|
Fundargerðir
Borgarfjarðarhrepps eru sendar út til íbúa. Fréttasíðan
birtir þær hér með leyfi hreppsnefndar.
Samþykktir um
umgengni og þrifnað á Austurlandi
Fundargerðir frá 2004
Fundargerðir frá 2003
Fundargerðir frá 2002
Fundargerð 12 - 05. september
2005
Fundargerð
11 - 15. ágúst 2005
Fundargerð
10 - 4. júlí 2005
Fundargerð 9 -
6. júní 2005
Fundargerð
8 - 2. maí 2005
Fundargerð
8 - 18. apríl 2005
Fundargerð
7 - 4. apríl 2005
Fundargerð
6 - 7. mars 2005
Fundargerð
5 - 14. febrúar 2005
Fundargerð
4 - 7. febrúar 2005
Fundargerð
3 - 7. febrúar 2005
Fundargerð
2 - 31. janúar 2005
Fundargerð
1 - 17. janúar 2005
00
Fundargerð 05.09.05 - 12
Árið 2005, mánudaginn
5. sept., kom hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps saman til fundar í
Hreppsstofu kl 17:00. Fundarmenn: Kristjana, Jón Sigmar, Bjarni og
Baldur
ásamt sveitarstjóra. Þetta gerðist á fundinum:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
ADSL: Ákveðið að leita eftir bindandi áskriftum. Rætt um horfur á
vegabótum og sveitarlýsingu.
2. Aðalfundur SSA 15.- 16. sept:
Kristjana Björnsdóttir kosinn fulltrúi Borgarfjarðarhrepps og Jakob
Sigurðsson til vara.
3. Íbúðarsala:
Steinn Eiríksson hefur í bréfi óskað eftir útskýringum á því hversvegna
tilboði hans í Smáragrund var ekki tekið.
Þó seljanda íbúðar beri almennt ekki skylda til að gera grein fyrir
forsendum þess hvaða kauptilboði hann tekur er hreppsnefndinni bæði
ljúft og skylt sem "stjórnvaldi" í skilningi upplýsinga- og
stjórnsýslulaga að veita upplýsingar varðandi söluna á Smáragrund og
verða Steini sendar þær bréflega.
4. Skólahaldsáætlun:
Lögð fram áætlun um skólahaldið næsta skólaár, sem hreppsnefndin hefur
ekkert við að athuga.
Fleira ekki gert. Fundi
slitið kl 19:15
Undirskriftir
Magnús Þorsteinsson
fundarritari
Fundargerð 05.08.15 - 11
Árið 2005, mánudaginn
15. ágúst var fundur haldinn í hreppsnefnd Borgarfjarðar-hrepps, sem
hófst kl 17:00 í Hreppsstofu. Fundarmenn: Jóna Björg, Kristjana, Jón
Sigmar og Jakob ásamt sveitarstjóra. Þetta gerðist á fundinum:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
Greint frá ýmsum verkefnum m.a. "sveitarotþróavæðingu", sveitarlýsingu,
bryggjusmíði, útsvörum, vínveitingaleyfum og horfum um vegabætur á
Borgarfjarðarvegi.
2. Fjallskil 2005:
Borgarfjörður:
a) Fjallskilastjóri var kosinn Jón Sigmar Sigmarsson
b) 33 kindur verða í dagsverki
c) Gangnastjórar verða þeir sömu og undanfarin ár
d) Landbúnaðarnefnd falið að jafna niður dagsverkum á
bændur og ákveða
gangnadaga.
Loðmundarfjörður:
Fjallskil verða þar með svipuðum hætti og undanfarin ár
3. Búfjárhaldssamþykkt:
Landbúnaðarráðuneytið hyggst samþykkja tillögu hreppsnefndar að
búfjárhaldssamþykkt að teknu tilliti til athugasemda bændasamtaka
Íslands.
Hreppsnefndin fellst ekki á að gerðar séu breytingar á 1. gr.
samþykktarinnar en fellst á aðrar lagfæringar, sem lagðar eru til.
4. Fundargerð byggingarnefndar 20. júlí 2005 samþykkt samhljóða.
5. Héraðsstjórnarfundargerð 2. ágúst 2005 lögð fram til
kynningar.
6. Samningur um félagsþjónustu:
Lögð fram drög að samningum um sameiginlega félags- og
barnaverndarþjónustu á Héraðssvæði, sem hreppsnefnin er samþykk fyrir
sitt leyti.
7. Hafnargjaldskrá:
Ný hafnagjaldskrá með smá breytingum samþykkt einróma.
8. Smáragrund - kauptilboð:
Borist hafa tvö kauptilboð í Smáragrund. Ákveðið að taka því kauptilboði
sem hefur minni fjárútlát í för með sér fyrir hreppinn, sem er 4
milljóna tilboð Gunnars Vignissonar.
9. Byggðakvóti:
Úthlutaður "nýi kvóti" til Borgarfjarðarhrepps er 93 tonn. Fjallað
verður um úthlutun hans í september.
Fleira ekki gert. Fundi
slitið kl 20:15
Undirskriftir
Magnús Þorsteinsson
fundarritari
Fundargerð 05.07.04 - 10
Árið 2005, mánudaginn
4. júlí var haldinn fundur í hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps, sem hófst
kl 17:00 í Hreppsstofu. Á fundinum voru hreppsnefndarmennirnir
Kristjana, Jóna Björg, Jakob, Jón Sigmar og Baldur ásamt
sveitarstjóra.Þetta gerðist á fundinum:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
Nokkur mál voru til umræðu þ.á m. endurgreiðsla á vsk. á þjónustu
endurskoðunarfyrirtækja sem gera ársreikninga sveitarfélaga.
Yfirskattanefnd hefur úrskurðað í deilumáli þetta varðandi
sveitarfélögum í vil. Vegagerðin hefur hafnað ósk um að girða með
Útbæjavegi, sbr. síðustu fundargerð.
2. Kosning oddvita og varaoddvita til eins árs:
Oddviti var kosinn Kristjana Björnsdóttir með 4 atkv., 1 seðill var
auður.
Baldur Guðlaugsson var kosinn varaoddviti með 4 atkv. Jón Sigmarsson
fékk 1 atkv.
3. Pósthús:
Póst- og fjarskiptastofnun hefur óskað eftir umsögn hreppsnefndar um þá
ósk Íslandspósts að loka póstafgreiðslunni á Borgarfirði. Hreppsnefndin
mælir eindregið gegn lokun afgreiðslunnar.
4. Skipulag:
Skipulagsstofnun hefur óskað eftir skýringum á nokkrum atriðum þar sem
ósamræmis gætir á milli aðalskipulags og svæðisskipulags annarsvegar og
aðalskipulagsuppdráttar og greinargerðar hins vegar. Hreppsnefndin er
samþykk tillögum að skýringum, sem skipulagsráðgjafi og sveitarstjóri
hafa gert.
5. Dvalarheimilissamningur:
Fram lögð drög að endurnýjuðum samningi við heilsugæsluna á Egilsstöðum
um rekstur Dvalar- og hjúkrunarheimilis aldraðra sem hreppsnefndin hefur
ekkert við að athuga.
6. Byggðakvóti:
Samþykkt að sækja um byggðakvóta fyrir Borgarfjarðarhrepp.
7. Hafnargjaldskrá:
Samþykkt að taka stöðugjald af bátum við bátahöfnina, sem verður 40% af
bryggjugjaldi.
Fundartími hreppsnefndarfunda verður óbreyttur næsta ár, þó verður næsti
fundur nefndarinnar 8. ágúst.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 19:45
Undirskriftir
Magnús Þorsteinsson
fundarritari
Fundargerð 05.06.06 - 09
Árið 2005, mánudaginn 6. júní var haldinn
fundur í hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps, sem hófst kl 17:00 í
Hreppsstofu. Fundarmenn: Jóna Björg, Kristjana, Jakob, Jón Sigmar og
Baldur ásamt sveitarstjóra. Þetta gerðist á fundinum:
1. Kjarvalsstofa:
Arngr. Viðar Ásgeirsson stjórnarformaður Kjarvalsstofu gerði
hreppsnefndinni grein fyrir stöðu og framtíðarhorfum hennar. Málþing og
minningarsýning er fyrirhugað 23. júlí í tilefni af afmælisári Kjarvals.
Ráðgert er að hluti sýningar í Kjarvalsstofu verði settur upp á
Kjarvalsstöðum í haust. Rekstrarkostnaður Kjarvalsstofu er um 800 þús. á
ári. " Álfadiskur", sem er fyrsti áfangi Álfheima, verður tilbúinn í
sumar. Þá greindi Arngr. Viðar frá kynningu á Víknaslóðum á vegum
Ferðaskrifstofu Austurlands.
2. Skýrsla sveitarstjóra:
Drepið var á allmörg mál sem á döfinni eru um þessar mundir. Hreppurinn
greiddi músaeyðingu að mestu í vor. Þeir sem hafa sjálfir greitt
einhverja slíka reikninga geta fengið þá endurgreidda hjá hreppnum.
3. Ársreikningur 2004. Síðari umræða.
Ársreikningurinn samþykktur einróma.
Helstu niðurstöðutölur í þús:
|
Heildartekjur A-hluta ........................................ |
57.336 |
|
" A- og
B-hluta ................................ |
61.091 |
|
Heildargjöld A- og
B-hluta ................................. |
55.974 |
|
Rekstrarniðurstaða A-hluta ................................. |
5.778 |
|
"
A- og B-hluta........................ |
2.442 |
|
Skuldir og skuldbindingar A- hluta ..................... |
20.741 |
|
" "
A- og B-hluta ........... |
76.373 |
|
Eigið fé A-hluta
........................................ |
110.641 |
|
" A-hluta og
B-hluta ....................... |
105.980 |
4. Fulltrúi á aðalfund Þróunarstofu
Austurlands kosinn
Kristjana Björnsdóttir.
5. Markaðsstofa Austurlands:
Samþykkt að
framlengja þjónustusamning við stofuna til næstu þriggja ára.
6. Héraðsstjórnarfundargerð 12. mai
lögð fram til kynningar.
7. Girðingar:
Fram lögð
greinargerð landbúnaðarnefndar um möguleika á að girt verði meðfram
Útbæjavegi. Flestallir landeigendur á svæðinu hafa undirritað áskorun
þess efnis. Landbúnaðarnefnd mun hreyfa málinu við Vegagerðina.
Hreppsnefndin hvetur mjög til þessarar framkvæmdar og er tilbúin að
liðka fyrir málinu með lánveitingu ef fjárskortur stendur í vegi fyrir
því.
8. Skoðanakönnun:
Rannsóknastofnun háskólans á Akureyri hefur lagt fram niðurstöður úr
skoðanakönnun um viðhorf íbúa Borgarfjarðarhrepps til sameiningarmála.
Helmingur svarenda telur sameiningu við Fljótsdalshérað vænlegastan kost
en hinn helmingurinn telur enga sameiningu vænlegasta kostinn. Könnunin
í heild er til reiðu í Hreppsstofu.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl 21:00
Undirskriftir
Magnús Þorsteinsson
fundarritari
Fundargerð 05.05.02 - 08
Árið 2005, mánudaginn
2. mai var fundur haldinn í hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps, sem hófst
kl 17:00 í Hreppsstofu. Til fundar mættu Kristjana, Jakob, Jón Sigmar og
Jóna Björg ásamt sveitarstjóra. Bjarni mætti í stað Baldurs. Einar E.
Sæmundsen skipulagsráðgjafi sat fundinn undir dagskrárlið l. Fyrir var
tekið:
1. Aðalskipulag Borgarfjarðarhrepps 2004 - 2016:
Að liðnum athugasemdafresti 9. mars höfðu borist athugasemdir frá 5
aðilum.
Síðar barst umsögn frá landbúnaðarráðuneytinu, sem gerði ekki
athugasemdir við samþykkt tillögunnar. Athugasemdirnar sem bárust voru
frá eftirtöldum:
1) Birni Ingvarssyni og Þórhalli Þorsteinssyni
2) Búnaðarfélagi Borgarfjarðar
3) Þorsteini Kristjánssyni
4. Ásgeiri Arngrímssyni og Jóhönnu Borgfjörð
5. Landeigendum í Loðmundarfirði
Einar fór í byrjun yfir allar athugasemdirnar og drög að svörum við
þeim.
Að því loknu voru athugasemdirnar teknar fyrir hver og ein og þær
afgreiddar sem hér segir í stuttu máli. Um nánari afgreiðslu vísast til
greinargerðar með aðalskipulaginu.
1) Frá BI og ÞÞ: Hreppsnefndin samþykkir að verða við athugasemdum
þeirra.
2) Frá Búnfél Bf: Hreppsnefndin fellst ekki á að hækka efri mörk
landbúnaðarsvæðis
úr 200 í 300 metra en rýmkar nýtingarheimildir ofan 200 metra með
orðalagsbreytingu. Skýringar sem Búnaðarfélaginu verða sendar eiga að
gefa svör
við athugasemdum um að þrengt sé að ferðaþjónustu bænda.
3) Frá ÞKr: Litið er svo á að heimilt sé að gera fjárréttir og girðingar
á Víkum og í
Loðmundarfirði. Hreppsnefndin sér ekki ástæðu til breytinga á texta um
vistvæna
og lífræna ræktun.
4) Frá ÁA og JB: Svör við athugasemdum þeirra koma fram undir öðrum
töluliðum.
5) Frá landeig. Lf: Vegna andmæla þeirra við "hverfisfriðun"er bent á að
hverfisvernd
hefur verið á svæðinu með svæðisskipulagi Héraðssvæðis frá árinu 2001.
Reglur um hið hverfisverndaða svæði eru til undirbúnings væntanlegri
friðlýsingu
en komið er til móts við landeigendur með rýmkuðum heimildum til að
reisa
frístundahús. Hreppsnefndin sér ekki ástæðu til annars en að halda
jeppavegi fyrir
Borgarnes inn á skipulaginu enda gerir það aðeins mögulega framkvæmd
síðar án
þess að til þurfi að koma breytingar á aðalskipulaginu. Hreppsnefndin
sér ekki að
nein rök séu færð fyrir þeirri fullyrðingu að skipulagið " muni rýra
eignarrétt okkar,
þrengja stórlega að möguleikum okkar á að nýta eigin lönd og verðfella
þau".
Ekki hafa borist athugasemdir við tillögum að breytingum á
svæðisskipulagi Héraðssvæðis.
Aðalskipulag Borgarfjarðarhrepps 2004 - 2016 var að gerðum þessum
breytingum samþykkt samhljóða og verður sent Skipulagsstofnun til
staðfestingar.
2. Skýrsla sveitarstjóra:
Rætt var lítilsháttar um hafnargerð, Breiðvang II, Kjarvalsstofu,
heimagistingu
ADSL og loftmyndir af Víkum. Hreppsnefndin samþykkti formlega að slit á
félagsþjónustu Héraðssvæðis og Menningarsjóði miðist við 31.12.2004.
3. Svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs:
Samþykkt að taka þátt í gerð sameiginlegrar svæðisáætlunar um meðhöndlun
úrgangs á Austurlandi.
4. Ársreikningur Borgarfjarðarhrepps 2004 samþykktur eftir fyrri
umræðu.
Fleira ekki gert. Fundi
slitið kl 20:30
Undirskriftir
Magnús Þorsteinsson
fundarritari
Fundargerð 05.04.18 - 08
Árið 2005, mánudaginn 18.
apríl kom hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps saman á fund í Hreppsstofu kl
17:00. Á fundinum voru Kristjana, Jakob, Jón Sigmar, Jóna Björg og
Baldur ásamt sveitarstjóra. Á fundinum gerðist þetta:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
Nokkur atriði voru til umfjöllunar þ.á m. sameiningartillögur,
upplýsingaskilti
og hreppsábyrgð á láni Álfasteins heitins. Hreppsnefndin samþykkti veð
sem Álfasteinn hinn nýi setur vegna skuldabréfs, sbr. síðustu
fundargerð.
2. Staðardagskrá 21:
Lögð fram tillaga að Staðardagskrá 21, sem nefnd kjörin af hreppsnefnd
hefur samið með aðstoð Ragnhildar Helgu Jónsdóttur umhverfisfræðings.
Hreppsnefndin samþykkti tillöguna einróma með örlitlum breytingum.
Hreppsnefndin fól síðan staðardagskrárnefndinni að starfa áfram og
fylgja málinu eftir með kynningu og úttektum á framvindu mála með vissu
millibili.
3. Búfjárhaldssamþykkt:
Fram lögð að nýju tillaga að samþykkt um búfjárhald í
Borgarfjarðarhreppi, sem farið hefur í umsagnarferli samhliða tillögu að
aðalskipulagi Borgarfjarðarhrepps.
Nokkrar umsagnir bárust og gengu þær að mestu út á mótmæli við
lausagöngubanni sauðfjár í Loðmundarfirði. Hreppsnefndin samþykkti með 4
atkvæðum að fella út 5. gr. samþykktarinnar. Svo breytt var samþykkt um
búfjárhald í Borgarfjarðarhreppi samþykkt einróma.
Fleira ekki gert. Fundi
slitið kl 20:15
Undirskriftir
Magnús Þorsteinsson
fundarritari
Fundargerð 05.04.04 - 07
Árið 2005, mánudaginn
4. apríl kom hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps saman til fundar í
Hreppsstofu kl 17:00. Á fundinum voru Jóna Björg, Kristjana, Jakob, Jón
Sigmar og Baldur ásamt sveitarstjóra. Þetta gerðist á fundinum:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
Þar voru til umræðu og upplýsingar nokkur atriði svo sem rekstrarframlag
v/félagsíbúða, byggðakvóti, Fjarðarársamningur, sjóvarnir,
hafnarreglugerð, refaveiðimenn, fuglabæklingur, vinnuskóli,
upplýsingaskilti, loftmyndagrunnur og verklag við umfjöllun athugasemda
vegna skipulags og búfjárhaldssamþykktar.
Ákveðið að taka kauptilboði Péturs Hjaltasonar í íbúð í Smáragrund.
Söluverð kr 4,0 millj.
2. Landmótunarreikningur:
Hreppsnefndin er samþykk framlagðri tillögu sveitarstjóra að bréfi til
Landmótunar vegna viðbótargreiðslna fyrir vinnu við skipulagið, sem
einkum eru með hlutdeild í áætlaðri sérfræðivinnu.
3. Menningarsamningar:
Hreppsnefndin staðfestir samninga um menningarmál, sem gerðir voru á
Breiðdalsvík 15. mars sl. Annarsvegar um samstarf ríkis og sveitarfélaga
á Austurlandi um menningarmál og hins vegar samstarfssamningur
sveitarfélaga á Austurlandi um menningarmál.
4. Niðurfelling fasteignaskatta:
Farið yfir niðurfellingalista fasteignaskatta íbúðarhúsnæðis.
Niðurfellingarreglurnar verða endurskoðaðar fyrir næstu álagningu.
5. Fjallskilasamþykkt:
Starfshópur á vegum Héraðsnefndar Múlasýslna, sem vinnur að endurskoðun
fjall-skilasamþykktar Múlasýslna óskar eftir tillögum sveitarstjórna um
breytingar á henni.
Hreppsnefndin telur ófullkomin og úrelt fjallskilalög höfuðvandann, sem
erfitt er að ráða bót á með nýrri fjallskilsamþykkt enda framkvæmd
fjallskilanna víða meira vandamál en fjallskilasamþykktin sjálf.
6. Atvinnuaukningarsjóður:
Ein lánsumsókn barst, frá Álfasteini ehf. Hreppsnefndin samþykkir 1,5
millj. lánveitingu til Álfasteins með tryggingum sem hreppsnefndin
samþykkir.
7. Þriggja ára fjárhagsáætlun 2006 - 2008 samþykkt einróma við
síðari umræðu.
Fleira ekki gert. Fundi
slitið kl 20:40
Undirskriftir
Magnús Þorsteinson
fundarritari
Fundargerð 05.03.07 - 06
Árið 2005, mánudaginn
7. mars, var fundur haldinn í hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps sem hófst
kl 17:00 í Hreppsstofu. Fundarmenn: Kristjana, Jakob, Jón Sigmar, Jóna
Björg og Baldur ásamt sveitarstjóra. Þetta gerðist á fundinum:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
Drepið var á eftirfarandi mál, stöðu þeirra og framgang:
Bláfánaumsókn, íbúðir í sölumeðferð, byggðakvóta, skoðanakönnun, leigu á
Fjarðará, húsaleigubætur í heimavistum, hunda- og kattagjöld,
fjárhagsáætlun 2005, endurgreiðslur vegna sveitarotþróa,
íslenskunámskeið fyrir nýbúa, héraðsþing á
Fljótsdalshéraði og greinargerð frá Ferðamálahópnum.
2. Aðalfundur Menningarráðs Austurlands verður á Breiðdalsvík 15.
mars.
Stefnt að því að senda fulltrúa á fundinn.
3. Fundargerðir Héraðsstjórnar og samstarfshóps um byggðasamlög
23. feb.
lagðar fram til kynningar.
4. Hreppsnefndin felur oddvita að undirrita friðarsamning
Evrópusambands
Soroptimista og Borgarfjarðarhrepps.
5. Landmótunarreikningur:
Landmótun, sem hefur á hendi ráðgjöf vegna aðalskipulags
Borgarfjarðarhrepps, sem nú er á lokastigi, fer fram á viðbótargreiðslur
vegna aukavinnu við skipulagið, einkum vegna Náttúruverndaráætlunar.
Hreppsnefndin vill koma nokkuð til móts við óskir Landmótunar og felur
sveitarstjóra að gera tillögu um afgreiðslu á málinu að höfðu samráði
við Skipulagsstofnun, sem greiðir helming kostnaðar við Skipulagið.
Stefnt er að afgreiðslu málsins á næsta fundi nefndarinnar.
6. Þriggja ára fjárhagsáætlun 2006 - 2008 samþykkt við fyrri
umræðu.
Fleira ekki gert. Fundi
slitið kl 21:00
Undirskriftir
Magnús Þorsteinsson
fundarritari
Minnt er á eindaga
umsókna um lán úr Atvinnuaukningarsjóði 1. apríl nk.
Eftirtalin hljóðfæri úr eigu tónskólans eru til sölu hjá Margréti
Bragadóttur:
Klarinet, trompet og tvær þverflautur.
Fundargerð 05.02.14 - 05
Árið 2005, mánudaginn
14. febrúar, kom "kvótahreppsnefnd" Borgarfjarðarhrepps saman á fund í
Hreppsstofu kl 17:45. Mætt voru: Kristjana, Jóna Björg og Jakob ásamt
sveitarstjóra. Á dagskrá var eitt mál:
Úthlutun byggðakvóta í Borgarfjarðarhreppi:
Tveir umsækjendur lögðu fram fullnægjandi greinargerðir um ráðstöfun
aflaheimilda á síðasta fiskveiðiári, sbr. síðustu fundargerð
kvótahreppsnefndar.
Greinargerð þriðja umsækjandans skýrir ekki mál hans til fulls en vegna
vélarbilunar í báti hans ákvað hreppsnefndin að láta við svo búið
standa.
Hreppsnefndin samþykkti síðan að leggja til við sjávarútvegsráðuneytið
að byggðakvóta Borgarfjarðarhrepps, 56 þorskígildislestum, verði skipt
milli eftirtalinna ellefu báta, 5.091 þorskígildiskíló til hvers:
Hafbjörg Sknr 2056, Emil Sknr 1963, Högni Sknr 1568, Hjörleifur Sknr
9055,
Gletta Sknr 6305, Sædís Sknr 2508, Góa Sknr 6605, Baui frændi Sknr 6030,
Eydís Sknr 2132, Teista Sknr 6827, Sæfaxi Sknr 2465.
Fleira ekki gert. Fundi
slitið kl 18:45
Undirskriftir
Magnús Þorsteinsson
- fundarritari -
Fundargerð 05.02.07 - 04
Árið 2005, mánudaginn
7. febrúar, kom hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps saman til fundar í
Hreppsstofu kl 17:00. Fundarmenn: Kristjana, Baldur, Jakob og Jón Sigmar
ásamt sveitarstjóra. Jóna Björg var forfölluð og ekki náðist til
varamanns.
Þetta gerðist á fundinum:
1. Skýrsla sveitarstjóra: Stutt og laggóð.
2. Fjárhagsáætlun 2005 samþykkt einróma eftir síðari umræðu.
Helstu niðurstöðutölur áætlunarinnar eru í þús. króna: Skatttekjur
46.000.
Bókfærðar heildartekjur 78.300. Rekstrarafgangur fyrir afskriftir og
afborganir langtímaskulda 11.386. Fjárfestingar 8.500. Rýrnun
lausafjárstöðu 714.
3. Byggðasamlög og fundargerðir:
Fram lögð Héraðsstjórnarfundargerð 26. jan. og fundargerð starfshóps
Fljótsdalshéraðs með fulltrúa Borgarfjarðarhrepps 19. janúar. Auk
málefna á vegum Héraðsstjórnar var á fundunum rætt um hvernig
sameiginlegum verkefnum yrði háttað eftir undangengnar breytingar á
sveitarfélagaskipan á Héraði. Hreppsnefndin setur sig ekki upp á móti
því að byggðasamlagi um félagsþjónustu á Héraðssvæði verði slitið og er
reiðubúin til samninga við Fljótsdalshérað um þjónustusamning og aðild
að félagsmálanefnd. Nefndin vill hins vegar að skoðað verði
áframhaldandi samstarf um önnur verkefni. Oddviti og sveitarstjóri hafa
umboð til viðræðna um samstarfs-verkefnin.
Fleira ekki gert. Fundi
slitið kl 22:00
Undirskriftir
Magnús Þorsteinsson
fundarritari
Fundargerð 05.02.07 - 03
Árið 2005, mánudaginn
7. febrúar, kom "kvótahreppsnefnd" Borgarfjarðarhrepps saman á fund í
Hreppsstofu kl 16:00. Fundarmenn: Kristjana, Jakob og Jón Sigmar ásamt
sveitarstjóra. Fyrir var tekið eina mál fundarins, úthlutun á
byggðakvóta í Borgarfjarðarhreppi.
Fyrir lok umsóknarfrests höfðu borist ellefu umsóknir um kvóta vegna
jafmargra báta.
Skv. upplýsingum á vef Fiskistofu hafa þrír umsækjendur sem fengu
úthlutað byggðakvóta á síðasta ári leigt frá sér meiri aflaheimildir en
þeir fengu til sín á fiskveiðiárinu og virðast því ekki hafa staðið við
samningsskilmálana.
Áður en hreppsnefndin tekur afstöðu til umsókna þeirra mun hún gefa þeim
kost á að skýra málið skriflega fyrir kl 16:00 mánudaginn 14. febrúar
n.k. Hreppsnefndin mun þá taka afstöðu til fyrrgreindra ellefu umsókna.
Fleira ekki gert. Fundi
slitið kl 16:55
Undirskriftir
Magnús
Þorsteinsson
fundarritari
Fundargerð 05.01.31 - 02
Árið 2005, mánudaginn
31. janúar, var fundur haldinn í hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps, sem
hófst í Hreppsstofu kl 17:00. Fundarmenn: Jón Sigmar, Kristjana, Baldur,
Jóna Björg ásamt sveitarstjóra. Jakob kom til fundar kl 17:30.
Þetta var gert á fundinum:
1. Byggðakvóti:
Sjávarútvegsráðuneytið hefur fallist á eftirfarandi tillögur
hreppsnefndar Borgarfjarðarhrepps um úthlutun aflaheimilda, sbr.4.mgr.
4. gr. reglugerðar
nr. 960/2004, um úthlutun á 3.200 þorskígildislestum til stuðnings
byggðarlögum:
1. Hreppsnefndin auglýsir eftir umsóknum um Byggðakvótann.
2. Byggðakvótanum verður skipt jafnt milli þeirra báta sem skráðir voru
og gerðir út frá Borgarfirði í upphafi fiskveiðiársins og sótt hefur
verið um byggðakvóta fyrir.
3. Þeir sem fá úthlutað byggðakvóta skuldbindi sig til að leggja hann
upp til vinnslu á Borgarfirði. Þá skuldbindi þeir sig ennfremur til að
selja ekki eða leigja frá sér aflaheimildir á fiskveiðiárinu umfram það
sem þeir kaupa eða leigja til sín.
4. Telji einhver, sem hefur fengið til sín byggðakvóta, sér nauðsynlegt
að láta frá sér meiri aflaheimildir en hann fær til sín sbr. 3. tl. þá
skal viðkomandi gera hreppsnefndinni grein fyrir því fyrir lok
maímánaðar og afsala sér jafnframt byggðakvótanum, sem þá verður skipt
milli annarra báta á Borgarfirði sem úthlutun hafa fengið.
Til úthlutunar eru 56 þorskígildistonn í Borgarfjarðarhreppi.
Umsóknarfrestur er til kl 16:00 mánudaginn 7. febrúar 2005.
2. Fjárhagsáætlun 2005:
Samþykkt einróma eftir fyrri umræðu.
Fleira ekki gert. Fundi
slitið kl 21:00
Undirskriftir
Magnús Þorsteinsson
fundarritari
Fundargerð 05.01.17 - 01
Árið 2005, mánudaginn
17. jan. kom hreppsnefnd Borgarfjarðarhrepps saman til fundar í
Hreppsstofu kl 17:00. Fundarmenn: Jóna Björg, Jón Sigmar, Jakob,
Kristjana og Baldur ásamt sveitarstjóra. Þetta var gert á fundinum:
1. Skýrsla sveitarstjóra:
Fram kom m.a. að samþykkt hafði verið smá fjárveiting af sjóvarnafé
vegna Karlfjöru. Starfsleyfi hefur verið gefið út vegna sorpurðunar á
Brandsbölum til 2017.
Aðalskipulagið er nú að fara í auglýsingaferli. Ákveðið að sækja um
Bláfánann 2005.
Lagðar verða kr 20.000 til neyðarhjálpar úr norðri. Athugað verður um
íslensku-kennslu vegna nýbúa.
2. Staðardagskrá 21:
Tilnefnd hafa verið í vinnuhóp vegna verkefnisins: Margrét Bragadóttir,
Bjarni Sveinsson, Þorsteinn Kristjánsson, Ólafur Hallgrímsson, Jóna
Björg Sveinsdóttir og Kristjana Björnsdóttir. Hópurinn hefur haldið einn
fund með verkefnisstjóra, Ragnhildi H. Jónsdóttur, sem hafði komið áður
á fund með hreppsnefndinni.
Hreppsnefndin samþykkti "Ólafsvíkuryfirlýsinguna" einróma.
3. Fundargerðir landbúnaðarnefndar lagðar fram til kynningar og
nokkurrar umræðu. Hreppsnefndir væntir niðurstöðu frá nefndinni um
athugun á Útbæjavegargirðingu hið fyrsta.
4. Skoðanakönnun:
Fram lagður verksamningur við rannsóknarstofnun Háskólans á Akureyri um
könnun á viðhorfi til sameiningar sveitarfélaga, sem hreppsnefndin er
samþykk.
5. Fjárhagsáætlun 2005:
Unnið að gerð fjárhagsáætlunar.
Fleira ekki gert. Fundi
slitið kl 20:00
Undirskriftir
Magnús Þorsteinsson
fundarritari
05.09.05
|