|
Fundargerðir
Borgarfjarðarhrepps eru sendar út til íbúa. Fréttasíðan
birtir þær hér með leyfi hreppsnefndar.
Samþykktir um
umgengni og þrifnað á Austurlandi
Fundargerðir frá 2003
Fundargerðir frá 2002
Fundargerð 22 - 20. desember 2004
Fundargerð
21 - 20. nóvember 2004
Fundargerð
20 - 15. nóvember 2004
Fundargerð 19 - 18. október 2004
Fundargerð 18 - 13. október 2004
Fundargerð
17 - 4. október 2004
Fundargerð 16 - 20. september 2004
Fundargerð
15 - 6. september 2004
Fundargerð
14 - 9. ágúst 2004
Fundargerð
13 - 6. júlí 2004
Fundargerð 12 - 7. júní 2004
Fundargerð
11 - 3. maí 2004
Fundargerð 10 - 19. apríl 2004
Fundargerð
9 - 29. mars 2004
Fundargerð 8 - 15. mars 2004
Fundargerð 7 - 1. mars 2004
Fundargerð
6 - 16. febrúar 2004
Fundargerð
5 - 2. febrúar 2004
Fundargerðir
2, 3 og 4 - 12. 14. og 19. janúar 2004
Fundargerð 1 - 5. janúar 2004
Fundargerð 04.12.20 - 22
Árið 2004, mánudaginn
20.des. kom hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps saman til fundar í
Hreppsstofu kl 17:00 Fundarmenn: Jóna Björg, Kristjana, Jakob, Jón
Sigmar og Baldur ásamt sveitarstjóra. Þetta gerðist á fundinum:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
Til umræðu kom m.a: skipulag, áramótabrenna og skólastarfið að loknu
verkfalli. Oddviti greindi lítillega frá aðalfundi Minjasafns
Austurlands.
Ákveðið að auglýsa tvær leiguíbúðir hreppsins, Breiðvang II og
Smáragrund,
til sölu á almennum markaði.
2. Byggingarnefndarfundargerð 30. nóv. 2004 samþykkt einróma.
3. Héraðsstjórnarfundargerð 6. des. sl. lögð fram til kynningar.
4. Hafnarsamþykkt:
Tillaga að hafnarsamþykkt fyrir Borgarfjarðarhöfn samþykkt einróma og
verður send samgönguráðuneytinu til staðfestingar.
5. Skoðanakönnun:
Lögð fram kostnaðaráætlun Byggðarannsóknastofnunar á Akureyri vegna
könnunar á sameiningarvilja í sveitarfélaginu. Samþykkt að ganga til
samninga við stofnunina um framkvæmd könnunarinnar.
6. Fasteignagjöld 2005:
Lóðagjöld: 2% af fasteignamati lóðar.
Sorphreinsunargjald: Kr 8.000 á íbúð en þar sem lítið sorp er kr 5.000.
50 pokar innifaldir í sorphreinsunargjaldi. Aukapokar til sölu í
áhaldahúsi í heilum búntum.
Sorpförgunargjald: Skv. óbreyttri gjaldskrá. Bændur, útgerðarmenn o.fl.
kr 4.000,
FKS kr 50.000. Sveitarotþróagjald skv. óbreyttri gjaldskrá, kr 3.000 á
rotþró.
Vatnsskattur: Á húsnæði 0,4 % af fasteignamati að hámarki kr 10.000. FKS
kr 30.000. Holræsagjald: 0,13% af fasteignamati. Fasteignaskattur á
íbúðarhús og bújarðir 0,36%. Fasteignaskattur á atvinnuhúsnæði 1%.
7. ADSL:
Leitað hefur verið eftir áhuga Borgfirðinga á ADSL tengingum ásamt
sjónvarpsáskrift. Verulegur áhugi er fyrir hendi skv. könnun sem gerð
var nýlega. Hreppsnefndin mun því sækja um að Síminn setji upp ADSL
búnað á Borgarfirði hið fyrsta. Hér vék Baldur af fundi.
8. Byggðakvóti:
Í hlut Borgarfjarðarhrepps koma nú 56 tonn af "nýja kvóta".
Hreppsnefndin ákvað að nýta heimild í reglugerð um byggðakvótann til að
setja reglur um úthlutun hans á Borgarfirði. Ráðuneytinu verða sendar
óbreyttar reglur frá fyrra ári til staðfestingar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 20:50
Undirskriftir
Magnús Þorsteinsson
fundarritari
Fundargerð 04.11.29 - 21
Árið 2004, mánudaginn 29.
nóv. var haldinn fundur í hreppsnefnd Borgarfjarðar-hrepps, sem hófst kl
17:00 í Hreppsstofu. Fundarmenn: Baldur, Jóna Björg, Kristjana og Bjarni
varamaður ásamt sveitarstjóra. Jón Sigmar mætti kl 17:50.
Fyrir var tekið:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
Minnst m.a. á skipulag og innlausn á verkamannabústaðaíbúð í Smáragrund.
2. Útsvarsprósenta 2005 ákveðin 13,03 %.
3. Hafnarsamþykkt:
Lögð fram drög að samþykkt fyrir Borgarfjarðarhöfn, sem verða til
athugunar áfram.
4. Dragnótaveiðar:
Hreppsnefndin fer þess á leit við sjávarútvegsráðuneytið að veiðar
dragnótabáta lengri en 12 metra verði bannaðar í Loðmundarfirði,
Húsavík, Breiðuvík, Brúnavík og Njarðvík allt árið auk Borgarfjarðar þar
sem allar dragnótaveiðar eru bannaðar nú þegar.
5. Sameiningarmál:
Hrepsnefnd Borgarfjarðarhrepps gerir ekki athugasemdir við að
sameiningarnefnd geri ekki tillögu um sameiningarkosningar í
Borgarfjarðarhreppi hinn 23. apríl n.k. Nefndin telur vegasamband
Borgfirðinga enn ekki vera komið í það horf að sameining ( við
Fljótsdalshérað) sé raunhæfur kostur.
Nefndin hyggst standa fyrir skoðanakönnun meðal hreppsbúa um
sameiningarmál.
6. ADSL:
Hreppsnefndin mun á næstunni kanna til hlítar möguleika á ADSL tengingu
á Borgarfirði en nú býður síminn upp á sjónvarpsáskrift samhliða henni.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 20:00
Undirskriftir
Magnús Þorsteinsson
fundarritari
Tillaga að úthlutun á
hreindýraarði hefur borist og mun liggja frammi á Hreppsstofu
til 8.desember.
Fundargerð 04.11.15 - 20
Árið 2004, mánudaginn 15.
nóv., kom hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps saman til fundar í Hreppsstofu
kl 17:00. Fundarmenn: Jakob, Jón Sigmar, Baldur, Jóna Björg og Kristjana
ásamt sveitarstjóra. Fyrir var tekið:
1. Skýrsla sveitarsjóra:
Greint frá ýmsum málum sem eru í meðferð um þessar mundir. M.a. lögð
fram yfirlit um fjallskilakostnað í Loðmundarfirði og kostnað við
sveitarotþrær.
Ákveðið að kaupa nýjan pallbíll fyrir áhaldahúsið.
2. Ferðaþjónusta:
Tilmæli komu frá samtökum ferðaþjónustunnar að bæta þjónustu við
ferðamenn í mai og september, sem hreppsnefndin mun leitast við að
stuðla að fyrir sitt leyti.
3. Kynntur aðalfundur Héraðsnefndar Múlasýslna 2004.
4. Staðardagskrá 21:
Sótt verður um að Borgarfjarðarhreppur verði formlegur þátttakandi í
verkefninu.
Næsti reglulegi fundur hreppsnefndar verður mánudaginn 29. nóv. n.k.
Fleira ekki gert. fundi slitið kl 19:00
Undirdkriftir
Magnús Þorsteinsson
fundarritari
Fundargerð 04.10.18 - 19
Árið 2004, mánudaginn 18.
okt. var haldinn fundur í hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps, sem hófst kl
17:00 í Hreppsstofu. Fundarmenn: Kristjana, Baldur, Jóna Björg og Jón
Sigmar ásamt sveitarstjóra. Jakob boðaði forföll og ekki náðist í
varamann. Þetta gerðist á fundinum:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
Drepið var á nokkur atriði, einkum fjármálalegs eðlis. Oddviti greindi
einnig lítillega frá málefnum félagsheimilisins Fjarðarborgar.
2. HAUST:
Sveitarstjóri tilnefndur fulltrúi á aðalfund HAUST og oddviti til
vara.
3. Fjármálaráðstefna:
Kynnt fjármálaráðstefna Samb. ísl. sveitarfélaga 1. og 2. nóv. n.k.
4. Héraðsstjórnarfundargerð 7. okt. lögð fram til kynningar.
5. Sameiningarmál:
Tillögur nefndar um sameiningu sveitarfélaga lagðar fram til kynningar.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 18:30
Undirskriftir
Magnús Þorsteinsson
fundarritari
Fundargerð 04.10.13 - 18
Árið 2004, miðvikudaginn
13. okt. var haldinn aukafundur í hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps, sem
hófst kl 14:00 í Hreppsstofu. Fundarmenn: Jóna Björg, Kristjana, Jakob,
Jón Sigmar og Bjarni varamaður ásamt sveitarstjóra og Einari E
Sæmundsen, skipulagsráðgjafa.
Eina málið á dagskrá var
Aðalskipulag Borgarfjarðarhrepps 2004 - 2016
Einar lagði fram síðustu tillögu að skipulagsgreinargerð dags. 6.
sept. 2004 ásamt uppdráttum dags. 12. okt. 2004. Nokkur atriði voru færð
til betri vegar.
Tillaga að búfjárhaldssamþykkt lítillega rædd. Hreppsnefndin samþykkti
skipulagstillöguna með áorðnum breytingum samhljóða og mun óska eftir
heimild Skipulagsstofnunar til að auglýsa hana.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 18:00
Undirskriftir
Magnús Þorsteinsson
Fundarritari
Fundargerð 04.10.04 - 17
Árið 2004, mánudaginn
4.okt. var fundur haldinn í hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps, sem hófst
kl 17:00 í Hreppsstofu. Fundarmenn: Jóna Björg, Kristjana, Jakob, Jón
Sigmar og Bjarni varamaður, ásamt sveitarstjóra.
Fyrir var tekið:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
Rætt um kaup á áhaldahúsbíl o.fl.
2. Fulltrúi á aðalfund Skólaskrifstofu Austurlands kosinn Margrét
B Hjarðar,
Kristjana Björnsdóttir til vara.
3. Fulltrúi á Hafnasambandsþing kosinn Magnús Þorsteinsson,
Bjarni Sveinsson til vara.
4. Atvinnuaukningarsjóður:
Engin umsókn barst.
5. Vetrarflutningastyrkur:
Engin umsókn barst innan tilskilins umsóknarfrests en tvær bárust daginn
eftir, sem hreppsnefndin samþykkti að taka til greina. Fiskverkun Kalla
Sveins ehf úthlutað kr 350 þús. og KHB 150 þús.
6. Urðunarstaður:
Umhverfisstofnun leitar eftir umsögn hreppsnefndar um tillögu að
starfsleyfi fyrir urðunarstað á Brandsbölum. Hreppsnefndin hefur ekkert
við starfsleyfistillöguna að athuga annað en að ekki eru tök á að
uppfylla kröfur um daglegar veðurathuganir á staðnum.
7. Þriggja ára áætlun 2006 - 2008 lítilsháttar undirbúin.
8. Búfjárhaldssamþykkt:
Ákveðið að leggja fram tillögu að samþykkt um búfjárhald í
Borgarfjarðarhreppi samhliða auglýsingu um aðalskipulag hreppsins seinna
á þessu ári.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 20:50
Undirskriftir
Magnús Þorsteinsson
fundarritari
Fundargerð 04.09.20 - 16
Árið 2004, mánudaginn 20.
sept. var fundur haldinn í hreppsnefnd Borgar-fjarðarhrepps, sem hófst
kl 17:00 í Hreppsstofu. Á fundinum voru Kristjana, Jón Sigmar, Jakob,
Jóna Björg og Baldur ásamt sveitarstjóra.
Þetta var gert á fundinum:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
Þar kom fram að gamli slökkvibíllinn hefur verið seldur. Upplýst var um
stöðu nokkurra annarra mála þ.á m. um brottfall úr eftirmiðdagsdeild í
leikskóla, sem leiðir til lokunar deildarinnar um næstu mánaðamót að
óbreyttu.
2. Byggðakvóti hinn nýi:
Lögð fram drög að umsókn til sjávarútvegsráðuneytisins, sem
hreppsnefndin hafði ekkert við að athuga.
3. Byggðakvóti hinn gamli:
Nýsir f.h. Byggðastofnunar óskar eftir áliti hreppsnefndar á því hvort
skilyrði samninga um kvótann í Borgarfirði hafi verið efnd á síðasta
fiskveiðiári.
Hreppsnefndinni er ekki kunnugt um annað og því ættu að vera forsendur
fyrir því að úthluta aftur á grundvelli fyrri samninga.
4. Skólahaldsáætlun:
Lögð fram áætlun skólastjóra um skólahaldið 2004/2005, sem hreppsnefndin
hefur ekkert við að athuga.
5. Samþykkt um búfjárhald:
Lögð fram umsögn Jóns Höskuldssonar hdl. um drög að búfjárhaldssamþykkt
í Borgarfjarðarhreppi. Málið verður í athugun áfram.
Minnt er á að umsóknarfrestur um atvinnuaukningarsjóðslán er til 1. okt.
n.k.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 20:00
Undirskriftir
Magnús Þorsteinsson
fundarritari
Fundargerð 04.09.06 - 15
Árið 2004, mánudaginn 6.
sept. var fundur haldinn í hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps, sem hófst kl
17:00 í Hreppsstofu. Fundarmenn: Baldur, Jóna Björg, Kristjana, Jakob og
Jón Sigmar ásamt sveitarstjóra. Þetta gerðist á fundinum:
Í upphafi fundarins gerði sveitarstjóri grein fyrir nokkrum málum, sem
eru á dagskrá um þessar mundir hjá hreppnum.
Samþykkt að veita Andrési Hjaltasyni veðleyfi vegna skuldbreytingaláns,
sem hann hyggst taka hjá Lánasjóði landbúnaðarins.
1. Félags- og skólaþjónusta:
Fram lögð skýrsla starfshóps um sameiginlega félags- og skólaþjónustu á
Norðursvæði Austurlands. Jóna Björg, sem var í starfshópnum, gerði
einnig grein fyrir skýrslunni. Hreppsnefndin hefur ekkert við skýrsluna
að athuga og telur að ganga eigi til samstarfsins á grundvelli hennar.
2. Snotrunes II:
Ólína og Margrét Halldórsdætur óska eftir samþykki hreppsnefndarinnar
til að leysa Snotrunes II úr óðalsböndum. Hreppsnefndin samþykkti þessa
málaleitan einróma.
3. Byggðakvóti:
Sjávarútvegsráðuneytið gefur nú sveitarstjórnum kost á að sækja um
byggðakvóta "hinn nýja", sem nú hefur verið aukinn verulega en "gamli
kvóti" fellur niður í áföngum á næstu tveimur árum. Hreppsnefndin
samþykkti að sækja um byggðakvóta fyrir Borgarfjarðarhrepp.
4. Hafnargjaldskrá:
Hreppsnefndin samþykkti einróma nýja gjaldskrá fyrir Borgarfjarðarhöfn,
sem er nær óbreytt bráðabirgðagjaldskrá samgönguráðuneytisins frá
síðasta ári, sbr. fundargerð hreppsnefndar 7. júní s.l.
5. Samþykkt um búfjárhald:
Lögð fram fyrstu drög að samþykkt um búfjárhald í Borgarfjarðarhreppi.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 21:00
Undirskriftir
Magnús Þorsteinsson
Fundargerð 04.08.09 - 14
Árið 2004, mánudaginn
9. ágúst, var haldinn fundur í hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps, sem
hófst kl 17:00 í Hreppsstofu. Fundarmenn: Baldur, Kristjana, Jakob og
Jón Sigmar ásamt sveitarstjóra. Bjarni mætti að lokinni skýrslu
sveitarstjóra. Fyrir var tekið:
1. Skýrsla
sveitarstjóra:
Drepið var á m.a: Framlag
Brunabótafélagsins, vöruflutningastyrksumsókn, Bláfánaúttekt, Jökulsá,
sveitarrotþrær, Hofstrandarsand, sjóvörn í Karlfjöru og endur-nýjun
áhaldahúsbíls. Leiga á lögbýlinu Ósi ákveðin kr 100 þús. á ári næstu
fimm ár.
2. Fulltrúi á aðalfund
SSA kosinn Kristjana
Björnsdóttir og Jakob Sigurðsson til vara.
3.
Héraðsstjórnarfundargerð
27.07. lögð fram til kynningar.
4. Merkingar horfinna
húsa á Bakkagerði:
Lagt fram og rætt bréf
Elísabetar Sveinsdóttur þar sem hún hvetur til að koma málinu í
framkvæmd. Hreppsnefndin er sama sinnis og mun skoða málið við gerð
næstu fjárhagsáætlunar.
5. Kynntar hugmyndir
Fjarðabyggðar um byggingu
fjölnota íþróttahúss.
6. Þjóðahátíð
Austfirðinga 2004:
Samþykkt að styrkja þetta
framtak með kr 10.000,-
7. Samgönguáætlun -
Siglingamál:
Tillögur Siglingastofnunar
gera ráð fyrir lengingu Nýju bryggju á átt að Hólma um 12 metra á árinu
2005 og sjóvörnum við Fiskmóttökuhús og Karlfjöru árið 2007. Nefndin
hefur ekkert við þessar tillögur að athuga.
8. "Vegafé":
Tekið fyrir bréf Sigurðar
Sigurðarsonar og Ólafs Dýrmundssonar þar sem hvatt er til átaks til að
draga úr hættu á því að slys verði við ákeyrslu á búfé.
Nefndin telur brýnt að girða fyrir lausagöngu sauðfjár á Útbæjavegi og
felur landbúnaðarnefnd að hreyfa málinu við landeigendur og Vegagerðina.
9. Fjallskil:
Borgarfjörður:
a) Fjallskilastjóri var kosinn
Jón Sigmar Sigmarsson.
b) U.þ.b. 30 kindur verða í dagsverki.
c) Gangnastjórar verða þeir sömu og fyrra.
d) Landbúnaðarnefnd falið að jafna niður dagsverkum á bændum.
Loðmundarfjörður:
Fjallskil verða þar með
svipuðum hætti og undanfarin ár.
10. Ræktunarlóðir á
Bakka:
Fyrir var tekið erindi
Fasteigna- og Skipasölu Austurlands vegna sölu á ræktunarréttindum úr
lögbýlinu Bakka þar sem Helga og Björn á Bakka selja Þorsteini á Jökulsá
tæpl. 38 ha ræktunar ásamt Bubbahúsum o.fl. Hreppsnefndin lýsir því yfir
að hún hyggst ekki neyta forkaupsréttar að hinu selda. Hreppsnefndin
samþykkir að leita leiða til að gera hið selda að sérstakri eign í
veðmálabókum.
11. Hreppsnefndin
samþykkir að framlengja
ráðningarsamning sveitarstjóra óbreyttan til miðs árs 2005.
Út er komin ársskýrsla Borgarfjarðarhrepps 2003 og hefur verið dreift.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl 21:30
Undirskriftir
Magnús Þorsteinsson
fundarritari
Fundargerð 04.07.06 - 13
Árið 2004, þriðjudaginn 6. júlí
var haldinn fundur í hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps, sem hófst kl 14:00
í Hreppsstofu. Á fundinum voru: Kristjana, Jakob, Jóna Björg Bjarni og
Baldur ásamt sveitarstjóra. Þetta gerðist á fundinum:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
Drepið m.a. á aukaframlag
Jöfununarsjóðs vegna grunnskóla, fasteignaskattsskýrslur,
heilbrigðisþjónustu, ný jarða- og ábúðarlög, sveitarrotþrær og
Útbæjagirðingu.
2. Kosning oddvita- og
varaoddvita til eins árs:
Oddviti var kosinn Kristjana
Björnsdóttir með 4 atkvæðum. Varaoddviti var kjörinn Baldur Guðlaugsson
með 4 atkvæðum. Jón Sigmar fékk 1 atkvæði.
3. Kjörstjórnarlaun:
Kjörstjórnarlaun við nýafstaðnar
forsetakosningar ákveðin kr 15.000 til hvers kjörstjórnarmanns.
4. Aðalskipulag
Borgarfjarðarhrepps:
Einar E Sæmundsen skipulagsráðgjafi
sat fundinn undir þessum dagskrárlið. Hann lagði fram og fór yfir
umsagnir stofnana, sem höfðu fengið skipulagsdrögin til athugunar.
Umsagnir bárust frá Fornleifavernd ríkisins, Siglingastofnun,
Heilbrigðiseftirliti Austurlands, Austurlandsskógum, Skógrækt ríkisins
og Umhverfisstofnun. Einar gerði grein fyrir tillögum að svörum við
athugasemdum umsagnaraðilanna
Fleira ekki gert. Fundi slitið
kl 16:30
Undirskriftir
Magnús Þorsteinsson
fundarritari
Fundargerð 04.06.07 - 12
Árið 2004, mánudaginn 7.
júní var fundur haldinn í hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps, sem hófst kl
17:00 í Hreppsstofu. Mættir voru Baldur, Jón Sigmar, Jakob og Jóna Björg
ásamt sveitarstjóra. Þetta gerðist á fundinum:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
Minnst var m.a. á heilbrigðisþjónustu, skipulagsfund, ársskýrslu,
Álfastein, brunasamlag o.fl.
2. Héraðsstjórnarfundargerð 10. mai lögð fram til kynningar.
3. Byggingarnefndarfundargerð 29. mai samþykkt einróma.
4. Kjörstjórn við alþingiskosningar
til eins árs, sem jafnframt er kjörstjórn við forsetakosningar og aðrar
kosningar á landsvísu eftir því sem lög standa til:
Aðalmenn:
Jakob Sigurðsson
Bjarni Sveinsson
Björn Aðalsteinsson
Varamenn:
Helgi Hl. Ásgrímsson
Jón Sigurðsson
Þorsteinn Kristjánsson
5. Félagsþjónusta:
Nýjar reglur um fjárhagsaðstoð samþykktar einróma. Þær höfðu áður verið
samþykktar af félagsmálanefnd og Héraðsstjórn.
Hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps er samþykk því fyrir sitt leyti að
fækkað verði í félagsmálanefnd Héraðssvæðis úr 7 í 5 og hefur ekki
athugasemdir við hugmyndir um tilnefningu nefndarmanna. Nefndin telur
þessar breytingar hins vegar ekki tímabærar fyrr en sér fyrir endann á
vinnu við sameiginlega félags- og skólaþjónustu á Norðursvæði
Austurlands og að afstöðnum sameiningarkosningum á Héraði.
6. Hafnarmál:
Sveitarstjóra falið að gera tillögu að aðlögun á hafnarreglugerð að
aðstæðum á Borgarfirði. Samþykkt að núverandi sameiginleg hafnagjaldskrá
verði óbreytt í gildi sem hafnargjaldskrá fyrir Borgarfjarðarhöfn frá og
með l. júlí n.k.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 19:50
Undirskriftir
Magnús Þorsteinsson
fundarritari
Fundargerð 04.05.03 - 11
Árið 2004, mánudaginn 3.
mai, var fundur haldinn í hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps, sem hófst kl
17:00 í Hreppsstofu. Fundarmenn: Kristjana, Jóna Björg, Jón Sigmar,
Jakob og Baldur ásamt sveitarstjóra. Þetta gerðist á fundinum:
1. Skýrsla sveitarstjóra o. fl:
Rætt var um m.a. Vegáætlun, Bláfánann, Snorraverkefnið, aðalskipulag
Borgarfjarðarhrepps, aukaframlag v/grunnskóla, girðingarhólf í
Loðmundarfirði og læknisþjónustu. Jóna Björg gerði grein fyrir störfum
starfshóps, sem vinnur að stofnun sameiginlegrar félags- og
skólaþjónustu á norðursvæði Austurlands að Seyðisfirði undanskildum.
2. Ársreikningur Borgarfjarðarhrepps 2003-Síðari umræða-
Helstu niðurstöðutölur:
Heildartekjur A-hluta
51.349.302
" A og B hluta
55.793.455
Heildargjöld A og B hluta
58.968.919
Rekstrarniðurstaða A - hluta
( 260.749)
" A og B hluta
( 5.124.453)
Skuldir og skuldbindingar A-hluta 21.465.529
" " A og B hluta
68.339.080
Eigið fé A - hluta
104.863.285
" " A og B -hluta
103.537.677
3. Hafnarreglur:
Við reglurnar bætist 6. töluliður:
Frá 15. mai til ágústloka eiga smábátar ( frístundabátar) að vera í
tveimur innstu viðleguplássunum við gömlu bryggju að vestanverðu.
4. Efling sveitarstjórnarstigsins:
Fram lögð greinargerð SSA til nefndar um sameiningu sveitarfélaga.
Hreppsnefndin telur hugmyndir SSA raunhæfar og skynsamlegar á þessu
stigi.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 19:50
Undirskriftir
Magnús Þorsteinsson
fundarritari
Fundargerð 04.04.19 - 10
Árið 2004, mánudaginn
19. apríl, kom hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps saman til fundar í
Hreppsstofu kl 17:00. Á fundinum voru Kristjana, Jakob, Jón Sigmar, Jóna
Björg og Baldur ásamt sveitarstjóra. Þetta gerðist á fundinum:
1. Skýrsla
sveitarstjóra:
Minnst var á m.a.
framlag til félagsíbúða, refaveiðimenn, skipulag, brunasamlag, förgun
úrgangs, Austurlandshefti og Snorraverkefni.
Um læknisþjónustu var
eftirfarandi bókað:
Viðbrögð forráðamanna heilsugæslustöðvarinnar við ályktun
hreppsnefndarinnar um læknisþjónustu 15. mars sl. hafa engin verið utan
óljós munnleg skilaboð. Hreppsnefndin mun því taka málið upp við
heilbrigðisráðuneytið.
Oddviti greindi frá málefnum Kjarvalsstofu.
2. Ársreikningur
Borgarfjarðarhrepps 2003 - Fyrri umræða -
Reikningurinn lagður fram
og skýrður lítillega og síðan samþykktur til annarrar umræðu.
3. Frumvörp til nýrra
ábúðar- og jarðalaga sem
voru til umfjöllunar á síðasta þingi hafa verið lögð fram að nýju
dálítið breytt. Hreppsnefndarmenn munu kynna sér frumvörpin eftir
föngum.
4. Oddviti tilnefndur
fulltrúi á aðalfund Menningarsamtaka Austurlands
og Jóna Björg til vara.
5. Jökulsá:
Sveitarstjóri og oddviti
lögðu fram samning um ný landamerki Jökulsár annarsvegar og Bakka ásamt
Bakkagerði hins vegar, sem þeir höfðu gert við Þorstein Kristjánsson.
Þegar landamerkjabréfinu hefur verið þinglýst verður gengið frá sölu á
hluta hreppsins í Jökulsá til Þorsteins. Söluverð kr 80 þús.
6.
Atvinnuaukningarsjóður:
Engin umsókn barst.
Næsti eindagi umsókna er 1. okt. nk.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl 20:10
Undirskriftir
Magnús Þorsteinsson
fundarritari
Fundargerð 04.03.29 - 09
Árið 2004, mánudaginn 29.
mars var fundur haldinn í hreppsnefnd Borgarfjarðar-hrepps, sem hófst kl
17:00 í Hreppsstofu. Fundarmenn: Kristjana, Jón Sigmar, Jakob, Jóna
Björg og Baldur ásamt sveitarstjóra. Þetta gerðist á fundinum:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
Málefni: Efling sveitarstjórnarstigsins, samvinna á Norðursvæði,
samþykkt um umgengni og þrifnað, Sláturfélag Austurlands, Þrotabú
Álfasteins og húsaleigusamningar við endurreistan Álfastein.
2. Héraðsstjórnarfundargerð 18. mars lögð fram til kynningar.
3. Aðalskipulag Borgarfjarðarhrepps 2004 - 2016:
Skipulagið er nú komið á það stig að önnur drög að skipulagstillögu
verði kynnt almenningi, stofnunum og nágrannasveitarfélögum og haft um
það samráð þar sem ástæða þykir til.
Hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps samþykkti samhljóða að leggja fram til
kynningar þá tillögu að aðalskipulagi fyrir Borgarfjarðarhrepp, sem nú
liggur fyrir með lítilsháttar breytingum. Nefndin telur að hugmyndir
tillögunnar um hverfisvernd Víkna og Loðmundarfjarðar séu raunhæfur
umræðugrundvöllur við landeigendur á svæðinu. Endanleg skipulagstillaga
mun ráðast af afstöðu þeirra svo og friðlýsingarreglugerð í framhaldi af
henni ef samkomulag næst. Stefnt er að setningu samþykkta um búfjárhald
og lausagöngu búfjár í Borgarfjarðarhreppi í tengslum við gerð
aðalskipulagsins. Vonast er til að hægt verði að leggja tillöguna fram
til kynningar innan skamms
Fleira ekki gert. Fundi
slitið kl 20:40
Undirskriftir
Magnús
Þorsteinsson
fundarritari
Fundargerð 04.03.15 - 08
Árið 2004, mánudaginn 15.
mars, var haldinn fundur í hreppsnefnd Borgarfjarðar-hrepps, sem hófst
kl 17:00 í Hreppsstofu. Fundarmenn: Kristjana, Jón Sigmar, Jakob, Jóna
Björg og Baldur ásamt sveitarstjóra. Þetta gerðist á fundinum:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
Drepið á nokkur mál svo sem fjárhagsáætlanir í fyrirskipuðu formi,
þrotabú Álfasteins, nýja Álfastein, Austurlandssýningu, samgöngumálþing,
Bláfána og ýmis fundarboð. Samþykkt að sleppa gjaldtöku vegna hunda og
katta fyrir síðastliðið ár vegna þess að hreinsunartíminn hefur færst
svo mikið aftur.
Um læknisþjónustu var gerð svofelld ályktun:
Hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps lýsir áhyggjum vegna fækkunar lækniskoma
til Borgarfjarðar. Læknir hefur ekki starfað í heilsugæsluselinu
síðastliðnar fimm vikur og mun ekki vera að vænta komu hans fyrr en í
mai. Hreppsnefndin telur þetta óviðunandi ástand.
2. Iðngarðasamþykkt:
Vegna breyttra aðstæðna ákvað hreppsnefndin að fella úr gildi samþykkt
um rekstur iðngarða á Borgarfirði. Leigusamningar í Iðngörðum verða því
framvegis eins og tíðkast um atvinnuhúsnæði.
3.
Atvinnuaukningarsjóður:
Gerð var smábreyting á l. málslið 6. gr. reglugerðar fyrir
Atvinnuaukningarsjóð Borgarfjarðarhrepps, sem verður þá svohljóðandi:
Lánin skulu veitt gegn sjálfskuldarábyrgð og veði, sem hreppsnefndin
samþykkir.
4. Ós:
Ákveðið að leigja út hluta af lögbýlinu Ósi til næstu fimm ára með
svipuðum leiguskilmálum og síðasta leigutímabil.
5. Jökulsá:
Að undangengnum viðræðum við oddvita og sveitarstjóra við Þorstein
Kristjánsson, sbr. fundargerð 3. feb., heimilar hreppsnefndin þeim að
ganga til samninga við hann um sölu á nokkru af hluta hreppsins í
Jökulsá með breyttum lanadamerkjum.
6. Samstarf á
Norðursvæði:
Framlögð fundargerð frá fundi fulltrúa sveitarfélaganna á Norðursvæði
Austurlands frá 25. feb. sl. Hreppsnefndin telur einsýnt að hraðað verði
vinnu við sameiginlegar almanna- og brunavarnir á svæðinu, sem einhugur
virðist vera um.
Jóna Björg tilnefnd í vinnuhóp til þess að halda áfram undirbúningi að
stofnun sameiginlegrar félags- og skólaþjónustu á Norðursvæði
Austurlands. Nefndin er samþykk stofnun formlegs samstarfshóps á
Norðursvæðinu eins og lagt er til.
7. Skipulag:
Hreppsnefndin hefur farið yfir drög að skipulagsgreinargerð og uppdrætti
og gert athugasemdir, sem komið verður á framfæri. Umfjöllun um drögin
verður lokið á næsta fundi.
8.
Héraðsstjórnarfundargerð 9. mars lögð fram til kynningar.
Næsti reglulegi fundur hreppsnefndar verður 29. mars nk.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 21:30
Undirskriftir
Magnús
Þorsteinsson
fundarritari
Minnt er á eindaga
lánsumsókna í Atvinnuaukningarsjóð 1. apríl nk.
Fundargerð 04.03.01 - 07
Árið 2004, mánudaginn 1.
mars, kom hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps saman til fundar í Hreppsstofu
kl 17:00. Mætt voru: Kristjana, Jakob, Jón Sigmar, Baldur og Bjarni Sv.
ásamt sveitarstjóra. Fyrir var tekið:
1. Aðalskipulag 2004 - 2016:
Á fundinn mætti Einar E Sæmundsen landslagsarkitekt og lagði fram og
skýrði önnur drög að skipulagstillögu, sem í framhaldi af þessum fundi
verða send hinum ýmsu stofnunum til athugunar og athugasemdagerðar eftir
því sem þeim þykir ástæða til.
2. Skýrsla sveitarstjóra:
Stutt og laggóð.
3. Brunasamlag:
Sveitarstjóri tilnefndur í starfshóp sem á að vinna að stofnun
brunasamlags á Norðursvæði Austurlands.
4. Þriggja ára fjárhagsáætlun 2005 - 2007:
Samþykkt einróma við síðari umræðu.
Fleira ekki gert. Fundi
slitið kl 20:30
Undirskriftir
Magnús Þorsteinsson
fundarritari
Fundargerð 04.02.16 - 06
Árið 2004, mánudaginn 16.
febrúar var haldinn fundur í hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps, sem hófst
kl 17:00 í Hreppsstofu. Fundarmenn: Kristjana, Jakob, Jóna Björg og Jón
Sigmar ásamt sveitarstjóra. Baldur boðaði forföll. Varamaður gat ekki
mætt. Þetta gerðist á fundinum:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
Drepið var á nokkur mál svo sem endurgreiðslu vsk., gjaldskuldir og
fjallskilaskuldir, Iðngarðasamþykkt, búfjárhald, sjóvarnargarða og
ferðaskrifstofu Austurlands. Einnig var rætt um snjómokstur.
2. Breyting á svæðisskipulagi:
Aðalskipulag Fellahrepps gerir ráð fyrir stækkun þéttbýlisins í
Fellahreppi sem krefst breytingar á svæðisskipulaginu, sem hreppsnefnd
Borgarfjarðarhrepps er samþykkt fyrir sitt leyti.
3. Efling sveitarstjórnarstigsins:
SSA leitar eftir hugmyndum frá sveitarstjórnum um sameiningu
sveitarfélaga á Austurlandi og/eða aðrar leiðir til að efla
sveitarstjórnarstigið.
Nefndin telur ekki efni til að leggja fram neinar hugmyndir í málinu að
svo stöddu.
4. Náttúruverndaráætlun 2004 - 2008:
Þingsályktunartillagan er nú send til umsagnar frá umhverfisnefnd
Alþingis.
Hreppsnefndin vísar til samþykktar sinnar frá 18. nóv. sl. þegar drög að
áætluninni voru til umsagnar. Í aðalskipulagi Borgarfjarðarhrepps, sem
áætlað er að taki gildi fyrir árslok, verður stefnt að frekari
friðlýsingum á Víkum og Loðmundarfirði.
5. Þriggja ára fjárhagsáætlun 2005 - 2007:
Samþykkt við fyrri umræðu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 19:45
Undirskriftir
Magnús Þorsteinsson
fundarritari
Fundargerð 04.02.02 - 05
Árið 2004, mánudaginn
2. febrúar kom hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps saman til fundar í
Hreppsstofu kl 17:00. Fundarmenn: Kristjana, Jón Sigmar, Baldur, Jakob
og Jóna Björg ásamt sveitarstjóra. Þetta gerðist á fundinum:
1. Skýrsla sveitarstjóra um ýmis málefni, sem til umfjöllunar eru
um þessar mundir.
2. Héraðsstjórnarfundargerð 26. jan. 2004 lögð fram til
kynningar.
3. Jökulsá:
Fyrir var tekið endurnýjað erindi Þorsteins Kristjánssonar um kaup á
eignarhluta hreppsins í Jökulsárlandi. Hreppsnefndin vill koma til móts
við óskir Þorsteins að nokkru leyti og felur oddvita og sveitarstjóra að
ræða málið við hann.
4. Lausaganga hrossa í Loðmundarfirði:
Eigendur og umráðamenn jarða í Loðmundarfirði fara þess á leit við
hreppsnefndina að hún hlutist til um að lausaganga hrossa verði bönnuð í
Loðmundarfirði. Hreppsnefndin mun skoða málið í tengslum við
skilgreiningu Víkna- og Loðmundarfjarðar í aðalskipulagi
Borgarfjarðarhrepps, sem nú er unnið að.
Jafnframt verði hugað að setningu samþykktar um búfjárhald í
Borgarfjarðarhreppi.
5. Fjárhagsáætlun 2004. - Síðari umræða :
Helstu niðurstöðutölur áætlunarinnar eru í þús. króna:
Skatttekjur 45.000. Bókfærðar heildartekjur 79.754. Rekstrarafgangur
fyrir afskriftir og afborganir skulda 11.000. Fjárfestingar 6.200.
Afborganir langtímaskulda 3.300.
Bati lausafjárstöðu 1.000. Fjárhagsáætlunin samþykkt einróma.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 23:30
Undirskriftir
hreppsnefndarmanna
Magnús Þorsteinssson
fundarritari
Fundargerðir 04.01.12 - 02, 04.01.14 -
03 og 04.01.19 - 04
12. janúar, 14. janúar
og 19. janúar 2004 voru haldnir fundir í hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps
þar sem unnið var að fjárhagsáætlun 2004.
Á fundina mættu allir hreppsnefndarmenn ásamt sveitarstjóra.
Fundargerð 04.01.05 - 01
Árið 2004, mánudaginn 5.
jan., var haldinn fundur í hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps, sem hófst kl
17:00 í Hreppsstofu. Fundarmenn: Kristjana, Jakob, Jón Sigmar, Baldur og
Jóna Björg ásamt sveitarstjóra. Þetta gerðist á fundinum:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
Fjallað m.a. um fjallskil í Loðmundarfirði, skipulag og staðardagskrá
21, sorpurðun, hreindýraarð og Álfastein. Um lántöku var gerð
eftirfarandi bókun:
Hreppsnefndin samþykkir 2ja milljón króna lántöku hjá Lánasjóði
sveitarfélaga til allt að 10 ára. Lánið er bundið vísitölu neysluverðs
með breytilegum vöxtum, nú 4,5%, með tryggingu í tekjum
Borgarfjarðarhrepps .
2. Brunasamlag:
Fram lögð skýrsla Deloitte & Touche um mat á skiptihlutfalli og
fjárhagsáætlun fyrir sameinað slökkvilið, sem stefnt er að á Norðursvæði
Austurlands ásamt drögum að stofnsamningi. Hreppsnefndin telur að málið
þurfi talsvert meiri athugunar við áður en tekin verður ákvörðun um
þátttöku í brunasamlaginu.
3. Héraðsstjórnarfundargerð 16. des. 2003 lögð fram til
kynningar.
4. Fundargerðir landbúnaðarnefndar lagðar fram til upplýsinga
fyrir hreppsnefndina.
5. Sjálfsmatsúttekt grunnskólans:
Úttekt KPMG Ráðgjafar, sem unnin var í sept. - nóv. 2003 kynnt
sveitarstjórn.
6. Forkaupsréttur að sumarbústaðalóð í Setbergslandi:
Hreppsnefndin er samþykk eigendaskiptum að bústaðnum ásamt
leigulóðarréttindum.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 19:40
Undirskriftir
Magnús Þorsteinsson
- fundarritari -
|