|
Hvoll.
(eftir handriti Eyjólfs Hannessonar).
Utan við Hvolsbæinn
rís hár stakur hóll, Hvolshóllinn. Af honum er víðsýnt. Niður
við Fjarðará blasir við Hvolsnesið, lágt og flatt. Ofan
við það er brött brekka sem gengur fram í Fjarðará utan við
nesendann og aftur framan við túnið. Upp frá brekkunni er innst túnið.
Um það, rétt utan við bæinn, fellur Bæjarlækur. Hann skiptir
túninu fyrir neðan bæ með djúpu gili. Heitir Hjáleiga utan
gilsins. Þar eru nú fjárhús en var áður bærinn Hvolshjáleiga.
Út frá túninu og Hólnum taka við Hvolsmóarnir. Ofan við
þá taka við Hvolshraun. Þar er Kistuklettur, hár og stór
kistulagaður, að mestu sléttur að ofan en hliðar og endar svo til
lóðrétt. Þar sem mætast Hraunin og Móarnir heitir
Hraunabrekka. Upp úr ofanverðum Hraununum rís hár stakur
melhóll. Hann heitir Ærhóll. Út neðan við hann og niður utan
við Hraunin er graslaut sem heitir Ærhólsdalur. Upp með
framan- og ofanverðum Ærhól er Strípalág, grasi gróin.
Inn af Ærhól er Hraunamýrin sem liggur upp og niður framan
til í Hraunum. Ofan við Ærhól er Ærhólsmýrin en
upp frá henni er Strípahraunið. Framan við það er Strípalág.
Í henni standa Stríparnir sem lágin og hraunið fyrir utan draga
nafn af.
Upp frá túninu á Hvoli
er Hvolsmýri. Ofan við hana taka við Ennin, hallandi
ennaland sem liggur frá Merkilæk á landamerkjum Hvols og
Gilsárvalla og út að Hrygg. Hryggurinn er ber
melhryggur sem hefst lítið eitt ofan við Hvolshólinn og liggur
upp innan við Hraunin og Hraunamýrina, allt upp undir
Hjalla. Miðlækur skeftir Ennunum í Út-enni og
Fram-Enni en Ystilækur fellur niður rétt innan við
Hryggi, niður um utanverða Hvolsmýri og er sami lækurinn sem
áður er getið utan við Hvolsbæinn en út á Hjáleigunni sem
áður er nefnd er Lindin, skammt fyrir ofan fjárhúsin,
uppsprettulind sem neysluvatn bæjarins er tekið úr.
Ofan við Ennin og
Hraunin rísa Hjallarnir, innan frá Merkilæk og út
að Jökulsárgili sem þar skiptir löndum Hvols og
Jökulsár. Skammt frá Jökulsárgilinu neðan við Hjallann
en út og upp af Hryggendanum er Jökulbotn, í bug undir
hárri Hjallabrekkunni. Þar liggur stundum gaddur allt sumarið.
Upp frá Hjöllum er Hvolsbrúnin. Upp af henni rís hár og
brattur fjallshnúkur, Hvolsmælirinn. Upp með Jökulsárgili
beygir ysti hjallaendinn og fer smá hækkandi upp með rótum Mælisins.
Þar fyrir ofan tekur við Jökuldalur. Út af Mælinum gengur
hryggur út að Jökulsárgili. Þetta svæði kallast Skagi. Í
krika ofan við Mælirinn er allstór mýrarskák, Mælismýrin.
Utan og ofan við Mælismýrina rennur Dimmadalsá, innan og
ofan úr Dimmadal í Gilsárvallalandi. Sameinast hún nokkru utan
Jökulsánni og falla svo báðar saman út og niður í Jökulsárgil
og sameinast þar Ystukvíslinni í mynni Jökuldalsins. Uppi
í dalnum eru árnar oft nefndar Kvíslar - Ystakvísl, Miðkvísl
og Dimmadalsáin, eftir að hún kemur út úr Dimmadal,
Innstakvísl. Í bug sem Innstakvíslin myndar, utan og ofan
við Mælismýrina, er allstór mýrarspilda. Utan við hana eru
klettaholt og hryggir með graslautum á milli. Þvert ofan við mýrina og
holtin rís hár og brattur melhryggur. Það eru Þverhryggirnir.
Ofan við þá er dalurinn allur eitt net af graslautum og drögum sem
liggja alla vega milli hóla og hraundranga en upp yfir gnæfa
Dyrfjöllin og blasa Dyrnar við upp frá miðjum dalnum. |