Forsíða
Gönguleiðir
Göngukort
Tillögur að gönguferðum
Gönguferðir 2005
Stiklað um Víknaslóðir
Þjónusta við ferðamenn
GPS-punktar á gönguleiðum
Ýmiss fróðleikur um svæðið
Myndasafn
Áhugaverðir áfangastaðir
Örnefnaskrá hreppsins
Álfasögur
Fornsögur
Ýmsar sagnir
Söngtextar
Fréttir frá Borgarfirði
Borgarfjarðarfréttir
Hreppsfundagerðir
Annað
Álfaborgarsjens 2005
Gestabók
Myndagetraunir
Ferðamannakönnun 2003
Ýmiss net- og vefföng

 

 

Fréttir frá Borgarfirði eystri
Auglýsingar Myndagetraun Pistillinn Gamlar fréttir
Til baka á forsíðu      

Sendu okkur frétt!

 

27. 4. 2005
Nýr bátur í flotanum.
Eftir nokkra daga kemur nýr bátur í heimahöfn á Borgarfirði, Glettingur NS 100.

    

Fréttatilkynning frá Seiglu ehf.

Glettingur er nýsmíði nr. 21 hjá Seiglu ehf og er 14,9 brúttótonn, 11,6 metra langur og 3,6 metra breiður.Í bátnum er 650 hestafla Volvo-aðalvél og er mesti ganghraði 30 sjómílur á klukkustund. Lestin tekur tólf 660 lítra fiskikör. Í lúkar er góða aðstaða fyrir þrjá menn sem er búin ísskáp,örbylgjuofn,ceramichelluborð og sjónvarpi. Í stýrishúsi eru tækin frá R.Sigmundssyni en sjálfstýringin er frá Elcon .

Kaupandi er Kári Borgar ehf og verður báturinn gerður út frá Borgarfirði eystra í krókaaflamarki og á grásleppu.

Í bátnum er nýjung í rafkerfum fyrir báta.
Sameiginleg hönnun JLH Rafmagn ehf. og Rafnesti ehf. í samvinnu við Seiglu ehf. á rafkerfum fyrir báta er nýjung í hönnun rafkerfa á þessu sviði sem byggð er á iðntölvukerfi tengt skjákerfi sem er forritað eftir þörfum hveju sinni og einfaldar mjög allar lagnir. Hönnunin gerir einnig hefðbundnar lagnir milli stýrishúss og vélar að mestu óþarfar. Kerfinu má stýra hvort sem er frá stýrishúsi með snertiskjá, frá vélarúmi með12- rofa forritanlegu rofaborði eða frá dekki, með 3ja rofa forritanlegu rofaborði.
Í kerfinu er sjálfvirkt viðvörunarkerfi fyrir bruna og sjó og býður uppá sjálfvirka lensivöktun.
Allar breytingar á kerfinu eru mjög auðveldar þar sem þeim er stýrt í gegn um tölvu.
Kerfið hefur verið tekið út og er samþykkt af Siglingastofnun Íslands þann 30. mars 2005.

Tæknilegar upplýsingar:
Brúttótonn brt: 14,9
Brúttórúmlestir brl: 11,8
Kör í lest: 12 660 lítra
Lengd: 11,6 metra
Breidd: 3,6 metra
Hámarksganghraði: 30 sjómílur.

Fréttasíðan óskar Kára Borgari til hamingju með þennan glæsilega nýja bát.  

24. 3. 2005
Tónleikar
Síðastliði föstudagakvöld, 18. mars, voru tónleikar í Fjarðarborg.   Álftagerðisbræður komu þá og sungu fyrir Arngrím Magnússon og gesti hans.   Efnt var til tónleikanna í tilefni af 80 ára afmæli hans sem var 22. mars sl.   Börn Arngríms höfðu samband við ýmsa aðila sem Arngrímur hafði unnið með og fyrir síðustu áratugina og veittu þeir nokkra styrki þannig að öllum var boðið frítt á tónleikana.   Á eftir fengu menn svo kaffisopa og nokkrir af afkomendum Arngríms stigu á svið og sungu fyrir afmælisbarnið og gesti.
Um 150 manns komu á tónleikana og var það einróma álit gesta að þessi kvöldstund hafi verið einkar vel heppnuð.   Álftagerðisbræður fóru á kostum og Magni í Brekkubæ söng með þeim lagið „Ég fann þig“, sem er á síðasta diski Á móti sól, og fékk fyrir það dúndrandi lófaklapp.

Hér eru nokkrar myndir úr afmælinu.

Arngrímur og Elsa

Afmælisbarnið skemmti sér konunglega eins og sjá má.

Álftagerðisbræður

Hluti af áhorfendum

Álftagerðisbræður

Hluti salarins

Arngrímur og Elsa

Óskar ávarpar Arngrím

Bræðurnir komu niður af sviðinu og sungu lokalagið án undirleiks - beint til Arngríms.

Álftagerðisbræður

Lokalagið sungið fyrir Arngrím.

Börn Arngríms

Hanna, Ingi, Nonni, Rúna Dóra, Helgi og Ásgeir

Magni og Álftagerðisbræður

Magni söng lagið „Ég fann þig“ og Álftagerðisbræður sungu bakraddirnar.

Aldís og Magni

Magni tók nokkur lög eftir kaffihlé og Aldís tók undir með honum.

Aldís, Silla, Elsa og Eyrún

Þær sungu lag fyrir afa sinn en textan sömdu þær og fluttu í sjötugsafmælinu hans.

24. 3. 2005
Fréttaskipulag
Því miður gengur allt of hægt að koma upp endurbættri fréttasíðu en vonandi tekst það fljótlega eftir páskana en þá verður vefurinn tekið aðeins í gegn.

28. 2. 2005
Nýtt fréttaskipulag
Nýlega var ráðinn nýr fréttamaður fyrir fréttasíðuna en eins og glöggir lesendur síðunnar hafa séð þá hefur fréttaskrifum lítið verið sinnt sem helgast m.a. af því að vefumsjónarmaðurinn hefur ekki verið á staðnum í vetur.   Nýji fréttamaðurinn heitir Þröstur Fannar Árnason, ungur og upprennandi Borgfirðingur.   Verið er að glíma við ýmiss tæknimál en vonandi kemst í loftið innan skamms skemmtileg lifandi fréttasíða en greinilegt er að „burtflúnir“ sakna þess að fá ekki myndir og fréttir af því sem er að gerast „heima á Borgarfirði“.   

 

28. 2. 2005
Einmuna veðurblíða
Undanfarnar vikur hafa verið einstakar hvað veðurfar snertir á Borgarfirði.   Nær snjólaust er og vegurinn yfir Vatnsskarð er marauður.   Veðurspáin fyrir vikuna er bjartviðri og hiti svo þetta fer að komast í annála þessi góða tíð.   Lítið hefur verið róið, einkum vegna lágs fiskverðs, en afli hefur verið ágætur þegar menn fara út.
Meðfylgjandi mynd var tekin um næstsíðustu helgi og sýnir Dyrfjöllin í öllum sínu veldi.   Þá er líka listaverk úr náttúrunni.    Hvar ætli Kjarval hafi fengið sínar hugmyndir? ? ? ? ? ? ?

7. 2. 2005
Þorrablót Borgfirðinga 2005
Hér koma nokkrar fleiri myndir af þorrablótinu 2005 sem Marta María Skúladóttir sendi síðunni.  Kærar þakkir!

 

2. 2. 2005
Þorrablót Borgfirðinga 2005
Hér koma myndir sem Sigurður Aðalsteinsson tók á  þorrablótinu 2005.

28. 1. 2005
Þorrablót Borgfirðinga 2005
Hér koma nokkrar myndir frá þorrablótinu.   Blótið tókst ágætlega og skemmtidagskrá var ágæt.  Veður var gott og því var fullt hús, þ.e. um 200 manns sem virtust skemmta sér mjög vel.   Hljómsveitin Nefndin lék fyrir dansi sem stóð til tæplega fimm um nóttina.  Vonandi komist þið aðeins í blótsstuð þegar þið skoðið þessar myndir.   Fleiri myndir verða settar inn bráðum.

14. 1. 2005
Þorrablót Borgfirðinga 2005
Þorrablótið verður haldið laugardagskvöldið 22 janúar.  
Þátttökutilkynningar berist í síma 472-9988 eða í Fjarðarborg á kvöldin í síma 472-9920.

14. 1. 2005
Örnefni - Víknaslóðir
Nú er komin inn á vefinn okkar örnefnaskrá fyrir alla bæi í Loðmundarfirði.   Kíkið á það.   Einnig höfum við endurbætt verulega síðuna:  Stiklað um Víknaslóðir.

Látið okkur endilega vita ef þið viljið einhverjar sérstakar upplýsingar hér inn á síðuna:    

   
 

 

Forsíða

©2002 hornafjordur.net