|
 |
 |
|
Örnefni í landi
Ytri-Álftavíkur |
|
YTRI-ÁLFTAVÍK
(Eftir handriti
sr. Vigfúsar I.
Sigurðssonar og Sveinbjörns Björnssonar). |
Farið var yfir örnefnaskrá
Ytri-Álftavíkur með Sveinbirni Björnssyni, 12. sept. 1980. Sveinbjörn
er fæddur á Dallandsparti í Húsavík 20.10. 1902 og var þar til 1947.
Fyrri örnefna skrá hafði sr. Ingvar Sigurðssona skrifað upp eftir handriti
Sveinbjarnar. Skráðar eftir honum athugasemdir og viðbætur sem felldar eru
inn í textann og orðalagi breytt þar sem þurfa þótti.
Reykjavík 13. okt. 1980
Guðrún S. Magnúsdóttir - Örnefnastofnun
Landamerki milli Ytri-Álftavíkur og Húsavíkur eru úr
Álftavíkurtindi í Örvasandskrók og inn frá tindinum eftir
háfjallinu. Krókurinn gæti verið hvorum megin við Örvasand sem
er en Húsvíkingar töldu syðri krókinn á landamerkjum. Landamerkin
miðast við þann tind sem sést úr Húsavík en hinn eiginlegi
Álftavíkurtindur sem er uppi yfir Álftavík er fjallsbrík sem
gengur suður frá Hádeginsnúk. Hans er getið í örnefnaskrá
Húsavíkur. Skollabotnar eru austan við tindinn sem sést úr
Álftavík en Álftavíkurdalur vestan við. Tindurinn er þverhníptur
frá austri, suðri og vestri. Þar finnast ýmsar steintegundir, m.a.
baggalútar.
Skollabotnar eru stórgrýttur grjótbotn að nokkru mosa vaxinn. Þar
voru oft greni. Landamerkin voru Húsavíkurmegin við Skollabotna.
Sunnan við Örvasandskrók eru Álftavíkurflug, klettar. Nyrsti
tangi við víkina, sunnan við flugin, heitir Stekkjartangi. Þar er
gróinn smátangi. Ekki veit Sveinbjörn hvort stekkur hefur verið þar. Innan
við Stekkjartanga er landsendafjara. Þar þótti góð lending í
sunnanátt. Innan við hana gengur Landsendi fram til suðurs,
klettahleinar. Hornið sem skagar lengst út nefnist Álftavíkurtangi.
Austan við hann er Hlass, sérstakur klettur úti í sjó.
Innan við Landsenda er Norskalág og undir henni Norskafjara.
Eiga hvort tveggja að draga nafn af því að eitt sinn er víkin var í eyði
voru höfð þar naut til göngu frá Húsavík að sumarlagi. Fóru þá menn
af norsku fiskiskipi þangað upp til þess að ræna nauti. Þá var eitt nautið
svo mannýgt að þeir urðu fegnir að forða sér undan því í bátinn en skildu
eftir ílát, hnífa o.fl. sem þeir höfðu haft með sér.
Upp af Stekkjarbarði eru Skjónuþúfujaðar, grasbrekka sem nær
upp að Skollabotnum og ná þeir upp með Skjónuþúfu að austan.
Það er stór Klettastríta. Hraun heita neðan við Skjónuþúfu upp
af Landsenda, smáblettur nokkuð gróin en grýtt. Á þeim voru tættur
sem enn sjást.
Innan við Landsenda taka við fjörur. Yst er Lotna. Hún er
allstór, skeifulöguð. Þar er góð sumarlending og falleg höfn fyrir smærri
báta. Háar hleinar eru báðum megin við þegar farið er inn. Sundið á milli er
ekki breiðara en svo að það er vel árabátafrítt. Þarna var sérlega góð
lending í norðanátt og lífhöfn, skjól fyrir öllum áttum, þegar inn var
komið. Þá er Bæjarfjara og innst Folandsbás. Ganga
klettahleinar alls staðar fram á milli fjaranna.
Túnið er ofan við fjörurnar. Bæjarstæðið er í því miðju. Ofan við
túnið heita Melar, lynggrónir, innan við Skjónuþúfu. Ofan við
Melana eru nafnlausar skriður og ofan við þær klettabelti. Ofan við
það er rák sem heitir Bæjarrák, lyngi vaxinn hjalli. Ofan við hann er aftur
klettabelti í svonefndum Dalsbrúnum. Ofan í þær miðjar er gjót sem
fjárgötur liggja eftir gegnum miðja Bæjarrák og niður á Mela.
Hún heitir Sauðaklauf.
Ofan við Dalsbrýr er Álftavíkurdalur. Hann er vel gróinn,
sérstaklega brekkurnar. Í honum er mikil veðursæld. Hann liggur eins og áður
segir vestan við Álftavíkurtind og er sunnan við Álftavíkureggjar,
sem eru skörp brún, Miðmundarþúfu og inn í Miðmundarfjall.
Þetta voru eyktarmörk úr Húsavík. Miðmundarþúfa er þúfustrýta,
grasi gróin að vestan. Miðmundargjóta er einskonar skora sunnan og
vestan við Miðmundarþúfu. Hún nær upp í brúnina og er að öðru leyti
Álftavíkurmegin. Þar liggja fjárgötur til Húsavíkur. Fært var
báðum megin við Hádegishnjúk, vestan megin fært með hesta.
Álftavíkuregg heitir milli hans og landamerkjatindsins.
Innan við túnið eru svonefndir Hryggir, að mestu grónir lyngi og
mosa. Gil eru á milli þeirra. Þeir ná frá sjávarbökkum og upp í fjall.
Innsti hryggurinn nær upp í Dalsbrýr. Þar var aðalleiðin upp af
víkinni til Húsavíkur, var alltaf farin með hesta og þá, eins og áður
getur, vestan við Hádegishnúk.
Innan við Hryggi er svonefndur Höfði á sjávarbakka, nokkuð
hár, grasi vaxinn. Innan við hann eru Innrivíkurflug. Fjaran neðan
Hryggjanna heitir Langamöl en neðan Höfðans er
Höfðasandur.
Inn og upp af Höfðanum er rák í Miðmundarfjallið. Hún nær inn
í Innri-Álftavík og heitir Tóarák. Þverhníptir klettar eru
fyrir neðan. Sagt er að endur fyrir löngu hafi smalastúlka, frá
Ytri-Álftavík, sem vaktaði ær á Innri-Álftavík, hrapað úr
Tóarák, með lyngbakka á baki, er hún var að reka ærnar heim að kveldi.
Annars er rákin talin vel fær gangandi mönnum þegar autt er.
Inn úr Dalsbrúnum liggur rák til Innri-Álftavíkur
sunnan í Miðmundarfjalli. Hún heitir Urðarrák og er ill
yfirferðar vegna holurðar, hver steinnn liggur á öðrum. Enn ofar eru
Lambarákar sem fé fer í, grónar. Þær ná ekki til Innri-Álftavíkur.
Miðmundarfjall skilur Ytri- og Innri-Álftavíkur og
gengur því nær lóðrétt í sjó fram. Þar eru hreppamörk milli Borgarfjarðar-
og Loðmundarfjarðarhrepps.
Ekki er mikið af álftum í Ytri-Álftavík.
Viðbót frá Örnefnastofnun:
Á Ytri-Álftavík
hefur Sigmar Ingvarsson skráð Norskuboða sem hann man ekki, hver
tilgreindi. Óvíst mun enn, hvar þeir eru.
Sigmar skráði eftir Rúnari Halldórssyni, sem átti heima í Húsavík til
fullorðinsára. Sagði hann, að móðir sín og Anton móðurbróðir sinn hefðu
verið sér sammála. Þau bjuggu í Húsavík um áratugi.
Sauðklauf heitir gjóta á leið, sem farin er niður úr Álftavíkurdal
(6) niður á Álftavík. Þessi gjóta eða klauf er í dalsbrúninni.
Svæðaskrá
|