Um Borgarfjörð | Borgarfjörður eystri

Borgarfjörður eystri

Um Borgarfjörð




BORGARFJÖRÐUR EYSTRI er nyrstur hinna eiginlegu Austfjarða. Þangað er tæplega 70 km. akstur frá Egilsstöðum, um Vatnsskarð og Njarðvíkurskriður. Borgarfjörður eystri er rómaður fyrir náttúrufegurð og þá sérstaklega fyrir sérstæðan fjallahring. Sunnan fjarðar er ljóst líparít allsráðandi eins og í Staðarfjalli, en fyrir botni fjarðarins og norðan hans er blágrýti (basalt) mest áberandi og þá einkum í Dyrfjöllum. Inn af firðinum gengur um 10 km langur dalur, vel gróinn og  nokkuð breiður. Eftir honum rennur Fjarðará. Þorpið Bakkagerði stendur við fjarðarbotninn.

Atvinnulíf á Borgarfirði hefur í gegnum árin fyrst og fremst einkennst af sauðfjárbúskap, smábátaútgerð og fiskvinnslu og svo er enn.

Alls eru u.þ.b. tíu býli í byggð í sveitinni og sauðfé á þriðja þúsund. Fjallalömbum sínum beita Borgfirðingar innanfjarðar og á Víknasvæðið og afréttarland er nóg. Eins og annars staðar á landinu hefur sauðfjárbúskapur dregist saman í  Borgarfirði á síðustu áratugum. Þar á líka hlut að máli riðuveikin, sem hefur reynst borgfirskum bændum mjög erfið. Allt fé í hreppnum var skorið niður árið 1987 og fjárlaust var í þrjú ár. Síðan þá hefur riða komið upp á tveimur bæjum og þar hefur verið skorið niður aftur.

Tíu til tólf smábátar af stærðinni 5 til 10 tonn eru gerðir út frá Borgarfirði. Mest er veitt á línu og handfæri og fiskurinn er unninn í salt í einu fiskverkun þorpsins, Fiskverkun Karls Sveinssonar. Þar vinna að jafnaði 8-10 manns, en í aflahrotum allt upp í 18.  Nokkur hefð er fyrir harðfisk- og hákarlsverkun á staðnum og  ennfremur veiða nokkrir bátar grásleppu í net á vorin. Nokkrir einstaklingar starfa við þjónustu og í iðnaði. Þá er ótalin steiniðjan Álfasteinn, sem veitir nokkrum atvinnu.

Borgarfjörður eystriÞjónusta við ferðamenn hefur aukist mikið á síðustu árum en hún er ennþá aðeins bundin við sumarmánuðina. Ýmis þjónusta: Hjúkrunarfræðingur er staðsettur á Borgarfirði, þar er heilsugæsla og þangað kemur læknir frá Egilsstöðum reglulega. Fjallvegurinn yfir Vatnsskarð er opnaður þrisvar sinnum í viku yfir vetrartímann ef þörf er á og póstbíll fer milli Egilsstaða og Borgarfjarðar fjórum sinnum í viku.

Skólastarf á Borgarfirði er blómlegt. Þar eru allir tíu bekkir grunnskólans, leikskóli og auk þess tónskóli. Grunnskólinn og tónskólinn eru staðsettir hjá félagsheimili Borgfirðinga, Fjarðarborg. Þar er rekin veitingasala og gisting á sumrin, auk þess sem þar eru haldnir líflegar skemmtanir og dansleikir, einkum um Verslunarmannahelgina. Gisting er seld á nokkrum stöðum í hreppnum.

Líkt og aðrir smærri staðir á landsbyggðinni stendur Borgarfjörður eystri í harðri baráttu fyrir tilveru sinni í hinum harða heimi nútímans. Fólki hefur fækkað allört á síðustu árum og þá sérstaklega ungu fólki. Það er margt sem veldur svo sem breyttar kröfur almennings um þjónustu, samdráttur í landbúnaði og samdráttur í veiðum smábáta. Þann 1. des. 2001 voru íbúar Borgarfjarðarhrepps 150. Þó hefur ekki fækkað á Borgarfirði í nokkur ár og er það vonandi merki um að byggðin taki að eflast á ný.


Fréttir


Íbúðaskortur

Þrátt fyrir samdrátt undanfarinna ára og áratuga, þá eigum við bullandi möguleika hérna á Borgarfirði til að blása til sóknar í atvinnu- og byggðamálum, en eitt stærsta vandamálið sem við stöndum frammi fyrir er að það eru nær engar lausar íbúðir í boði á staðnum. Lesa meira

Álfheimar

Álfheimar opna nýja heimasíðu

Nú hefur ferðaþjónustan Álfheimar opnað nýja heimsíðu fyrir erlendan markað og unnið að annari vinnu í hönnun á kynningarefni. Á þessari nýju síðu er að finna upplýsingar um gistingu, þjónustu og þær náttúrutengdu upplifanir sem hægt er að kaupa hjá þessu vaxandi fyrirtæki.
Lesa meira

Starfsfólk Álfacafé á góðri stund sumarið 2012

Álfacafé hefur opnað

Sumarið er alveg að skella á og þá opnar Álfacafé að venju fyrst veitingastaða í þorpinu. Það er opið nú til að byrja með frá klukkan 10:00 - 18:00.
Lesa meira

Mynd augnabliksins

Könnun

Hvert er fallegasta fjallið í Borgarfirði

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir
headerheaderheaderheader
GestabókHafa sambandHeim
East Iceland today. Sunrise / Sunset | 4.1° / S 5

Ferðamálahópur Borgarfjarðar

Upplýsingar um ferðamál: s: 863-2320
Vefumsjón: Hafþór Snjólfur Helgason
hshelgason@gmail.com

Fréttabréf

Póstlisti

Vertu vinur okkar

Vertu vinur okkar á facebook og fylgstu með okkur þar.
Stefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya