YTRI-ÁLFTAVÍK
(Eftir handriti sr. Vigfúsar I. Sigurðssonar og Sveinbjörns Björnssonar).
Farið var yfir örnefnaskrá Ytri-Álftavíkur með Sveinbirni Björnssyni, 12. sept. 1980. Sveinbjörn er fæddur
á Dallandsparti í Húsavík 20.10. 1902 og var þar til 1947. Fyrri örnefna skrá hafði sr. Ingvar Sigurðssona skrifað upp eftir
handriti Sveinbjarnar. Skráðar eftir honum athugasemdir og viðbætur sem felldar eru inn í textann og orðalagi breytt þar sem þurfa
þótti.
Reykjavík 13. okt. 1980
Guðrún S. Magnúsdóttir - Örnefnastofnun
Landamerki milli Ytri-Álftavíkur og Húsavíkur eru úr Álftavíkurtindi í
Örvasandskrók og inn frá tindinum eftir háfjallinu. Krókurinn gæti verið hvorum megin við
Örvasand sem er en Húsvíkingar töldu syðri krókinn á landamerkjum. Landamerkin miðast við þann tind sem
sést úr Húsavík en hinn eiginlegi Álftavíkurtindur sem er uppi yfir Álftavík er
fjallsbrík sem gengur suður frá Hádeginsnúk. Hans er getið í örnefnaskrá Húsavíkur.
Skollabotnar eru austan við tindinn sem sést úr Álftavík en Álftavíkurdalur vestan við. Tindurinn
er þverhníptur frá austri, suðri og vestri. Þar finnast ýmsar steintegundir, m.a. baggalútar.
Skollabotnar eru stórgrýttur grjótbotn að nokkru mosa vaxinn. Þar voru oft greni. Landamerkin voru Húsavíkurmegin við
Skollabotna.
Sunnan við Örvasandskrók eru Álftavíkurflug, klettar. Nyrsti tangi við víkina, sunnan við flugin, heitir
Stekkjartangi. Þar er gróinn smátangi. Ekki veit Sveinbjörn hvort stekkur hefur verið þar. Innan við Stekkjartanga er
landsendafjara. Þar þótti góð lending í sunnanátt. Innan við hana gengur Landsendi fram til suðurs, klettahleinar. Hornið sem
skagar lengst út nefnist Álftavíkurtangi. Austan við hann er Hlass, sérstakur klettur úti í sjó.
Innan við Landsenda er Norskalág og undir henni Norskafjara. Eiga hvort tveggja að draga nafn af því að eitt sinn er
víkin var í eyði voru höfð þar naut til göngu frá Húsavík að sumarlagi. Fóru þá menn af norsku
fiskiskipi þangað upp til þess að ræna nauti. Þá var eitt nautið svo mannýgt að þeir urðu fegnir að forða sér undan
því í bátinn en skildu eftir ílát, hnífa o.fl. sem þeir höfðu haft með sér.
Upp af Stekkjarbarði eru Skjónuþúfujaðar, grasbrekka sem nær upp að Skollabotnum og ná þeir upp
með Skjónuþúfu að austan. Það er stór Klettastríta. Hraun heita neðan við
Skjónuþúfu upp af Landsenda, smáblettur nokkuð gróin en grýtt. Á þeim voru tættur sem enn
sjást.
Innan við Landsenda taka við fjörur. Yst er Lotna. Hún er allstór, skeifulöguð. Þar er góð sumarlending og
falleg höfn fyrir smærri báta. Háar hleinar eru báðum megin við þegar farið er inn. Sundið á milli er ekki breiðara en svo að
það er vel árabátafrítt. Þarna var sérlega góð lending í norðanátt og lífhöfn, skjól fyrir öllum
áttum, þegar inn var komið. Þá er Bæjarfjara og innst Folandsbás. Ganga klettahleinar alls staðar fram á milli
fjaranna.
Túnið er ofan við fjörurnar. Bæjarstæðið er í því miðju. Ofan við túnið heita Melar,
lynggrónir, innan við Skjónuþúfu. Ofan við Melana eru nafnlausar skriður og ofan við þær klettabelti. Ofan
við það er rák sem heitir Bæjarrák, lyngi vaxinn hjalli. Ofan við hann er aftur klettabelti í svonefndum Dalsbrúnum. Ofan í
þær miðjar er gjót sem fjárgötur liggja eftir gegnum miðja Bæjarrák og niður á Mela. Hún heitir
Sauðaklauf.
Ofan við Dalsbrýr er Álftavíkurdalur. Hann er vel gróinn, sérstaklega brekkurnar. Í honum er mikil veðursæld.
Hann liggur eins og áður segir vestan við Álftavíkurtind og er sunnan við Álftavíkureggjar, sem eru skörp
brún, Miðmundarþúfu og inn í Miðmundarfjall. Þetta voru eyktarmörk úr Húsavík.
Miðmundarþúfa er þúfustrýta, grasi gróin að vestan. Miðmundargjóta er einskonar skora sunnan og vestan
við Miðmundarþúfu. Hún nær upp í brúnina og er að öðru leyti Álftavíkurmegin. Þar
liggja fjárgötur til Húsavíkur. Fært var báðum megin við Hádegishnjúk, vestan megin fært með
hesta. Álftavíkuregg heitir milli hans og landamerkjatindsins.
Innan við túnið eru svonefndir Hryggir, að mestu grónir lyngi og mosa. Gil eru á milli þeirra. Þeir ná frá
sjávarbökkum og upp í fjall. Innsti hryggurinn nær upp í Dalsbrýr. Þar var aðalleiðin upp af víkinni til
Húsavíkur, var alltaf farin með hesta og þá, eins og áður getur, vestan við Hádegishnúk.
Innan við Hryggi er svonefndur Höfði á sjávarbakka, nokkuð hár, grasi vaxinn. Innan við hann eru Innrivíkurflug.
Fjaran neðan Hryggjanna heitir Langamöl en neðan Höfðans er Höfðasandur.
Inn og upp af Höfðanum er rák í Miðmundarfjallið. Hún nær inn í Innri-Álftavík og
heitir Tóarák. Þverhníptir klettar eru fyrir neðan. Sagt er að endur fyrir löngu hafi smalastúlka, frá
Ytri-Álftavík, sem vaktaði ær á Innri-Álftavík, hrapað úr Tóarák, með
lyngbakka á baki, er hún var að reka ærnar heim að kveldi. Annars er rákin talin vel fær gangandi mönnum þegar autt er.
Inn úr Dalsbrúnum liggur rák til Innri-Álftavíkur sunnan í Miðmundarfjalli.
Hún heitir Urðarrák og er ill yfirferðar vegna holurðar, hver steinnn liggur á öðrum. Enn ofar eru Lambarákar sem
fé fer í, grónar. Þær ná ekki til Innri-Álftavíkur. Miðmundarfjall skilur Ytri- og
Innri-Álftavíkur og gengur því nær lóðrétt í sjó fram. Þar eru hreppamörk milli
Borgarfjarðar- og Loðmundarfjarðarhrepps.
Ekki er mikið af álftum í Ytri-Álftavík.
Viðbót frá Örnefnastofnun:
Á Ytri-Álftavík hefur Sigmar Ingvarsson skráð Norskuboða sem hann man ekki, hver tilgreindi.
Óvíst mun enn, hvar þeir eru.
Sigmar skráði eftir Rúnari Halldórssyni, sem átti heima í Húsavík til fullorðinsára. Sagði hann, að
móðir sín og Anton móðurbróðir sinn hefðu verið sér sammála. Þau bjuggu í Húsavík um
áratugi.
Sauðklauf heitir gjóta á leið, sem farin er niður úr Álftavíkurdal (6) niður á
Álftavík. Þessi gjóta eða klauf er í dalsbrúninni.
Uppfært: Hafþór Snjólfur Helgason-mán 6.des 2010





