyrir umfjöllun á
nýafstöðnu umhverfisþingi um tillögu að náttúruverndaráætlun 2004 -2008.
Í framhaldi af því var rætt um tillögu að friðlýsingu plantna í
Borgarfjarðarhreppi og drepið á friðlýsingarhugmyndir í Víkum og
Loðmundarfirði, sem verða til nánari umfjöllunar á næsta
hreppsnefndarfundi.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 19:00
Undirskriftir
MÞ ritaði fundargerð
Fundargerð 03.10.20 - 18
Árið 2003, mánudaginn
20. okt. var fundur í hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps sem hófst kl 17:00
í Hreppsstofu. Fundarmenn: Baldur, Jóna Björg, Jón Sigmar, Kristjana og
Jakob ásamt sveitarstjóra. Fyrir var tekið:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
M.a. fjallað um kaup á notuðum slökkvibíl frá Þýskalandi, sem samþykkt
voru af nefndinni.
2. Hafnafundur/Fjármálaráðstefna:
Gert er ráð fyrir að sveitarstjóri fari á hafnafundinn 31. okt. og
oddviti á fjármálaráðstefnuna 5. og 6. nóv. n.k.
3. Hafna- og sjóvarnaáætlun:
Hugað að tillögugerð vegna næstu áætlana fyrir árin 2005 - 2008.
4. Félags- og skólaþjónusta:
Fundur stýrihóps Norðursvæðisverkefnisins og oddvita Fella-, Fljótsdals-
og Borgarfjarðarhreppa 18. september 2003 tók undir tillögu nefndar um
skóla- og félagsþjónustu frá 13. júní 2003 um að stofnuð verði
sameiginleg skóla- og félagsþjónusta fyrir sveitarfélögin átta á
norðursvæði Austurlands.
Nú þegar verði hafin vinna við að koma á laggirnar sameiginlegri
félagsþjónustu og barnavernd á svæðinu en skólaþjónustan falli þar undir
haustið 2005.
Hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps er samþykk þessum áformum enda eru þau í
samræmi við bókun nefndarinnar frá 12. mai 2003. Nefndin telur að
Héraðsstjórn, sem er stjórnunarnefnd félagsþjónustu á Héraðssvæði, hafi
fullt umboð til að hefja viðræður við þau sveitarfélög önnur á
Norðursvæði sem vilja eiga aðild að félagsþjónustunni.
5. Þriggja ára fjárhagsáætlun 2004 - 2006 samþykkt við fyrri
umræðu.
6. Byggðakvóti hinn nýi:
Hér viku Baldur og Jón Sigmar af fundi.
Hreppsnefndin ákvað að nýta heimild í reglugerð um byggðakvótann til að
setja reglur um úthlutun hans á Borgarfirði og verða ráðuneytinu sendar
tillögur um þær til samþykktar. Í hlut Borgarfjarðar koma 20,7
þorskígildistonn.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 20:00.
Undirskriftir
Magnús
Þorsteinsson
ritaði fundargerð
Fundargerð 03.10.06 - 17
Árið 2003, mánudaginn
6.okt. kom hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps saman til fundar í
Hreppsstofu kl 17:00. Fundarmenn: Baldur, Jóna Björg, Kristjana, Jakob
og Jón Sigmar ásamt sveitarstjóra. Þetta gerðist á fundinum:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
M.a. greint frá framlengingu tímafresta í reglugerð um byggðakvóta hinn
nýja um hálfan mánuð.
2. Atvinnuaukningarsjóður:
Ein lánsumsókn barst frá Birni Gíslasyni vegna vörubílskaupa. Þar sem
bíllinn er skráð eign fjármögnunarleigu uppfyllir umsóknin ekki skilyrði
sjóðsreglnanna og verður því að hafna henni enda nýlegt fordæmi um
höfnun af sömu ástæðu.
3. Vöruflutningastyrkir:
Tvær umsóknir bárust; frá FKS og KHB. Samþykkt að styrkja FKS með kr 350
þús og KHB kr 150 þús.
4. Fulltrúi á aðalfund Skólaskrifstofu kosinn Margrét Hjarðar og
Kristjana
Björnsdóttir til vara.
5. Héraðsstjórnarfundargerð 16. sept. lögð fram til kynningar.
6. Fundargerð stýrihóps Norðursvæðis:
Þar kemur m.a. fram að stefnt skuli að stofnun sameiginlegs brunasamlags
á svæðinu 1. janúar 2004.
7. Þriggja ára fjárhagsáætlun:
Sveitarstjóri lagði fram fyrstu drög að (þriggja ára) fjárhagsáætlun
Borgarfjarðarhrepps 2004 - 2006.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl 21:00
Undirskriftir
Magnús Þorsteinsson
fundarritari
Fundargerð 03.09.15 - 16
Árið 2003, mánudaginn
15. sept. var haldinn fundur í hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps, sem
hófst kl 17:00 í Hreppsstofu. Á fundinum voru Kristjana, Jóna Björg,
Baldur, Jón Sigmar og Jakob ásamt sveitarstjóra. Fyrir var tekið:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
Minnst m.a. á Hrafnárbrú, Álfastein o.fl. Þá var upplýst að 1. apríl
n.k. verður tekin upp fimm daga póstþjónusta á Borgarfirði, sem krefst
þá póstferða alla virka daga vikunnar frá Egilsstöðum.
2. Vetrarsamgöngustyrkur:
Borgarfjarðarhreppur hefur fengið til ráðstöfunar 500 þús. krónur af
fjárlagaliðnum Vetrarsamgöngur og vöruflutningar. Hreppsnefndin mun
úthluta þessu fé til þeirra sem mestan flutningskostnað þurfa að greiða
að undangenginni auglýsingu.
3. Skólahaldsáætlun:
Lögð fram áætlun um skólahaldið í Grunnskóla Borgarfjarðar 2003/2004,
sem hreppsnefndin hefur ekkert við að athuga.
4. Héraðsstjórnarfundargerð 12.08.2003 lögð fram til kynningar.
5. Nettengingar:
Lagðir fram minnispunktar sveitarstjóra um ýmsa valkosti, sem hugsanlega
gætu staðið til boða á næstunni í Borgarfirði. Fylgst verður með málinu
áfram, einkum ADSL tengingu.
6. Kjarvalsstofa:
Farið yfir ársreikning Kjarvalsstofu fyrir stofnárið 2002 og greint
lítillega frá starfseminni í ár.
7. Byggðakvóti hinn gamli:
Baldur og Jón Sigmar sátu fundinn í upphafi umræðu um þennan dagskrárlið
og svöruðu fyrirspurnum en véku síðan af fundi vegna vanhæfis.
Hreppsnefndin hefur eftirlitsskyldu um meðferð byggðakvótans skv.
upphaflegum samningi um meðferð hans. Meðferð heimabáta á kvótanum
síðasta fiskveiðiár virðist í fullu samræmi við samninga. Nefndin hefur
ekki aðgang að upplýsingum um viðskipti FKS og Vísis og telur að
Byggðastofnun verði sjálf að leita eftir þeim.
8. Byggðakvóti hinn nýi:
Á næstunni er væntanleg úthlutun sjávarútvegsráðuneytisins til einstakra
byggðarlaga og mun þá hreppsnefndin fjalla um málið að nýju.
9. Atvinnuaukningarsjóður:
Minnt er á eindaga umsókna um lán hjá Atvinnuaukningarsjóði 1. okt. n.k.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 20:30
Undirskriftir
Magnús Þorsteinsson
ritaði fundargerð
Fundargerð 03.09.01 - 15
Árið 2003, mánudaginn
1. sept. kom hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps saman til fundar í
Hreppsstofu kl 17:10. Á fundinum voru Bjarni, Jón Sigmar, Kristjana,
Jóna Björg og Baldur ásamt sveitarstjóra. Fyrir var tekið:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
Greint m.a. frá Bláfánaúttekt, vatnsveitu, Álfasteini, Ásbrún I og II og
Soroptimistafélagsstofnun. Lögð fram styrkbeiðni Ferðamálahópsins vegna
endurútgáfu á upplýsingabæklingi. Oddvita falið að svara erindinu.
2. Byggðakvóti hinn nýi:
Lögð fram reglugerð um úthlutun á kvótanum og bráðabirgðayfirlit um
aflamark og afla á fiskveiðiárinu 2002/2003. Verður tekið fyrir á næsta
fundi.
3. Nettengingar:
Að tilmælum Helga Arngrímssonar hefur verið leitað upplýsinga um
nettengingar o.fl. en vitneskja er of lítil enn sem komið er. Verður í
athugun áfram.
4. Erindi UMFB:
UMFB óskar eftir viðræðum við hreppsnefndina um rekstrarfyrirkomulag
félagsheimilisins Fjarðarborgar. Hreppsnefnd fagnar frumkvæði UMFB um
málefni Fjarðarborgar og tilnefnir oddvita til viðræðna af hálfu
hreppsins.
5. Ferðamálastefna:
Lögð fram skýrsla um nýja stefnu í ferðamálum á Austurlandi.
6. Minningargjöf:
Bræðurnir Þorsteinn og Einar Þórir Guðmundssynir hafa gefið
Borgarfjarðarhreppi Kjarvalsmynd til minningar um foreldra sína Soffíu
Þorsteinsdóttur og Guðmund Einarsson, Steinholti.
Fleira ekki gert. Fundi
slitið kl 20:45
Baldur Guðlaugsson
Jóna Björg Sveinsdóttir
Bjarni Sveinsson
Jón S Sigmarsson
Kristjana Björnsdóttir
Magnús Þorsteinsson - fundarritari -
Fundargerð
03.08.11 - 14
Árið 2003, mánudaginn 11. ágúst var haldinn fundur í hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps, sem hófst kl 17:00 í Hreppsstofu. Á fundinum voru hreppsnefndarmennirnir Kristjana, Jakob, Jón Sigmar, Baldur og Bjarni Sveinsson varamaður ásamt sveitarstjóra. Þetta gerðist á fundinum:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
Drepið m.a. á fjárhagsáætlun 2003, sem nú hefur verið færð í fyrirskipað form.
Þá var gerð grein fyrir sérfræðingatöxtum og minnst á ársskýrslu, íbúðamál, áhaldahúsbíl og þemafund.
2. Fulltrúi á aðalfund SSA kosinn Kristjana Björnsdóttir. Jakob Sigurðsson til vara.
3. Fundargerðir skólanefndar 2. sept. 2002 og 2. júlí 2003.
4. Fjallskil 2003:
Borgarfjörður:
a) Fjallskilastjóri var kosinn Jón Sigmar Sigmarsson
b) 30 kindur verða í dagsverki
c) Gangnastjórar verða þeir sömu og í fyrra
d) Landbúnaðarnefnd falið að jafna niður dagsverkum á bændur
og ákveða gangnadaga.
Loðmundarfjörður:
Fjallskil verða þar með sama hætti og undanfarin ár
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl
18:55
Baldur Guðlaugsson
Bjarni Sveinsson
Kristjana Björnsdóttir
Jón S Sigmarsson
Jakob Sigurðsson
Magnús Þorsteinsson ritaði fundargerð
Fundargerð
07.07.03 - 13
Árið 2003, mánudaginn 7. júlí kom hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps saman til fundar í Hreppsstofu kl 17:00. Á fundinum voru Kristjana, Jón Sigmar, Jakob og Baldur ásamt sveitarstjóra. Þetta gerðist á fundinum:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
Talað um ársskýrslu, klæðingu, sveitarotþrær, leiguíbúðir og Bláfánann.
Samþykkt að greiða þátttakendum á slökkviliðsnámskeiði kr 5.000 á dag í laun.
2. Oddvitakosning:
Oddviti til eins árs var kjörinn Kristjana Björnsdóttir með þremur atkvæðum, tveir seðlar voru auðir. Varaoddviti var kjörinn Baldur Guðlaugsson með tveimur atkvæðum, tveir seðlar auðir og einn ógildur. Fundartími hreppsnefndarfunda óbreyttur næsta ár. Magnús féllst á að gegna áfram starfi sveitarstjóra fyrst um sinn og fékk leyfi frá hreppsnefndarstörfum sama tímabil.
3. Héraðsstjórnarfundargerð 23.06. lögð fram til kynningar svo og
rekstrarreikningur Héraðsstjórnar Héraðssvæðis.
4. Húsaleigusamningur v/skóla:
Lagður fram samningur sem tekur mið af breyttum og minnkuðum afnotum skólans af Fjarðarborg, sem hreppsnefndin er sátt við fyrir sitt leyti.
5. Tjaldsvæðisgjaldskrá:
Samþykkt að hafa óbreytta gjaldskrá frá fyrra ári.
6. Borgarfjarðarhöfn:
Hreppsnefndin samþykkir einróma að rekstrarform Borgarfjarðarhafnar verði höfn án sérstakrar hafnarstjórnar í eigu sveitarfélagsins ( sem er óbreytt rekstrarfyrirkomulag).
Kynnt ný gjaldskrá samgönguráðuneytisins fyrir hafnir, sem gilda mun næsta tólf mánuði en að þeim tíma liðnum verður gjaldskrá á höndum hafnarstjórnanna sjálfra. Hækkun afla- og bryggjugjalda er um 60% enda gert ráð fyrir að hafnarsjóðir standi að mestu sjálfir undir framkvæmdakostnaði framvegis.
7. Skipulag:
a) Tillaga um breytingu á aðalskipulagi hvað varðar legu vegar sunnan þéttbýlis á Bakkagerði hefur fengið lögformlega meðferð. Engar athugasemdir bárust. Hreppsnefndin samþykkir því skipulagsbreytinguna, sem verður send ráðherra til staðfestingar.
b) Tjaldsvæðisskipulag. Lögð fram tillaga Landmótunar að skipulagi tjaldsvæðisins og húsbílastæða utan við það.
c) Þemafundur: Stefnt að þemafundi um Víkur og Loðmundarfjörð laugardaginn 30. ágúst n.k.. Nokkrum aðilum verður sent bréf og óskað eftir þátttöku þeirra í fundinum.
Magnús Þorsteinsson ritaði fundargerð og hvarf nú af fundi.
Oddviti tók við ritun fundargerðar.
8. Stjórnsýslukæra v/hreindýraarðs:
Umhverfisráðuneytið óskar eftir umsögn Borgarfjarðarhrepps vegna stjórnsýslukæru Magnúsar Þorsteinssonar. Hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps telur kæru Magnúsar Þorsteinsonar réttmæta. Nefndin er sammála um að úthlutunarreglur þær sem hreindýraráð virðist hafa notað við úthlutun arðs árið 2002 þarfnast verulegrar endurskoðunar og telur nefndin eðlilegt að landstærð hafi meira vægi í heildarúthlutun. Þá telur nefndin sjálfgefið að í þeim hreppum þar sem nákvæm landstærð jarða liggur fyrir séu þær tölur lagðar til grundvallar útreikninga í stað þess að nota huglægt mat eins og nú virðist notað til að skipa jörðum í stærðarflokka, sem hlaupið geta á tugum prósenta. Við skoðun á úthlutun hreindýraarðs í Borgarfjarðarhreppi árið 2002 blasir við hróplegt ósamræmi milli einstakra jarða, eins og skýr dæmi eru um í bréfi Magnúsar til hreindýraráðs frá 11.12.2002.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 23:20
Kristjana Björnsdóttir
Baldur Guðlaugsson
Jakob Sigurðsson
Jón S Sigmarsson
Fundargerð
03.06.02 - 12
Árið 2003, mánudaginn
2.júní, kom hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps saman til fundar í
Hreppsstofu kl 17:00. Á fundinum voru Helga, Jakob, Kristjana, Baldur og
Jón Sigmar ásamt sveitarstjóra. Þetta gerðist á fundinum:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
Minnst var m.a. á Bláfánann, virðisaukaskatt, aukaframlag v/grunnskóla,
vinnuskóla, þriggja ára fjárhagsáætlun og húsaleigu í Þórshamri. Um
vegabætur var gerð svofelld bókun:
"Vegna áforma Vegagerðarinnar að leggja klæðingu á Borgarfjarðarveg á
Eyjum, samþykkir hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps lántöku allt að kr 10
milljónir, sem endurgreiðist af fjárveitingu í Njarðvíkurskriður 2005."
2. Ársreikningur Borgarfjarðarhrepps 2002-Síðari umræða
Helstu
niðurstöðutölur:Heildartekjur A-hluta 59.178.270
Heildartekjur A-hluta án fjármagnsliða 50.759.845
Heildartekjur A og B hluta 61.371.412
Heildargjöld A og B- hluta án fjármagnsliða 57.072.851
Rekstrarniðurstaða A- hluti 8.845.104
Rekstrarniðurstaða A og B-hluta 2.634.793
Skuldir og skuldbindingar A-hluta 20.562.302
Skuldir og skuldbindingar A og B-hluta 65.064.611
Eigið fé A-hluta
105.124.034
Eigið fé A og B-hluta 108.662.128
Ársreikningurinn
samþykktur einróma.
3.
Héraðsstjórnarfundargerðir 19.05. og 26.05. lagðar fram til
kynningar.
4.
Náttúruverndaráætlun 2003 - 2008:
Umhverfisstofnun sendir drög að náttúruverndaráætlun og óskar eftir
skriflegum og rökstuddum athugasemdum. Af þessu tilefni bendir
hreppsnefndin á að aðalskipulag Borgarfjarðarhrepps 2003 - 2015 er nú í
vinnslu, þ. á m. framtíðarskipan náttúruverndar, einkum í Víkum og
Loðmundarfirði. Nefndin áskilur sér rétt til að koma á framfæri
athugasemdum við Náttúruverndaráætlunina þegar skipulagið er komið
lengra á veg.
5. Jökulsá:
Greint frá viðræðum við Þorstein Kristjánsson um Jökulsárland, sbr.
síðustu fundargerð. Málið verður í athugun áfram.
6. Kjörstjórnarlaun ákveðin kr 15.000,- til hvers
kjörstjórnarmanns og kr 10.000,- til
dyravarðar.
7. Aðalskipulag Fljótsdalshrepps lagt fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 21:30
Baldur Guðlaugsson
Helga Erlendsdóttir
Kristjana Björnsdóttir
Jakob Sigurðsson
Jón Sigmar Sigmarsson
Magnús Þorsteinsson sveitarstjóri
Fundargerð 03.05.12
- 11
Árið 2003, mánudaginn
12. mai var haldinn fundur í hreppsnefnd Borgarfjarðar-hrepps, sem hófst
kl 17:00 í Hreppsstofu. Á fundinum voru Helga, Kristjana, Jón Sigmar og
Baldur ásamt sveitarstjóra. Jóna Björg í stað Jakobs. Þetta gerðist á
fundinum.
1. Félags- og skólaþjónusta:
Framhaldið umræðu um málið, sbr. síðustu fundargerð.
Hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps telur framlagðar hugmyndir um samþætta
félags- og skólaþjónustu ásamt barnavernd á norðursvæði Austurlands
áhugaverðar og álítur að samrekstur þessarar þjónustu mundi verða til
bóta.
Nefndin er hlynnt samstarfi um barnavernd og félagsþjónustu á svæðinu en
finnst tæpast raunhæft að ætla að samstaða náist um að fella
skólaþjónustuna þar undir að svo stöddu. Tilraunir í þá veru gætu tafið
og jafnvel komið í veg fyrir að samstarf takist um barnaverndina og
félagsþjónustuna, sem æskilegt væri að stofna byggðasamlag um sem fyrst.
Hugað yrði að yfirtöku skólaþjónustunnar síðar.
Jafnframt yrði þá skoðað hvort vilji væri til að samþætta alla félags-
og skólaþjónustu ásamt barnavernd á starfssvæði Skólaskrifstofu
Austurlands.
Nefndin gerir ekki athugasemdir við tillögur um faglega stjórn
stofnunarinnar en bendir á að setja þarf henni stjórnarnefnd.
2. Skipulagsbreyting:
Fram lögð tillaga Einars E Sæmundsen hjá Landmótun um breytingu á legu
vegar sunnan við þéttbýlið í Bakkagerði. Tillagan samþykkt einróma og
verður auglýst að fengnu samþykki Skipulagsstofnunar.
3. Jökulsá:
Þorsteinn Kristjánsson fer fram á að fá keyptan hreppshlutann í Jökulsá
með nýjum landamerkjum. Oddvita og sveitarstjóra falið að ræða málið við
Þorstein.
4. Ársreikningur 2002 samþykktur að lokinni fyrri umræðu.
5. Skýrsla sveitarstjóra:
M.a. samþykkt að styrkja fararstjóra í skólaferðalagi með kr 40 þús.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 20:00
Baldur Guðlaugsson
Helga Erlendsdóttir
Kristjana Björnsdóttir
Jóna Björg Sveinsdóttir
Jón Sigmar Sigmarsson
Magnús Þorsteinsson - sveitarstjóri -
Fundargerð 03.04.28
- 10
Árið 2003, mánudaginn
28. apríl, kom hreppsnefnd Borgarjarðarhrepps saman til fundar í
Hreppsstofu kl 17:00. Á fundinum voru Kristjana, Jakob, Jón Sigmar og
Baldur. Jóna Björg í stað Helgu. Sveitarstjóri var einnig á fundinum.
Fyrir var tekið:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
Drepið var á sameiningarmál, bláfánann, rekstarframlög v/félagsíbúða,
tónlistarkennslu, félagsráðgjafa, frystihús, brunavarnir og
skipulagsvinnu. Undir þessum dagskrárlið gerði oddviti einnig grein
fyrir málefnum Kjarvalsstofu og stöðu húsaleigusamnings við Fjarðarborg.
2. Félags-og skólaþjónusta:
Lögð fram skýrsla Soffíu Gísladóttur, sem ráðin var til að leggja fram
hugmyndir að samþættri félags-og skólaþjónustu á norðursvæði
Austurlands. Í nefnd sem fjallaði um málið var Jóna Björg fulltrúi
Borgarfjarðarhrepps og gerði hún hreppsnefndinni grein fyrir gangi
málsins. Umsögn verður gerð um málið á næsta fundi.
3. Bakki:
Björn og Helga á Bakka hafa leitað eftir hvaða skilmála hreppurinn mundi
setja vegna fyrirhugaðrar sölu á ræktun og útihúsum á Bakka, sbr.
fundargerð 17. mars s.l. Hreppsnefndin telur ekki efni standa til að
setja neina skilmála vegna sölu á umræddum eignum en mun taka afstöðu
til forkaupsréttar þegar og ef kaupsamningur liggur fyrir. Umbeðna
stækkun á lóð íbúðarhússins telur nefndin sjálfsagða.
4. Gjaldskrá HAUST:
Hreppsnefndin samþykkti einróma tillögu að viðbót við gjaldskrá HAUST
vegna stóriðjuframkvæmda og virkjana á Austurlandi.
5. Menntaskólinn á Egilsstöðum:
Samþykkt að Borgarfjarðarhreppur axli sinn hlut vegna fyrirhugaðra
stofnframkvæmda við skólann.
6. Kjörskrá:
Farið yfir kjörskrárstofn og kjörskrá undirrituð.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 20:15
Baldur Guðlaugsson
Jóna Björg Sveinsdóttir
Kristjana Björnsdóttir
Jakob Sigurðsson
Jón S Sigmarsson
Magnús Þorsteinsson- fundarritari -
Næsti fundur
hreppsnefndarinnar verður 12. mai.
Fundargerð 03.04.07
- 09
Árið 2003, mánudaginn
7. apríl, var haldinn fundur í hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps, sem
hófst kl 17:00 í Hreppsstofu. Á fundinum voru Helga, Jón Sigmar, Baldur,
Kristjana og Jakob ásamt sveitarstjóra. Þetta gerðist á fundinum:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
Drepið var lauslega á nokkur mál svo sem bóksafnssamning, traktorkaup,
fasteignagjöld, Bakka o.fl.
2. Atvinnuaukningarsjóður:
Ein umsókn barst frá Karli Sveinssyni ehf. Samþykkt að lána Karli kr 1
millj. til byggingar fiskverkunarhúss, sem er helmingur af ráðstöfunarfé
sjóðsins í ár. Eindagi umsókna er aftur í haust; 1. október
3. Menningarráð Austurlands:
Lagt fram aðalfundarboð ráðsins á Djúpavogi 28. apríl n.k.
4. Búfjáreftirlit:
Skýrt frá gangi mála varðandi nýskipan búfjáreftirlits og forðagæslu.
Búfjáreftirlitsnefnd hefur nú hafið störf en eftirlitið verður ekki að
fullu virkt fyrr en næsta vetur.
5. Refa- og minkaveiðar:
Lögð fram fundargerð samráðsfundar um refa- og minkaveiðar þar sem lagt
er til að greiðslur verði samræmdar sem mest.
6. Úrvinnslusjóður:
Greint frá nýjum reglum um úrvinnslugjald, sem smá saman er verið að
leggja á m.a. rafhlöður, hjólbarða , bíla o. fl., sem kemur til með að
auðvelda endurvinnslu.
7. Frumvörp til nýrra ábúðar- og jarðalaga,
sem hreppsnefndarmenn munu kynna sér eftir föngum.
8. Héraðsstjórnarfundargerð 24. mars lögð fram til
kynningar.
9. Sameiningarmál:
Hreppsnefndin ræddi m.a. þá tvo sameiningarkosti, sem í athugun eru um
þessar mundir, Norðursvæði og Fljótsdalshérað. Nefndin er þeirrar
skoðunar að sameining sveitarfélaga á Norðursvæði sé ekki vænlegur
kostur hvað Borgarfjörð varðar. Nefndin telur óheppilegt að unnið sé að
fyrrgreindum tveimur kostum samtímis og að hætta sé á að hvorugum sé
sinnt með skilvirkum hætti. Því telur hún æskilegt að
Norðursvæðisverkefninu verði ráðið til lykta sem fyrst. Að því frágengnu
væri hægt að fara að vinna að raunhæfum sameiningarmöguleikum á
Héraðssvæði með þátttöku Borgarfjarðarhrepps og leita eftir vilja íbúa
sveitarfélaganna á síðari hluta þessa kjörtímabils
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 21:10
Baldur Guðlaugsson
Kristjana Björnsdóttir
Helga Erlendsdóttir
Jón S Sigmarsson
Jakob Sigurðsson
Magnús Þorsteinsson sveitarstjóri
Næsti reglulegi fundur
hreppsnefndar verður mánudaginn 28. apríl.
Fundargerð
03.03.17 - 08
Árið 2003, mánudaginn 17.
mars kom hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps saman til fundar í Hreppsstofu
kl 17:08. Mættir voru hreppsnefndarmennirnir Helga og Kristjana. Jóna
Björg mætti í forföllum Jakobs. Baldur og Jón Sigmar komu til fundar
skömmu síðar. Sveitarstjóri var einnig á fundinum. Fyrir var tekið:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
Drepið var á nokkur mál svo sem brunavarnir, frágang fjárhagsáætlunar,
samgönguáætlun, fjallskilainnheimtu í Loðmundarfirði,
fuglaskoðunarblöðung o.fl.
2. Bakki:
Fram lagt lögfræðiálit Jóns Höskuldssonar um stöðu Borgarfjarðarhrepps
þegar og ef kæmi til sölu útihúsa og ræktunar á lögbýlinu Bakka.
Málið verður í athugun áfram.
3. Sævarendi:
Smári Magnússon óskar eftir stuðningi hreppsnefndar Borgarfjarðarhrepps
við leiguumsókn hans um Sævarenda í Loðmundarfirði. Beiðni Smára hafnað
af hreppsnefnd. Samþykkt einróma.
4. Átaksverkefni:
Svæðisvinnumiðlun vekur athygli á átaksverkefnum á vegum sveitarfélaga
og reynsluráðningu og starfsþjálfun, sem hreppsnefndin mælist til að
Svæðisvinnu-miðlunin kynni líka fyrir atvinnurekendum á staðnum. Nefndin
vonast til að atvinnu-ástand á Borgarfirði haldist í því horfi að ekki
verði þörf fyrir átaksverkefni í ár.
5. Sameiningarmál:
Farið yfir nokkur gögn um sameiningarmál á Norðursvæði og Héraðssvæði og
sameiningarmálin rædd á ýmsum forsendum. Stefnt að ályktun um málið á
næsta fundi hreppsnefndarinnar .
Minnt er á að umsóknarfrestur um lán úr Atvinnuaukningarsjóði er til 1.
apríl n.k.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 20:15
Baldur Guðlaugsson
Helga Erlendsdóttir
Kristjana Björnsdóttir
Jóna Björg Sveinsdóttir
Jón S Sigmarsson
Magnús Þorsteinsson- fundarritari
Fundargerð 03.03.03 - 07
Árið
2003, mánudaginn 3. mars, var haldinn fundur í hreppsnefnd
Borgarfjarðar-hrepps, sem hófst kl 17:00 í Hreppsstofu. Til fundarins
mættu Helga, Kristjana, Jakob, Jón Sigmar og Baldur ásamt sveitarstjóra.
Fyrir var tekið:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
Undir þessum lið var lítils háttar rætt um sameiningarmál, sem tekin
verða á dagskrá hreppsnefndarfundar á næstunni.
2. Bókasafnssamningur:
Framlögð drög að þjónustusamningi um bókasafnsþjónustu Bókasafns
Héraðsbúa við Borgfirðinga. Hreppsnefndin er samþykk samningsdrögunum að
öðru leyti en kostnaðargreiðslum Borgarfjarðarhrepps. Sveitarstjóra
falið að leita eftir breytingum þar á og að hafa í samningnum
endurskoðunarákvæði.
3. Héraðsstjórnarfundargerð 19. febrúar 2003 lögð fram til
kynningar.
4. Samgönguáætlun 2003 - 2006:
Hreppsnefndin fór yfir helstu atriði samgönguáætlunarinnar einkum nýja
skilgreiningu Borgarfjarðarvegar, sem tengivegar í grunnneti. Ítrekuð
verða tilmæli til þingmanna og samgönguyfirvalda um nauðsyn fjárveitinga
til vegarins.
5. Fjárhagsáætlun - Síðari umræða -
Tónskólagjöld fyrir skólaárið 2002 - 2003 ákveðin kr 10.000 á önn.
Sorphreinsunargjald 2003 endurákvarðað kr 8.000 á íbúð en þar sem lítið
sorp er kr 5.000. 50 pokar innifaldir í gjaldi. Fellt niður
sorphreinsunargjald fólks yfir áttræðu, sem býr eitt og lækkað þar sem
tveir aldraðir eru í heimili. Helmingi húsaleigu Álfasteins árið 2003
verður breytt í hlutafé eins og undanfarin þrjú ár, enda verði hinn
helmingurinn greiddur skilvíslega.
Fjárhagsáætlunin samþykkt einróma.
Helstu niðurstöðutölur áætlunarinnar eru í þús. króna:
Skatttekjur 46.830, Bókfærðar heildartekjur 79.980, Rekstrarafgangur
fyrir afskriftir og afborganir skulda 9.859, Fjárfestingar 7.700,
Afborganir langt.skulda 3.000,
Lántökur 2.200, Bati lausafjárstöðu 1.359
Fleira
ekki gert. Fundi slitið kl 20:30
Undirskriftir hreppsnefndarmanna Magnús Þorsteinsson fundarritari
Fundargerð 03.02.17 - 06
Árið
2003, mánudaginn 17. febrúar var haldinn fundur í hreppsnefnd
Borgarfjarðarhrepps, sem hófst kl 17:00 í Hreppsstofu. Á fundinum voru
hreppsnefndarmennirnir Helga, Kristjana, Jón Sigmar, Jakob og Baldur
ásamt sveitarstjóra. Þetta gerðist á fundinum:
1. Skýrsla sveitarstjóra
varðandi ýmis hreppsmál, sem til umfjöllunar eru um þessar mundir.
2. Fjárhagsáætlun2003:
Fyrri umræðu lokið.
Fleira
ekki gert. Fundi slitið kl 20:10
Undirskriftir hreppsnefndarmanna og sveitarstjóra.
Fundargerð 03.02.10 - 05
Árið 2003, mánudaginn 10.
feb.var haldinn aukafundur hreppsnefndar Borgarfjarðarhrepps sem hófst
kl 17:00 í Hreppsstofu. Á fundinum voru: Kristjana, Jakob, Jón Sigmar,
Baldur og Helga ásamt sveitarstjóra.
Á fundinum var unnið við
gerð fjárhagsáætlunar 2003.
Í upphafi fundar leitaði
oddviti eftir samþykki hreppsnefndarinnar til að taka á dagskrá mál
varðandi Sævarenda í Loðmundarfirði. Eftirfarandi bókun var samþykkt:
Bréf oddvita til
jarðadeildar landbúnaðarráðuneytisins.
Oddviti lagði fram bréf
til jarðadeildar landbúnaðarráðuneytisins þess efnis að vegna
skipulagsvinnu sem framundan er hjá sveitarfélaginu verði jarðeignir
ríkisins á svæðinu sunnan Borgarfjarðar þ.e. Víkum og Loðmundarfirði
ekki seldar á meðan unnið er að gerð aðalskipulags fyrir umrætt svæði.
Fleira ekki gert. Fundi
slitið kl 20:25
Undirskriftir hreppsnefndarmanna og
sveitarstjóra sem ritaði fundargerð.
Fundargerð 03.02.03
- 04
Árið 2003, mánudaginn
3. feb. var haldinn fundur í hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps, sem hófst
kl 17:00 í Hreppsstofu. Á fundinum voru Kristjana, Jakob, Helga, Baldur
og Jón Sigmar ásamt sveitarstjóra. Fyrir var tekið:
1. Bláfáninn:
Lagt fram bréf Landverndar þar sem fjallað er um nokkur atriði varðandi
bráðabirgðaumsókn Borgarfjarðarhrepps. Samþykkt einróma að sækja um
Bláfánann fyrir bátahöfnina og lögð á ráð um undirbúningsvinnu.
2. Hreindýraráð:
SSA falið að tilnefna fulltrúa í Hreindýraráð.
3. Línuveiðibann:
Með bréfi dags. 14. janúar hafnar sjávarútvegsráðuneytið óskum
hreppsnefndar Borgarfjarðarhrepps um að línuveiðiskip stærri en 50 brl.
fái ekki að stunda línuveiðar innan 6 sjómílna sbr. fundarsamþykkt
hreppsnefndar 7. okt. s.l.
4. Fjárhagsáætlun 2003:
Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 20:20
Undirskriftir
Magnús Þorsteinsson
ritaði fundargerð
Fundargerð 03.01.27
- 03
Árið 2003, mánudaginn
27. janúar kom hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps saman til aukafundar í
Hreppsstofu kl 17:00. Á fundinum voru Kristjana, Helga, Baldur, Jón
Sigmar og Jakob ásamt sveitarstjóra.
Á fundinum var unnið að fjárhagsáætlun.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 21:30
Undirskriftir
Fundargerð 03.01.20
- 02
Árið 2003, mánudaginn
20. janúar kom hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps saman til fundar í
Hreppsstofu kl 17:00. Á fundinum voru hreppsnefndarmennirnir Kristjana,
Helga, Jakob, Jón Sigmar og Baldur ásamt sveitarstjóra. Fyrir var tekið:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
Sveitarstjóra veitt umboð til þess að afgreiða leyfisbeiðnir kennara
ásamt skólastjóra.
2. Fundargerðir Héraðsstjórnar 9. jan og bókasafnsstjórnar 8. jan
lagðar fram til kynningar og dálítillar umræðu.
3. Úlfsstaðir:
Hreppsnefndin samþykkir að neyta ekki forkaupsréttar að hálfum
Úlfsstöðum, sem Bragi Sigurðsson hyggst selja Birni Roth.
4. Sævarendi:
Lagt fram bréf landbúnaðarráðuneytisins þar sem óskað er eftir rökstuddu
áliti hreppsnefndarinnar á því hvort selja ætti jörðina eða hvort
eðlilegra væri að leigja hana. Hreppsnefndin telur það ekki á sínu
verksviði að segja til um hvort jörðin Sævarendi í Loðmundarfirði verður
leigð eða seld. Hins vegar hvað hagsmuni Borgarfjarðarhrepps varðar vill
nefndin benda á að hreppurinn á ekki möguleika á skatttekjum af þeim
arði sem jarðir í hreppnum kunna að skapa séu eigendur eða leigjendur
lögheimilisfastir utan Borgarfjarðarhrepps.
5. Sæbakki:
Að höfðu samráði við bókasafnsstjórn hefur hreppsnefndin samþykkt að
ganga að kauptilboði Önnu Gústavsdóttur í Sæbakka.
6. Fjárhagsáætlun 2003:
Unnið að gerð áætlunarinnar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 21:20
Baldur Guðlaugsson
Helga Erlendsdóttir
Kristjana Björnsdóttir
Jakob Sigurðsson -
Jón S Sigmarsson
Magnús Þorsteinsson, fundarritari
Fundargerð 03.01.06
- 01
Árið 2003, mánudaginn 6. jan var haldinn
fundur í hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps, sem hófst kl 17:00 í
Hreppsstofu. Til fundar mættu hreppsnefndarmennirnir Helga, Kristjana,
Jón Sigmar og Baldur ásamt sveitarstjóra. Jóna Björg í stað Jakobs.
Fyrir var tekið:
1. Heilbrigðiseftirlit:
Til fundarins mættu Helga Hreinsdóttir og Árni Óðinsson frá
Heilbrigðiseftirliti Austurlands og greindu hreppsnefndinni frá
skipulagi og starfsemi heilbrigðiseftirlitsins. Þau svöruðu síðan
fyrirspurnum.
2. Skýrsla sveitarstjóra:
M.a. var lagður fram úrskurður Héraðsdóms Austurlands þar sem staðfest
er fjárnám hjá Þórunni Sigurðardóttur vegna fjallskilakostnaðar í
Loðmundarfirði, sem hún hafði krafist ógildingar á.
3. Fundargerðir landbúnaðarnefndar lagðar fram til kynningar.
4. Hafin gerð fjárhagsáætlunar 2003.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 20:20
Baldur Guðlaugsson
Helga Erlendsdóttir
Jóna Björg Sveinsdóttir
Jón S Sigmarsson
Kristjana Björnsdóttir
Magnús Þorsteinsson, fundarritari -
|