|

„Í leit að landslagi“ með Kjarval
HMA 2004
Á Borgarfirði eystri eru æskustöðvar Jóhannesar
Sveinssonar Kjarvals en hann ólst upp í Geitavík og þar er minnisvarði um
hann. Kjarvalsstofa er staðsett í Félagsheimilinu Fjarðarborg. Þar er
varpað ljósi á manninn Jóhannes Sveinsson eða „Jóa í Geitavík“ sem
fluttist hingað á fimmta ári sunnan úr Meðallandi. Hann átti síðar á ævinni
eftir að breyta listasögu Íslands verulega og er í dag talinn ástsælasti málari
þjóðarinnar.

Altaristaflan í Bakkagerðiskirkju
HMA 2002
Kjarval sýndi heimahögunum alltaf mikla rækt og m.a.
málaði hann 1914 altaristöfluna í Bakkagerðiskirkju sem er einstakt listaverk,
einn mesti dýrgripur staðarins. Stór hluti ferðamanna staldrar við í kirkjunni
til að sjá þetta meistaraverk.

Í „Gamla skólanum“
HMA 2003
Í Kjarvalsstofu er líka sett upp þema um
altaristöfluna og einnig um „hausana“ hans Kjarvals. Þá teiknaði hann flesta af
sveitungum sínum árið 1926. Sýningin í Kjarvalsstofu tengir skemmtilega þessa
„hausa“ við nútímann.

Bakkagerði - séð frá Kúahjalla
HMA 2003
Borgarfjörður fékk verslunarréttindi 1895 og þá byrjaði
að myndast þéttbýliskjarni þar sem þorpið Bakkagerði er nú.

Lindarbakki
HMA 2003
Til að byrja með voru þetta lítil torfhús, svokallaðar
þurrabúðir og „neðst“ í þorpinu er Lindarbakki, fallegt lítið torfhús,
sem sýnir vel hvernig þessi hús litu út. Lindarbakki er í einkaeign, nýtt sem
sumarhús og er vinsælt myndefni ferðamanna.

Af útsýnispalli á Hólmanum
HMA 2003

Stigi upp á Hafnarhólma - lundabyggð
HMA 2003
Frábær aðstaða er til fuglaskoðunar við Hafnarhólma. Þar eru
tveir pallar fyrir fuglaáhugamenn og hægt er að fullyrða að óvíða sé betri aðstaða til að fylgjast með
lunda og ritu.

Lundar
HMA 2001
Lundinn kemur á vorin en hverfur allur á einni nóttu um
miðjan
ágúst.

Fuglaskoðunarhús í þorpinu
HMA 2001
Góð aðstaða er líka fyrir fuglaáhugamenn í fuglaskoðunarhúsi
við gömlu bryggjuna í þorpinu.

Bláfáninn afhentur 2003
HMA 2003
Vorið 2003 fékk smábátahöfnin við Hafnarhólma afhentan
Bláfánann en hann er m.a. veittur þeim höfnum sem skara framúr með
merkingar, snyrtimennsku og gott aðgengi fyrir sjómenn og ferðafólk.
Umhverfisráðherra, Siv Friðleifsdóttir, afhenti fánann og aðstoðaði við að draga
hann að húni.

Áhorfendur á Álfaborgarsjens 2003
HMA 200 3
Íbúar Borgarfjarðar
eru tæplega 150. Í sveitinni er sauðfjárbúskapur og nokkuð af hrossum.

Borgfirskt sauðfé
HMA 2004
Gott
afréttarland fyrir sauðfé er á Víkunum sunnan fjarðarins og í Loðmundarfirði og
reka bændur fé sitt þangað.

Hreindýrahjörð
Sig.Aðalsteinsson
Talsvert er af hreindýrum á svæðinu en þau eru stygg
og erfitt að komast nærri þeim.

Borgfirskar trillur í höfn
HMA 2003
Hafnaraðstaða á Borgarfirði er slæm frá náttúrunnar hendi
enda fjörðurinn stuttur og breiður en við Hafnarhólma austan fjarðar hefur verið
gerð góð smábátahöfn. Héðan eru gerðar út 10-12 trillur og mest af aflanum er
saltað hjá Fiskverkun Karls Sveinssonar.
Smelltu
hér og sjáðu nánar tillögur að ferðaskipulagi.
Velkomin á
Víknaslóðir
|