|
Hér munum við leika okkur
með myndagetraunir. Myndir byrtast hér og svara þarf innan
10 daga af hverju þær eru. Þá drögum við úr réttum svörum og
sigurvegarinn fær send til sín verðlaun sem verða mismunandi eftir
spurningum.
Áframhald á getrauninni
fer eftir áhuga ykkar og þátttöku.
Af gefnu tilefni!
Það hafa að sjálfsögðu allir rétt á að svara alltaf, burtséð frá því
hvort þeir hafa tekið þátt áður eða unnið til verðlauna.
Þetta er eins og í happdrættinu - miði er möguleiki. Að sjálfsögðu
er öllum heimilismönnum heimilt að svara sömu spurningunni.
Takið
endilega þátt í þessum létta leik.
| 14. spurning 25.des. 2003.
Svar þarf að berast fyrir 5. jan. 2004 |
Myndin er tekin í skemmtiferð UMFB í Partafjall 1935
Hverjir eru á myndinni?
Smá vísbending: strákarnir urðu síðan mágar
tveggja stúlknanna. |
 |
|
Verðlaun:
Tvær söngbækur.
|
Svar við spurningu 13 er:
Steinunn Þóra Helgadóttir og Eiríkur Gunnþórsson.
Myndina tók Sverrir Aðalsteinsson á þorrablóti 1965. Aðeins tveir
voru með ártalið rétt.
Við fengum 17 svör og þar
af voru 15 rétt. Sella og Maggi fengu tvö „atkvæði
Úr réttum svörum var svo dregin
Guðný Ólafsdóttir og fær hún sendar
til sín tvær söngbækur. Til hamingju Guðný!
|
Áramótaspurningin
2003
13. spurning 22.des. 2003.
Svar þarf að berast fyrir 31. des. 2003 |
|
Hvað heita
þessir dansarar?
Hvenær gæti myndin verið tekin?
Ljósm: Sverrir Aðalsteinsson |
|
 |
|
Verðlaun:
Tvær söngbækur - aukabók fyrir rétt ártal.
|
Svar við spurningu 12 er:
Hannes Árnason Grund, Jón Sigurðsson Sólbakka, Andrés
Björnsson Snotrunesi og Björn Þorkelsson Bakkastekk
Við fengum 14 svör og þar
af voru 11 rétt. Bubbi og Sveinn Bjarna fengu líka „atkvæði“.
Oft koma inn skemmtileg bréf með svörunum og óvenju ýtarlegt bréf kom
núna frá Desjarmýrarfeðgum. Fær Sigmar sérstakar kveðjur fyrir
eftirfarandi texta:
Hrútarnir eru Geisli Jóns á Sólbakka 3 vetra brjóstmál 114 spjald 26 cm
vóg 112 kg, fékk 1 verðlaun stóð efstur fullorðinna hrúta.
Spakur Björns á Stekk 3 vetra vóg 112 kg með 27 sm spjald stóð næst
efstur fullorðinna hrúta hann var fæddur á Desjarmýri 20 maí 1960
foreldrar Holti og Grýður.
Grettir Hannesar á Grund stóð efstur veturgamalla hrúta, heimaalinn
undan Kúða
Myndin var tekin þann 20 október 1963. Eitthvað gekk illa að
stilla hrútunum upp til myndatökunnar en allt í einu segir Hannes „nú
brosir minn“ og þegar hann sleppir orðinu var myndinni smellt af.
Sigmar Ingvarsson Desjarmýri
Þá er komið að
verðlaununum en útdrátturinn varð þannig:
1. Ljóðabók Ásgríms
Inga: Björn Aðalsteinsson,
2 - 5. Göngukort og söngbók: Anna Gerður Hjaltadóttir,
Ágúst Ólafsson, Fjóla Ásgeirsdóttir og Jón Sigmar Sigmarsson.
Til hamingju öll.
|
Jólaspurningin
2003
12. spurning 12.des. 2003.
Svar þarf að berast fyrir 22. des. 2003 |
|
Hvað
heita þessir fjórir heiðursmenn?
Tekið á hrútasýningu 1963 - Ljósm: Sverrir
Aðalsteinsson |
|
 |
|
Verðlaun: 1.
verðlaun: Ljóðabók Ásgríms Inga
2. - 5. verðlaun: Göngukort og söngbók.
|
8.12. 2003
Svar við spurningu 11 er:
Gunnhildur.
Myndn er tekin neðan við Oddana. Nes er beint neðan við bátinn sem
er á firðinum.
Nú
fengum við 15 svör en þrír svöruðu Dagmálafjall. Gunnhildur
er fyrir miðri mynd en örlítið sér ofan á Dagmálafjallið handan hennar.
Ekki var hægt að gefa rétt fyrir það svar en til að átta sig betur á
þessu fylgir hér með mynd af báðum fjöllunum, tekin frá Klippstað.
Gunnhildur er vinstra megin, Dagmálafjallið hægra megin og ber við
himinn en Svartafell er framar, hægra megin við kirkjuna.
Úr tólf réttum svörum var svo dregið og Ágúst Ólafsson fær sent
til sín göngukort og bók. Til hamingju Gústi!
|
11. spurning 7.des. 2003.
Svar þarf að berast fyrir 17. des. 2003 |
|
Hvað
heitir fjallið fyrir miðri mynd? (Með
þokuslæðunni).
(Það er í Loðmundarfirði) |
 |
|
Verðlaun:
göngukortið og myndabókin um Borgarfjörð og Víknaslóðir
|
Nú þegar eru komin 20 rétt
svör við 10. spurningu - síðasti svardagur er í dag 7. des.
8.12. 2003
Svar við spurningu 10 er:
Hjálmar Björn Geirsson, Þorsteinn Sveinbjörnsson og Hallgrímur Árni
Vigfússon.
Myndin er tekin árið 1965 og á því ári urðu þessir öðlingar 15 ára.
Þorsteinn var hér með foreldrum sínum ein tvö sumur en faðir hans,
Sveinbjörn G. Þorsteinsson var vörubílstjóri hjá söltunarstöðinni Borg.
Við fengum nú met af svörum eða 20
talsins og öll rétt. Því miður voru tvö þeirra ekki send undir
nafni þannig að aðeins var dregið úr 18 svörum. Fimm þeirra
sem svöruðu voru með alla þrjá rétta og þar á meðal Jóhanna Óladóttir
en hennar nafn var dregið úr bunkanum. Fær hún formlega
afhent göngukort, bók og tvær söngbækur - til hamingju!
Einhverjir giskuðu á þann í miðjunni.
Upp komu m.a. Eiríkur Gunnþórsson og Magnús Gunnþórsson.
|
10. spurning 28.nóv. 2003.
Svar þarf að berast fyrir 8. des. 2003 |
Nefnið tvo af þessum
myndarlegu drengjum.
Ef sá sem dreginn verður út hefur líka rétt nafn þess þriðja þá fær
hann að auki tvær söngbækur! |
|
 |
|
Verðlaun:
göngukortið og myndabókin um Borgarfjörð og Víknaslóðir
|
1.12. 2003
Svar við spurningu 9 er:
Hafþór Snjólfur Helgason, Guðmundur Þór Þorsteinsson og Ólafur
Björnsson.
Myndin er tekin á Sumarhátíð UÍA á Eiðum sumarið 1988 en þeir félagar
voru hluti 6. flokks UMFB í knattspyrnu sem keppti þar. Hafþór og
Guðmundur eru þarna 8 ára en Óli 7 ára.
Nú fengum við 13 svör og tvö
þeirra
voru röng. Úr þeim réttu var degið og Guðný Sigríður
Ólafsdóttir fær
sent til sín í pósti göngukort og bók. Til hamingju Guðný!
Hér
getið þið séð alla myndina með því að smella á hana.
Á myndinni eru í aftari röð frá vinstri: Sigurlaug Anna
Kristinsdóttir, Guðmundur Magni Ásgeirsson, Rannveig Hulda Ólafsdóttir,
Sveinn Guðmundsson, Ottó Freyr Jóhannsson, Borgþór Geirsson og
Sigursteinn Sigurðsson.
Fremri röð frá vinstri: Arnar Pétursson, Óli Rúnar Jónsson, Hafþór
Snjólfur Helgason, Guðmundur Þór Kristjánsson og Ólafur Björnsson.
Skemmtileg er sagan um fólkið sem þekkti
Þorstein á Jökulsá og Bjössa Alla en voru ekki alveg vissir um þennan
sem var lengst til hægri. Kannski var á honum Bakkasvipur.
Spurning hvort það gæti verið Helgi Arngríms. Svona geta nú
myndir verið villandi - eða afkomendur líkir forfeðrunum.
|
9. spurning 21.nóv. 2003.
Svar þarf að berast fyrir 1. des. 2003 |
|
Hvað heita þessir ungu
heiðursmenn. |
|
 |
|
Verðlaun:
göngukortið og myndabókin um Borgarfjörð og Víknaslóðir
|
21.11. 2003
Svar við spurningu 8 er:
Guðmundur Sveinsson, Svavar Björnsson og Reynir Björnsson.
Myndin
er tekin við íþróttavöll UMFB sennilega 1964.
(Myndin er merkt APR 1965) Þið getið skoðað
hér mynd af öllu knattspyrnuliðinu. Reynir er þarna 16 ára,
Svavar 17 ára og Gummi að verða 21. árs.

Nú fengum við 12 svör og aðeins eitt
þeirra
var rangt. Úr þeim réttu var degið og Sveinbjörg Óladóttir fær
sent til sín í pósti göngukort. Til hamingju Sveina!
Til gamans má geta að sá sem ekki var með þetta rétt hélt að Svavar væri
Palli í Hvannstóð og Reynir væri Valli. Greinilegt er að
þegar langt um líður þá sést ættarmótið vel en Gummi á Hól breytist
ekkert!
Til gamans og fróðleiks þá er rétt að telja upp hverjir eru á stóru
myndinni. Aftari röð frá vinstri: Helgi
Eyjólfsson, Skúli Andrésson, Ásgeir Arngrímsson, Jón Þorbjörn
Hilmarsson, Páll Þórðarson, Elvar Hjaltason, Sigurður Óskar Pálsson, Jón
Björnsson, Guðmundur Jóhannsson, Hannes Óli Jóhannsson, Haukur Geirsson,
Bjarnþór Aðalsteinsson og Jón Björnsson.
Fremri röð frá vinstri: Magnús Bjarni Helgason, Þorkell Helgason,
Guðmundur Sveinsson, Svavar Björnsson, Pétur Reynir Björnsson, Friðjón
Sigurjónsson, Eiríkur Gunnþórsson, Baldur Aðalsteinsson,
Grétar Arnbergsson, Sveinbjörn G. Þorsteinsson og Sigurður sonur hans.
Bjarni Geirsson tók þessa mynd, sennilega sumarið 1964. Fjárhús Geirs í
Steinholti eru í bakgrunni.
|
8. spurning 11.nóv. 2003.
Svar þarf að berast fyrir 21. nóv. 2003 |
|
Hvað heita þessir ungu
heiðursmenn. |
|
 |
|
Verðlaun:
göngukortið og myndabókin um Borgarfjörð og Víknaslóðir
|
13.11. 2003
Svar við spurningu 7 er:
Ásgeir Stefánsson - rétt svar er líka „Geiri hennar Gunnu
frá Jörfa“
Myndin er tekin í Brandsbalarétt á Álfaborgarsjens 2000.
Nú fengum við 13 svör og aðeins eitt
þeirra
var rangt. Úr þeim réttu var degið og Margrét Ásgeirsdóttir fær
sendar til sín tvær söngbækur enda þótt hún hafi skrifað „PABBI“
sem svar. Til hamingju Margrét!
Mér er sagt að þessi mynd hafi gengið
undir nafninu „Harmonikuleikarinn og lífverðirnir“.
Guðný í Jörfa sendi greinargóða skýrslu um „lífverðina“ og fylgir hún
hér með - takk Guðný:
Aðrir á myndinni eru fv.: Ólöf
Jóhannsdóttir, Guðný Ólafsdóttir (hárið), Margrét Ásgeirsdóttir, Elísabet Sveinsdóttir, Atli
Dagsson, Eyrún Jónsdóttir, Jón Karl Svavarsson, Ída Guðrún Atladóttir,
Ásgeir harmonikkuleikari, Sindri Már Atlason, Viðar Karlsson, Óskar
Jökull Sigurðsson, Óttar Jörgen Sigurðsson, Svavar Pálsson, Rögnvaldur
Skíði Friðbjörnsson (hnakkinn...) og síðast en ekki síst eyrað á Grétari
Arnbergssyni!! ;o)
|
7. spurning 3.nóv. 2003.
Svar þarf að berast fyrir 13. nóv. 2003 |
|
Hvað heitir
harmonikuleikarinn á myndinni? |
|
 |
|
Verðlaun: Nýja
söngbókin okkar ... þar sem söngvarnir óma.
|
3.11. 2003
Svar við spurningu 6 er:
Kjólsvík.
Myndin er tekin ofan af Grenmó með aðdráttarlinsui og líka klippt aðeins utan
af henni.
Heldur fleiri svöruðu þessari
spurningu heldur en þeirri síðustu eða níu manns. Aðeins eitt svar
var rangt og úr þeim réttu var degið og Guðfinna Jakobsdóttir fær
sendar til sín tvær söngbækur. Til hamingju Guðfinna.
|
6. spurning 23.okt. 2003.
Svar þarf að berast fyrir 3. nóv. 2003 |
|
Hvað heitir þessi staður í
Borgarfjarðarhreppi? |
|
 |
|
Verðlaun: Nýja
söngbókin okkar ... þar sem söngvarnir óma.
|
26.10. 2003
Svar við spurningu 5 er: Þær
eru sex og heita: Hallveig, Dagur, Óttar, Baldur Smári, Birkir og
Eyrún.
Myndin er tekin eins og sést bakvið Lindarbakka. Spurningin
varð til í gönguferð hjá 10. bekk um daginn.
Heldur fleiri svöruðu þessari
spurningu heldur en þeirri síðustu eða fimm. Að vísu voru bara
þrjú rétt svör og úr þeim var degið og Þröstur Fannar Árnason fær sendar
til sín tvær söngbækur. Þröstur er gamall poppari og ætti
ekki að verða í vanda að syngja upp úr henni. Til hamingju
Þröstur.
|
5. spurning 14.10. 2003.
Svar þarf að berast fyrir 24. okt. |
|
Hvað eru margar persónur á
myndinni og hvað heita þær? |
|

Smelltu á myndina og stækkaðu hana. |
|
Verðlaun: Nýja
söngbókin okkar ... þar sem söngvarnir óma.
|
23.10. 2003
Svar við spurningu 4 er:
Skælingur
Myndin er tekin Húsavíkurmegin í Neshálsinum.
Nú er heldur farinn að minnka áhuginn
á svæðinu. Einungis bárust tvö svör við þessari spurningu og bæði
rétt. Út var dregið jafn Jóns Sigmars Sigmarssonar og þá
getur hann raulað nokkra söngva á næstunni. Til hamingju Jón.
|
4. spurning 12.10. 2003. Svar þarf að berast fyrir
22.
okt. |
|
Hvað heitir þetta fjall? |
|
 |
|
Verðlaun: Nýja
söngbókin okkar ... þar sem söngvarnir óma.
|
21.10. 2003
Svar við spurningu 3 er:
Skálanes.
Þetta er Skálanes norðan Njarðvíkur. Kögurvitinn sést efst í
vinstra horninu. Myndin er tekin úr flugvél yfir
Njarðvíkinni og svipaða mynd má sjá á myndasíðunni hér á vefnum.
Það bárust einungis þrjú svör og tvö
voru rétt. Dregið var milli þeirra og upp kom Helgi H. Jónsson frá
Laufási. Honum verða sendar tvær söngbækur. Til
hamingju nafni. Ágætt að kíkja á nokkra „ættjarðarsöngva“.
|
3. spurning 9.10. 2003. Svar þarf að berast fyrir 19.
okt. |
|
Nesið næst okkur er í
Borgarfjarðarhreppi. Hvað heitir
það? |
 |
|
Verðlaun: Nýja
söngbókin okkar ... þar sem söngvarnir óma.
|
16.10. 2003
Svar við spurningu 2 er:
Súrsmæra.
Fyrst fannst þessi jurt hér inni í Hvannstóðsdal laust fyrir 1940 og mun
það hafa verið Halldór Ásgrímsson sem hana fann. Síðan hefur hún
einnig fundist í Hjaltastaðaþinghá.
Alls bárust sex rétt svör og úr þeim
dróst nafnið: Árni Áskelsson. Honum verða
sendar tvær söngbækur. Til hamingju Árni. Gott
fyrir þig að læra þessi lög fyrir næsta sumar.
|
2. spurning 6.10. 2003. Svar þarf að berast fyrir 16.
okt. |
|
Græna plantan á myndinni finnst
á fáum stöðum öðrum en í Borgarfjarðarhreppi. Hvað heitir
plantan? |
|
 |
|
Verðlaun: Nýja
söngbókin okkar ... þar sem söngvarnir óma.
|
10.10. 2003
Svar við spurningu 1 er:
Innra-Hvannargil í Njarðvík.
Myndin er tekin úr flugvél niður á gilið. Vegurinn inn Njarðvíkina
er rétt ofan við myndflötinn. Þið getið séð þannig mynd í
myndaalbúminu annarsstaðar á vefnum okkar.
Alls bárust átta svör við spurningunni
og sjö þeirra voru rétt. Dregið var úr réttum svörum og
Harpa Rún Björnsdóttir, Sætúni, 720 Borgarfirði fær sendar til sín
tvær söngbækur. Til hamingju Harpa og þakkir til
allra fyrir þátttökuna.
| 1. spurning
29.9. 2003. Svar þarf að berast fyrir 10. okt. |
|
Myndin er úr Borgarfjarðarhreppi. Hvað heitir staðurinn? |
|
 |
|
Verðlaun: Nýja
söngbókin okkar ... þar sem söngvarnir óma.
|
|