Forsíða
Gönguleiðir
Göngukort
Tillögur að gönguferðum
Gönguferðir 2005
Stiklað um Víknaslóðir
Þjónusta við ferðamenn
GPS-punktar á gönguleiðum
Ýmiss fróðleikur um svæðið
Myndasafn
Áhugaverðir áfangastaðir
Örnefnaskrá hreppsins
Álfasögur
Fornsögur
Ýmsar sagnir
Söngtextar
Fréttir frá Borgarfirði
Borgarfjarðarfréttir
Hreppsfundagerðir
Annað
Álfaborgarsjens 2005
Gestabók
Myndagetraunir
Ferðamannakönnun 2003
Ýmiss net- og vefföng

 

 

Stiklað um Víknaslóðir 1 - Víknaslóðir


Hluti úr göngukorti af Víknaslóðum        Kort:  Áskell Heiðar Ásgeirsson

Víknaslóðir er samheiti yfir svæðið frá Héraðsflóa í norðri til Seyðisfjarðar í suðri. Á þessu svæði er fjöldi frábærra vel merktra og stikaðra gönguleiða við allra hæfi. Aðgengi að svæðinu er mjög gott og aðbúnaður allur hinn besti


Skúli við myndatöku                                                           ÁÁ 2004

Öflug þjónusta hefur byggst upp á svæðinu, tjaldstæði, gisting, veitingar, söfn, leiðsögn, aðstoð við skipulag gönguferða og flutningar á fólki og farangri.


Göngufólk nærri Súluskarði                                                HMA 2004

Á Víknaslóðum, milli Borgarfjarðar og Loðmundarfjarðar eru 9 víkur og var búið í þeim flestum fram undir miðja 20. öld en síðust af víkunum fór Húsavík í eyði, 1974 en síðasti ábúandi í Loðmundarfirði flutti þaðan 1976


Dyrfjöll - séð frá Hamri                                                        ÁÁ 2004


Borgarfjörður úr flugvél                                             Loftmyndir 2003


Borgarfjörður úr flugvél                                             Loftmyndir 2003

Ferðamálahópur Borgarfjarðar er með þessa heimasíðu og hér má finna ýmsar upplýsingar um svæðið, tillögur að ferðum og göngukort ásamt fjölda mynda. Þar er líka þjónustulisti, álfa og vættasögur, fornsögur og ýmiss annar fróðleikur.


Göngufólk við Geirishóla - Staðarfjall í baksýn                      HMA 2004

Ef þú ert að hugsa um gönguferð í friðsælu og fallegu umhverfi mælum við með að þú mætir á svæðið - þú verður ekki fyrir vonbrigðum.


Dyrfjöll í skugga kvöldsólarinnar - af Gagnheiði                    HMA 2004

- - - - - - - - - - - -

Í Landnámu er getið landnámsmanna hér og þeir voru: Loðmundur gamli í Loðmundarfirði, Þorsteinn kleggi í Húsavík, Þórir lína í Breiðuvík, Veturliði Arnbjarnarson á Borgarfirði, Þorkell fullspakur í Njarðvík og Uni danski Garðarsson á Austur-Héraði.

Smelltu hér og sjáðu nánar tillögur að ferðaskipulagi.

Velkomin á Víknaslóðir

Forsíða                          160205                     Hit Counter   

©2002 hornafjordur.net