|
Getraunir
Getraunir frá 2003
Hér munum við leika okkur
með myndagetraunir. Myndir birtast hér og svara þarf innan
10 daga af hverju þær eru. Þá drögum við úr réttum svörum og
sigurvegarinn fær send til sín verðlaun sem verða mismunandi eftir
spurningum.
Áframhald á getrauninni
fer eftir áhuga ykkar og þátttöku.
Af gefnu tilefni!
Það hafa að sjálfsögðu allir rétt á að svara alltaf, burtséð frá því
hvort þeir hafa tekið þátt áður eða unnið til verðlauna.
Þetta er eins og í happdrættinu - miði er möguleiki. Að sjálfsögðu
er öllum heimilismönnum heimilt að svara sömu spurningunni.
Takið endilega þátt í þessum létta leik.
22. spurning: 21. mars 2004.
Svar þarf að berast fyrir 31. mars 2004 |
|
Hvað heitir nesið hægra megin
fyrir miðri mynd? |
 |
|
Sendu
okkur svarið á:
helgima@mi.is
Verðlaun:
Söngbók og „Víknaslóðabókin“.
|
Svar við spurningu 21 er:
Baldur Guðlaugsson. Alls svöruðu 18 manns
spurningunni og allir voru með rétt svar.
Úr réttum svörum var svo dreginn Árndís
Georgsdóttir og fær hún sent til sín lítið páskaegg. Til hamingju
Árndís.
21. spurning: 11. mars 2004.
Svar þarf að berast fyrir 21. mars 2004 |
|
Hver á þennan bát? |
 |
|
Sendu
okkur svarið á:
helgima@mi.is
Verðlaun:
Lítið páskaegg.
|
Svar við spurningu 20 er:
Fjórar rjúpur. Alls svöruðu 10 manns
spurningunni en þrír voru með vitlaust svar. Þeir sáu allir fimm
rjúpur.
Úr réttum svörum var svo dreginn Sigurður
Jakobsson, Hlíðartúni og fær hann sendar til sín tvær
söngbækur. Til hamingju Sigurður.
20. spurning: 29. febrúar 2004.
Svar þarf að berast fyrir 10. mars 2004 |
|
Hvaða fugl er þetta og hvað eru
margir á myndinni? |
 |
|
Sendu
okkur svarið á:
helgima@mi.is
Verðlaun:
Tvær söngbækur.
|
Svar við spurningu 19 er:
Bláklukka. Í
raun er réttara svar - sem flestir svöruðu líka réttilega - Hvít
bláklukka. Þetta er það sem kallað er albinói eða
hvítingi sem finnst í nokkuð mörgum öðrum blómtegundum m.a. blágresi og
svo eru líka til hvít krækiber. Svo er líka til hvít
skósverta - hugsið ykkur hve hvíti liturinn getur verið mismunandi á
litinn.
Níu svöruðu og átta höfðu
rétt fyrir sér.
Úr réttum svörum var svo dreginn Ásta
Steingerður Geirsdóttir og fær hann sendar til sín tvær
söngbækur. Til hamingju Ásta.
19. spurning: 16. febrúar 2004.
Svar þarf að berast fyrir 28. febrúar 2004 |
|
Hvaða blóm er þetta? |
 |
|
Sendu
okkur svarið á:
helgima@mi.is
Verðlaun:
Tvær söngbækur.
|
Svar við spurningu 18 er:
Helgi Eyjólfsson. Hann smíðaði þennan
bíl að hluta til sjálfur. Heimildir herma að hann hafi fengið
bílinn norður í Fnjóskadal en þar var hann notaður sem mjólkurbíll.
Sjö svöruðu og fimm höfðu
rétt fyrir sér.
Úr réttum svörum var svo dreginn Sverrir
Aðalsteinsson og fær hann sendar til sín tvær söngbækur.
Til hamingju Sverrir.
18. spurning: 6. febrúar 2004.
Svar þarf að berast fyrir 16. febrúar 2004 |
|
Hver átti vörubílinn sem er á myndinni? |
 |
|
Sendu
okkur svarið á:
helgima@mi.is
Verðlaun:
Tvær söngbækur.
|
Svar við spurningu 17 er:
Anna G. Helgadóttir, Valgerður
Jónsdóttir og María Þorkelsdóttir.
Átta svöruðu og sjö höfðu
rétt fyrir sér.
Úr réttum svörum var svo dreginn Sverrir
Aðalsteinsson og fær hann sendar til sín tvær söngbækur.
Til hamingju Sverrir.
|
17. spurning
27. janúar 2004.
Svar þarf að berast fyrir 6. febrúar 2004 |
Hvaða þrjár heiðurskonur eru þetta?
Myndin er tekin sumarið
1937. |
|

|
|
Sendu
okkur svarið á:
helgima@mi.is
Verðlaun:
Tvær söngbækur.
|
Svar við spurningu 16 er:
Svartfell.
24
sendu svar og það er met. Þrjú svör voru röng.
Greinilegt er að margir kíkja reglulega inn á vefinn. Til
gamans getið þið smellt á myndina hér til hægri og þá fáið þið upp mun
víðari mynd af svæðinu.
Úr réttum svörum var svo dregin
Sigrún H. Arngrímsdóttir og fær hún sendar til sín tvær
söngbækur. Til hamingju Rúna Dóra
|
16. spurning
17. janúar 2004.
Svar þarf að berast fyrir 27. jan. 2004 |
Hvaða fjall er hér á miðri myndinni?
Myndin er tekin sumarið 2003 úr flugvél. |
|

|
|
Sendu
okkur svarið á:
helgima@mi.is
Verðlaun:
Tvær söngbækur.
|
Svar við spurningu 15 er:
Baldur Guðlaugsson.
Eitthvað vafðist þetta
meira fyrir fólki en oft áður því við fengum aðeins 9 svör og 8 þeirra
voru rétt. Eflaust er þetta fermingarhjólið hans og takið eftir
speglunum, beggja vegna. Þetta var toppirinn í þá tíð og
gott ef hann er ekki með flautu líka. Er þetta ekki DBS?
Úr réttum svörum var svo dregin
Arna Soffía Dahl Christiansen og fær hún sendar
til sín tvær söngbækur. Til hamingju Arna!
|
15. spurning
7. janúar 2004.
Svar þarf að berast fyrir 17. jan. 2004 |
Hver er þessi ungi maður á reiðhjólinu?
Myndin er tekin 1965 |
|
 |
|
Verðlaun:
Tvær söngbækur.
|
Svar við spurningu 14 er:
Ólafur Ágústsson, Þórður Jónsson, Ólöf Jóhannsdóttir, Björgheiður
Andrésdóttir og Þorbjörg Pálsdóttir.
Varðandi vísbendinguna þá varð Þórður mágur Tobbu og Óli
mágur Ollu.
Við fengum 9 svör og þar
af voru 6 rétt.
Úr réttum svörum var svo dregin
Erla Ólafsdóttir og fær hún sendar
til sín tvær söngbækur. Til hamingju Erla!
|