er þekktur fyrir álfa- og vættatrú.

Álfahirðin úr Álfaborg
HMA 2002
Álfadrottning Íslands býr í Álfaborginni, klettaborg
við hliðina á þorpinu og fjölmargar álfa- og huldufólkssögur tengjast henni;
stúlkur sem giftust íbúum þar og um ýmis önnur samskipti mennskra við íbúa
Borgarinnar. Fjölmargir aðrir staðir í sveitinni tengjast líka álfum.
Í Kækjudal innst í sveitinni er álfakirkja. Í sögunum
er m.a. sagt frá ferðum álfa á leið í kirkjuna og einnig frá giftingum mennskra
stúlkna og huldudrengja þar.

Álfasteinar eru rétt innan við Klyppsstað.
Álfasteinar eru líka á Glettingsnesi og einnig rétt neðan
Stórurðar.
Víða í sveitinni eru örnefni sem tengjast álfum huldufólki,
tröllum og öðrum vættum.
Í Sólarfjalli í Breiðuvík býr álfasýslumaðurinn,
í Blábjörgum sunnan Herjólfsvíkur býr álfabiskupinn, í Kolli í
Kollutungum býr lítill dvergur og Snotra bjó á Snotrunesi.

HMA 2004
Naddi var óvættur í dýrslíki að neðan en mannslíki að
ofan. Hann bjó í helli í Njarðvíkurskriðum og grandaði þar fólki er leið
átti um Skriður eftir að skyggja tók. Var hann hrakinn í sjó fram af borgfirsku
hraustmenni og setti hann síðar upp kross í Skriðunum „fyrir Guðs vernd á sér“.
Stendur krossinn enn og var síðast endurnýjaður 1954. Á hann er letrað á latínu
sem útlagt hefur verið þannig í bundnu máli:
Þú sem að framhjá fer
fram fall í þessum reit.
Og Kristí ímynd hér
auðmjúkur lotning veit.
Anno MCCCVI (1306)
„Móðir mín í kví, kví“ er saga frá Loðmundarfirði.
Sjá má nokkrar þessara sagna annarsstaðar á þessum vef.
Á Víknaslóðum eru mjög fjölbreyttar gönguleiðir. Vinsælt
er að fara í 3ja-5 daga gönguferðir og gista í skálunum í Húsavík og Breiðuvík,
á Borgarfirði og Stakkahlíð í Loðmundarfirði.
Ef fólk vill skoða svæðið vel mælum við með því að skipta því
niður í tvær 5 daga gönguferðir. Við skiptum þá svæðinu í norðursvæði sem nær
suður til Breiðuvíkur og suðursvæði frá Húsavík til Loðmundarfjarðar.
Hér eru grófar tillögur, en við mælum með því að þið fáið
ráðleggingar hjá kunnugum ef þið ætlið að ganga á Víknaslóðum því þá fáið þið mun meira út
úr ferðinni. Heimamenn hafa aðstoðað við ferðaskipulag og leiðsögn undanfarin ár
og byggja orðið á góðri reynslu.
Eftirfarandi tillögum mælum við með:
Ferð 1. Norðursvæði.
1. Gengið í Stórurð.
2. Gengið í Stapavík.
3. Gengið til Breiðuvíkur um Brúnavík.
4. Gengið á Gletting og til Kjólsvíkur.
5. Gengið til Borgarfjarðar.
Gist á Borgarfirði fjórar nætur og
tvær í Breiðuvík.
Ferð 2. Suðursvæði.
1. Gengið til Húsavíkur.
2. Gengið í Álftavík.
3. Gengið til il Loðmundarfjarðar.
4. Gengið um Loðmundarfjörð.
5. Gengið um Kækjuskörð til Borgarfjarðar.
Gist á Borgarfirði tvær nætur, tvær í
Húsavík og tvær í Loðmundarfirði. Ferðina mætti líka enda eða byrja á
Seyðisfirði.
Ferð 3. Allt svæðið.
1. Gengið í Stórurð.
2. Gengið til Breiðuvíkur.
3. Gengið til Húsavíkur.
4. Gengið til Loðmundarfjarðar
5. Gengið til Borgarfjarðar
Gist í þrjár nætur á Borgarfirði og
eina í Breiðuvík, Húsavík og Loðmundarfirði.
Í ferð 3 verða útundan margir áhugaverðir staðir eins og
Stapavík, Kjólsvík, Glettingur og Álftavík en samt farið um allt svæðið.
Æskilegt er að hefja fyrsta göngudag ekki síðar en klukkan
9:00
og enda ferð með sameiginlegri máltíð. Við bendum því á gistingu á Borgarfirði
bæði nóttina fyrir og eftir gönguferðina sem eykur þægindi.
Ef þú vilt nánari upplýsingar um svæðið skoðaðu þá
heimasíðuna okkar vel og kynntu þér möguleikana.
VELKOMIN Á VÍKNASLÓÐIR
Ferðamálahópurinn, Borgarfirði eystri