|
Herjólfsvík
(Eftir
handriti ??).
Sandur kallast fjaran sunnan árinnar. Þá heitir Króksjaðar
frá ánni og upp í Hvammsskarð. Þá koma Mjóijaðar,
Konráðsjaðar og loks Breiðijaðar. Ná allir þessir jaðrar frá
ánni og upp í Eggjar. Þá er Flatijaðar en hann er frá ánni
og upp í Stígshall. Innan við Flatajaðar er hár strípur er
heitir Maður. Stykki það sem verður fyrir innan Manninn
kallast Fyrir innan Mann.
Herjólfsvíkurstafn kallast inn að Herjólfsvíkurvarpi. Inn
og ofan við Mann, norðan í Efri-Sléttum er svokallaður
Drápshjalli. Þar dagar stundum uppi á haustin kindur sem ætla af
Efri-Sléttum og niður í Herjólfsvík en þverhníptir klettar
eru neðan hjallans. Utan og norðan við Herjólsvíkurstafn, norðan
árinnar, heitir Mosdalur og nær hann að Dalsvarpi og út að
Mosfelli. Utan og neðan Mosdals heitir Hlíð neðan í
Mosfellinu og niður að á. Utan í Mosfellinu, en ofan við
Hlíðina, ganga Hraun út með ánni alla leið til sjávar.
Yst við sjóinn heita Láguhlaup og innan við þau, fast við ána,
var Bæjarstæðið, tættur sem munu nú hrapaðar í sjó. (Engar
sögur eru þó til um byggð í Herjólfsvík). Þá eru Miðhlaup og
Háuhlaup inn að Hlíð og út að Steinahjalla.
Sólarmýri er ofan við Háuhlaup inn að Sólarhjalla
og er Sólarfjall þar fyrir ofan.
Fjaran norðan árinnar heitir Norður-Sandur að Selaþúfu.
Þá eru Gríðarvogar en þar liggur selurinn oft á smá nöggum. Nyrst
í Gríðarvogum heitir Þórðarhellir. Því næst er
Gríðarnes og nær það að Litluvíkurskriðum.
Upp yfir Selaþúfu, Gríðarvogum og Gríðarnesi
heitir Steinahjalli og nær hann inn að Háuhlaupum.
Jaðrarnir upp af Steinahjalla heita Hvolfsjaðrar og ná
þeir upp í Sólarfjall og Litluskriður. Nyrsta horn
Steinahjalla, upp af Gríðarnesi, heitir Gjáarhnaus og
liggja þar götur yfir Litluvíkurskriður.
Út af miðri Herjólfsvík er Herjólfsvíkursker um 300
faðma frá landi.
|