|
Þrándarstaðir.
(eftir handriti Bjarna Steinssonar
frá Þrándarstöðum.)
Landamerki jarðarinnar
eru talið frá austri. Úr Miðstríp í Grenjum upp
Þrándarhrygg á Gagnheiði. Þaðan inn fjallseggjar að
Bálkaskarði miðju en þaðan beina línu í Hrafná er ræður eftir
það mörkum að vestan í Fjarðará en hún ræður aftur mörkum að
norðan að Grænutóft, (á norðurbakka Fjarðarár). Úr
Grænutóft bein lína um Folaldsgontu í Miðstríp í
Grenjum. Jarðir þær sem eiga mörkum að deila við Þrándarstaði
eru að austan Hofströnd og Brúnavík, að sunnan
Breiðavík, að vestan Desjarmýri og Jökulsá að norðan.
Skal nú greina örnefni í
landi jarðarinnar er mér eru kunnug.
Hæðirnar vestan
Svartfells heita Hnútur. Á Mið-Hnútur er strípur sá
er Landamerki liggja um, þá Fremsta hnúta. Þá Fagrihóll
en Gráflekkumell framan, ofar er Fagrahólsmýri og
Efraengi. Þá Þrándarhryggur en Tjarnabotnabrýr og
Tjarnarbotnar framar. Á Þrándarhrygg miðum er drangur, (á
hlóðum) er Maður heitir en við hann er talin hálfnuð leið frá
Bakkagerði til Breiðuvíkur en um Þrándarhrygg liggur
leiðin til Breiðuvíkur og Suðurvíkna.
Framan Þrándarhryggs
heita Höll og Neðri-Mýri. Þá Efri-Mýri, þá
Aurar. Efst á Aurum, næst Gagnheiði, heitir
Prestsetur og Prestsetursdæld, þá Gagnheiði og inn af
henni er Marteinshnúkur. Er til sú sögn að maður er Marteinn hét
frá Gilsárvelli hafi hrapað þar til bana og dregur hnúkurinn nafn af
honum. Norðan undir Marteinshnúk heitir Kvennalág. Eiga
tvær stúlkur að hafa orðið þar úti. Þær voru frá Breiðuvík og voru að
koma frá kirkju á Desjarmýri.
Inn af Marteinshnúk
er Brúnkolla og Skjöldur, þá Bálkaskarð.
Niður af Skyldi heita
Klyf, Hnaus og Klofar, þá Brúnkollugil er
samnefndur lækur rennur eftir í Hrafná. Utan Brúnkollugils
er Hellramell og Stóralæksmóar. Þá Stóralæksgil og
fellur Stórilækur eftir því í Hrafná. Þá Hallamelar
og Engisbotnar, þá Neðra-Engi. Engislækir falla um
samnefnt gil í Hrafná. Utan Engilækja eru Engishöll
og Fossmýri. Þá Geitlugil. Sú trú lá á því að þar
hefðist við útburður er léti til sýna heyra undan illviðrum. En oft
tekur í gilið undir sunnanátt. Um gilið fellur samnefndur lækur í
Hrafná. Utan Geitlugils heita Neðra-Birgi en
Efra-Byrgi ofar en neðan Gráflekkumels.
Með Hrafná heita
Innsti-Hvammur en Hvammur utar en Brúnir ofar. Þá
Grásteinn, Grásteinsmell og Grásteinsenni. Troðningar
og Grafnigar ofar, þá Litlilækur er fellur um
Litlalæksgil í Hrafná.
Utan Litlalækjar
heita neðst: Stekkholt, þá Lágbrekka og Hábrekka,
Efribrekka og Breiðuvíkurenni. Neðan Hábrekku stóð
bærinn Þrándarstaðir en hefur verið fluttur og gripahús byggð þar
sem hann áður stóð.
Utan Stekkholts,
næst Hrafná heita: Stekkjargrund og Stekkjarmýri
en Grund og Framtunga út með Lágbrekku og eru hluti
af túni jarðarinnar. Þá GaldraVilhjálmsgil. Eftir gilinu
fellur Bæjarlækur í Hrafná en utan gilsins er aðaltún
jarðarinnar en neðan þess er Pyttalækur en utan við túnið er
Kriki og upp úr honum er Langalág. En ofan túns
Lambhúsmell, þá Hávarðahnúkur, Háhryggir,
Dagmálabotnar og Fagrahólsgonta er nær að Fagrahól.
Utan við Pyttalækjarmýri eru Hólar, þá Nes niður
með Hrafná. Utan og ofan til á Nesjum er móholt er
Lyftingur nefnist. Fremsta brún þess heitir Lyftingsmell og
virðist grjótið í honum brimsorfið.
Framan Lyftings
efst heitir Flói. Þar var mótak djúpt. Með Lyfting að
vestan fellur lækur er Sjómannakíll heitir. Á nesin fram og
niður af Lyfting var bærinn fluttur 1938 og heitir Sólbakki.
Ofan við Lyfting,
framan Folandsgontu, heitir Rauðimell neðst, þá Hryggir
er ná óslitið að Fagrahól. Á þeim um það til miðjum er stór
steinn er Skjólsteinn heitir. Niður með Hryggjum að utan
rennur Grenjalækur en fellur síðan um Hofstrandarland og heitir
þá Stórilækur. Lækur þessi hefur nú verið virkjaður frá
Sólbakka.
Eru þá talin þau örnefni
er ég þekki í landi jarðarinnar Þrándarstaða.
25. maí 1957. |