|
Hvannstóð
(eftir handriti Sveins Bjarnasonar)
Landamerki jarðarinnar
eru þessi: Að austan ræður Þverá og síðan Lambadalsá upp
á fjallseggjar. Að sunnan fjallseggjar á milli Lambadalsár og
Fjarðarár. Að vestan ræður Fjarðará frá Mýnesskarði
að Merkjagarði. Að norðan forn landamerkjagarður er nær frá
Markeyri að Víðireyri við Þverá. Láglendið milli
Þverár og Fjarðarár heitir Tungur. Með Lambadalsá
heitir Lambadalur en fyrir botni dalsins heita eggjarnar
Hvannstóðseggjar. Út frá þeim á milli Lambadals og
Hvannstóðsdals liggur tindaröð: Hvannstóðstindur. Austasti
tindurinn séð frá bænum heitir Rauðkollutindur, þá Krosstindur
og vestast Nóntindur. Vestan Hvannstóðstinds er
Jónsskarð (þá Jónsfjall) og Mýrnesskarð.
Austan Fjarðarár
heitir Hvannstóðsdalur út að hlaupi. Við Þverána rétt
innan við landamerkjagarðinn er fremur lágur klettur sem nefnist
Klyf. Yfir hann liggja götutroðningar með ánni. Innan við hann með
Þveránni heita Þverárbakkar en fyrir vestan Dýjablá.
Fyrir framan Dýjablána heita Lambadalsármóar. Eru það
hrísmóar sem ná inn að Lambadalsá og vestur að Króarholti.
Austan við Fjarðarána heitir Ás. Er það langur og beinn
melur sem nær út á móts við Grund og inn á móts við Hvannstóð.
Austan við hann er Áslækurinn. Beint inn af Ásnum er
allhár melur sem heitir Króarholt. Framan við það er djúpur
skorningur, sem sker það frá fjallsrótum, sem heitir Lækjardalur.
Vestur úr honum rennur Brunnalækur og við hann er
Brunnalækjarmýri. Upp frá Lækjardal austan til heita
Klofar en fyrir vestan þá, ofan við Lækjardal, heita
Dýjabotnar. Ofan við Dýjabotna, vestan til, er hár melur,
sem ber við loft austan við Rauðkollutind séð frá bænum, sem heitir
Laskamelur.
Austast í Klofunum
er Klofalækur og rennur í Lambadalsá. Austan við hann er
Háabrún en það er hár og breiður melur sem myndar hlíðar
Lambadals hið ytra. Utan til á Lambadal við
Lambadalsárgilið er hár melur sem nefnist Kollóttimelur.
Innar á Lambadal eru Ytri-Þverhryggir og
Innri-Þverhryggir. Og ná þeir neðan frá á og upp á Tind.
Þar eru einnig Rauðusteinar. Vestur úr Lambadal innst eru
Uppgöngur. Þar er gengt á Tindinn og inn á Eggjar.
Vestan við bæinn er
Bæjarlækurinn. Innan við hann eru aðal engjarnar. Þar sem þeir
ganga lengst inn og upp heita Kaplaenni. Í fjallinu rétt ofan
við þau er smá hjalli er heitir Kúahjalli. Upp af Kúahjalla
eru Kúabotnar en fyrir vestan þá Svartibotn.
Fyrir framan
Kaplaennið rennur lækur í djúpu gili, Sellækur. (Lítil eins
hreyfils flugvél nauðlenti þar 5. janúar 1976) |