Hér er ykkur boðið að
setja inn pistla um ýmisleg málefni, einkum þau er varða Borgarfjörð.
Verið óhrædd að senda okkur efni sem við svo setjum hér inn.
Til að byrja með
er hér smá kveðja:
Komiði sæl!
Ég verð að segja ykkur frá þessu góða
lambakjöti, sem kemur frá Borgarfirði eystra og er af lömbum sem
gengið hafa frjáls á víkum sunnan við Borgarfjörð, nánar tiltekið í
Kjólsvík og í Breiðuvík.
Þetta er úrvals kjöt og kemur til ykkar
(sem kaupa það) vel snyrt og innpakkað í mjög smekklegar
neytendaumbúðir.
Kveðja
Árni Áskelsson
|