|

Við Þorragarð í Njarðvík
HMA 2004
Gunnars saga Þiðrandabana, sem gerist
um árið 1000, tengist Njarðvík mikið og í sögunni er m.a. getið
Þorragarðs og Þiðrandaþúfu sem hvort tveggja eru í dag friðlýstar
fornminjar. Þorragarður er hlaðinn torfgarður, allt að 1,5 m hár og hefur verið
um 1,4 km að lengd í upphafi en hluti hans er nú kominn undir tún en eftir
standa í dag um 0,9 km af garðinum.

Skiltið við Þorragarð
Vegagerdin
Tveir synir Þóris línu í Breiðuvík bjuggu á Borgarfirði,
Gunnsteinn á „Dysjarmýri“ og „Sveinungur“ á Bakka en þeirra bræðra er
beggja getið í Gunnars sögu Þiðrandabana en Sveinungur bjargaði Gunnari á flótta
og er það fyrsta skráða björgun hér.

Bílstjórar Sveinunga hjá Björgunarsveitarbílnum
HMA 2002
Björgunarsveitin á Borgarfirði heitir
Sveinungi
eftir þessum fyrsta „björgunarmanni“.

Njarðvík úr flugvél
Loftmyndir 2003
Njarðvík er norðan Borgarfjarðar. Á dögum Margrétar ríku
á Eiðum í byrjun 16. aldar kallaði hún Njarðvík „víkina mögru en fögru“ en hún
átti bæði Húsavík og Njarðvík.

Njarðvík - séð frá Göngudal
HMA 2003
Njarðvík er ákaflega litfögur. Setur ljóst líparít mjög
sterkan svip á hana og Dyrfjöllin (1136) gnæfa svo fyrir víkurbotni með sína
svörtu móbergs- og basalthamra. Útsýni af Vatnsskarði er ákaflega fagurt og af
norðurbrún má í góðu skyggni sjá til Snæfells, Herðubreiðar og Langaness.

Dyrfjöll - séð af Vatnsskarði
HMA 2003
Vegurinn yfir Vatnsskarð var fyrst lagður 1954 en áður var farin
göngu- og hestaslóð um Gönguskarð frá Unaósi en um Sandaskörð ef farið var frá
Borgarfirði á Inn-Hérað.
Þrír bæir eru í Njarðvík.

Innra-Hvannagil í Njarðvík
HMA 2001
Innra-Hvannagil í Njarðvík er staður sem allir ættu að
kíkja á. Aka má upp að gilinu og mjög auðveld og stutt ganga er inn í það. Þar
birtast fjölbreyttar bergmyndanir í líparítinu og sérkennilegir
basalt-berggangar sem kljúfa líparítskriðurnar þvers og kruss.
Talið er að í Njarðvík sé miðja Njarðvíkureldstöðvarinnar og
hún og Dyrfjallaeldstöðin myndi eina megineldstöð en Dyrfjöllin hafa myndast í
gosi í öskju, svipaðri og Askja er í dag. Önnur megineldstöð er talin innst í
Borgarfirði.
Smelltu
hér og sjáðu nánar tillögur að ferðaskipulagi.
Velkomin á
Víknaslóðir
|