|

Séð yfir Stórurð úr flugvél
HMA 2003

Séð til Stórurðar - fólk á gangi
HMA 2002
Vestan Dyrfjalla er Stórurð, ein af náttúruperlum
Íslands. Um tveggja og hálfs tíma ganga (6 km) er þangað frá þjóðvegi (aðra
leiðina) og rétt að gera ráð fyrir löngum degi í þá ferð því það er auðvelt að
gleyma sér í þeirri hrikalegu fegurð sem hér er.

Ánægðir ferðalangar í Stórurð
HMA 2004

Göngufólk að koma niður í Stórurð
ÁÁ 2004
Hægt er að fullyrða að allir sem hingað koma heillast af
þessari sérstöku náttúrusmíði.

Stórurð - Súlur í baksýn
HMA 2003

Stórurð - Dyrfjöll - Borgarfjörður
Loftmyndir 2003
Talið er að Stórurð hafi myndast þannig að ísaldarjökullinn
hafi skrapað hamraþilin og blokkir fallið þannig á jökulinn sem hafi síðan flutt
þær fram dalinn, allt að 7 km leið.

Göngufólk í Stórurð
HMA 2003
Velja má um margar gönguleiðir í Stórurð -
sjá göngukort.

Við Stapavík
HMA 2003
Stapavík er lítil klettavík, sunnanvert við Héraðsflóa.
Rétt vestar er Krosshöfði. Í byrjun 20. aldar var hér komið upp aðstöðu
fyrir vöruflutninga og hún nýtt fram undir miðja 20. öldina eða þar til vegur
var lagður um Vatnsskarð.
Smelltu
hér og sjáðu nánar tillögur að ferðaskipulagi.
Velkomin á
Víknaslóðir
|