Grund

Grund.  (eftir handriti Eyjólfs Hannessonar). Skammt fyrir neðan Grundarbæinn fellur Fjarðará, þvert í gegnum Grundarland og skiptir því í tvennt.  Heita

Grund

Grund. 
(eftir handriti Eyjólfs Hannessonar).

Skammt fyrir neðan Grundarbæinn fellur Fjarðará, þvert í gegnum Grundarland og skiptir því í tvennt.  Heita Tungur sunnan árinnar, suður að Þverá sem fellur út með Suðurfjöllum.  Utan við Grundartúnið fellur lítil kelda sem skiptir löndum Grundar og Gilsárvalla niður að Fjarðará.  Hún heitir Reiðingskelda en Reiðingskelduós þar sem hún fellur í Fjarðarána.  Frá Reiðingskelduósi liggja landamerkin inn og suður yfir Tungurnar, beina línu í Myrkárgil sem er sunnan Þverár.  Í norðurbarmi Þverárgils er djúp grafningsskora á landamörkum.  Lítið eitt innar fellur lítil kelda þvert suður í Þverána.

Innan við kelduna taka við flatar eyrar og harðvellisbreiður sem mjókka inn með Þveránni.  Þær heita Víðireyrar.  Um innsta odda þeirra liggur Merkigarður, frá Þverá þvert norður yfir TungurnarFjarðará, beint á Merkilækjargili, þar sem það endar í brekkurótunum milli Grundar og Hólalands.  Um Merkigarð skiptast Tungurnar milli Grundar og Hvannstóðs.  Garður þessi mun ævaforn.  Sést víða orðið lítið fyrir honum og sumstaðar ekki.

Eins og fyrr er getið rennur lítil kelda í Þverá þvert utan við Víðireyrarnar.  Upp með keldunni að utan gengur hátt móbarð.  Frá móbarðinu er hallandi mýri út að landamörkum og fer hækkandi norður að Öldunni en hallar suður að Þveránni og inn að móbarðinu.  Við enda móbarðsins eru svarðargrafir frá Grund.  Frá þeim liggur mjó mýrlend hallræma inn með endilöngum Víðireyrar.  Þar heita Víðireyrarhöll en utan við svarðargrafirnar og móbarðið heitir Hall venjulega nefnt Hallið utan við mógrafirnar.  Norður frá þessum mýrahöllum tekur við ávöl hæðarbunga, utan frá Gilsárvalla mörkum og inn að Merkigarði, mest móland með smá mýrarsundum og grasbollum en melkollar og rofabörð hér og þar.  Bunga þessi heitir einu nafni Öldur.  Hallar norður af þeim að Flóanum, flatri mýrarlengju sem nær eins og Öldurnar utan frá Gilsárvallamörkum inn að Merkigarði og lengra þó því bæði Öldum og Flóum liggja einnig um nágrannalöndin til beggja hliða og bera þau sama nafn.

Norðan við Flóann hallar landinu aðeins meira norður að Ásnum.  Þar heitir Hall en Ásinn er langur melhryggur sem liggur innan með Fjarðará út á móts við Grundarbæ.  Þar heitir Ásendi.  Nokkru innar skerst Ásinn sundur af breiðu gili.  Það heitir Ytra-Áslækjargil.  Tæpast er hægt að segja að um það falli lækur heldur aðeins sytra sem varla getur borið lækjarnafn.  En innar skerst annað gil gegnum Ásinn.  Það heitir Innra-Áslækjargil og er dýpra en ytra gilið.  Um það fellur Áslækur.  Hann kemur innan með sunnan verðum Ásnum.  Í honum eru víða djúpir pyttir sem hafa orðið margri sauðkindinni að aldurtila.  Skammt fyrir innan Innra-Áslækjargil gengur láglend eyrarkirna suður frá Ásnum.  Hún heitir Markeyri.  Þvert yfir hana, innarlega, liggur áðurnefndur Merkigarður.  Innan við Markeyrina fellur Fjarðará alveg með Ásnum en rennur svo í bug yfir Markeyrina.  Utan við Markeyrina fellur áin þétt að Ásnum aftur.  Allstaðar er brött brekka norður af Ásnum.  Úti fyrir Reyðingskelduósnum sem áður er nefndur er hólmi í Fjarðaránni.  Hann heitir Ytri-Hólmi en kvíslin norðan við hann Ytri-Kvísl.  Nokkru innar er annar hólmi, hann heitir Sultarhólmi.  Báðir eru hólmar þessir alvaxnir valllendisgróðri.  Norðan við Sultarhólma rennur kvíslin, eða rann áður, en nú orðið ekki nema í vatnavöxtum.  Ysti hluti Sultarhólmans var mjór tangi.  Hann heitir Hólmatagl.  Við taglrótina var bugur á ánni.  Nú hefir hún brotist þar gegnum hólmann og þar með losað hann við Taglið og fellur nú út með því norðanverðu um ysta hluta kvíslar-farvegarins.  Því nær um miðjan Sultarhólma er vað á Fjarðará.  Það heitir Svarðarvað.  Liggur frá því gata suður yfir Ásinn.  Hún heitir Svarðargata.  Hefur þessi leið verið farin þegar sóttur var svörður suður í Víðireyrar.  Inn af Sultarhólmanum er annað vað.  Það heitir Kaupstaðarvað.  Frá því liggur gata suður yfir Ásinn, skammt innan við Ytra-Áslækjargil.  Hún heitir Kaupstaðargata.  Mun nafnið frá þeim tíma er kaupstaðarferðir voru farnar til Seyðisfjarðar.  Þá var þessi leið farin.

Norðan við kvíslina er flöt harðvelliseyri.  Hún heitir Svarðareyri.  Norðan við hana er Svarðarkíll neðan undir Grundarbörðum, en Svarðargrafir eru innarlega við kílinn.  Ber Svarðareyrin nafn af því að á henni var svörðurinn þurrkaður.  Upp frá Svarðargröfum var lítið mýrarhall upp að túninu en út frá mýrarhallinu, frá túni niður að Fjarðará er Grundin.  Hallar bæði túninu og Grundinni lítið eitt niður til árinnar.  Nokkru eftir síðustu aldarmót hlaut bærinn Grundarnafnið eftir Grundinni niður frá túninu en hét áður Gilsárvallarhjáleiga.  Var þar öðru hvoru tvíbýli eins og nú og stóðu þá bæirnir hvor gegn öðrum, hvoru megin Bæjarlækjar og voru nefndir Út-hjáleiga og Fram-hjáleiga.  Núverandi Grundarbær stendur á rústum gamla Út-hjáleigu bæjarins en íbúðarhús hefir verið byggt þar í hlaðvarpanum og bóndinn í gamla bænum er með íbúðarhús í byggingu í fyrrverandi hlaðvarpa Fram-hjáleigu bæjarins.

Upp af utanverðu túninu rís hár og brattur hóll.  Gilsárvallahóllinn, nú oft nefndur Grundarhóll.  Utan til á Hólbrúninni er Stóristeinn á landamörkum.  Innan við Hólinn rennur Bæjarlækurinn niður um djúpt gil.  Það heitir Hólagil.  Neðst í Hólagilinu skiptist lækurinn í tvær kvíslar sem aftur renna saman framan við bæinn og falla síðan í einn farveg niður um túnið.  Tungan milli lækjanna heitir Miðhústunga.  Á henni stóð Miðhúsið.  Út af því fyrir utan ytri lækinn stóð Fjárhúsið.  Niður frá því hét Fjárhústún.  Út og niður frá því lá Fitin út og upp frá Ytri-Hjáleigubænum.  Fram af Miðhúsinu, framan við fremri lækinn stóð Lækjarhúsið, beint upp af Fram-hjáleigubænum.  Niður með læknum og utan við bæinn lá Balinn.  Fram af Lækjarhúsinu stóð Hesthúsið.  Fram og niður af því lá Fitin niður framan við bæinn.  Túnið fyrir neðan bæinn var einu nafni nefnt Niðurtún.  Fram og upp frá Lækjarhúsinu og Hesthúsinu var Kvíatúnið.  Það gekk fram fyrir ofan Fitina.  Fremst á því var Kvíabólið.  Rétt utan og ofan við það var Kvíahúsið.  Inn frá Niðurtúninu og Svarðargröfunum er Bláin.  Neðan við hana eru tveir lyngmóar, Ytri-mór og Innri-mór.  Neðan við þá, inn frá Sultarhólma, liggja Bakkarnir inn með Fjarðará.  Nokkuð inn og upp frá Ynnrimó er stakt holt.  Það heitir Heygarður.  Milli Innrimós og Heygarðs er flöt mýri.  Það er Breiðan.  Þar sem Bláin og Ytrimór koma saman heita Mólönd.  Ofan við Blána og beint inn af Grundarbænum eru Neðrihöllin og upp frá þeim Neðribörðin.  Gegnum þau skerst Stekkalækurinn.  Hann kemur ofan um Stekkalækjargil.  Þar sem hann kemur niður úr Höllunum dreifist hann um Blána.  Þar heitir Stekkalækjarfeti.  Niður við Breiðuna safnast hann aftur í einn farveg og rennur síðan utan við Breiðuna niður á milli Ytrimó og Innrimó, beygir út neðan við Ytrimóinn og rennur út í kvíslina skammt fyrir utan móendann.  Yst á Neðribörðunum, rétt innan við Kvíabólið og frá því skilið af djúpum kelduskorningi er Smiðjubarðið.  Þrjár keldur liggja niður um Neðribörðin milli Smiðjubarðs og Stekkalækjar.  Þær heita Ystakelda, Miðkelda og Innstakelda.  Ofan við Neðribörðin eru Efri-Höllin en ofan við þau Efribörð.  Í framhaldi af þeim, út og ofan við Kvíatúnið, er Neðri-Brekkubrúnin.  Upp frá henni er Brekkan.  Efst á henni, fram af Hólnum, er Efri-Brekkubrúnin.  Upp frá Hólnum og Brekkubrúninni er hallalítið upp að Langamel.  Hann liggur í framhaldi af langamel í Gilsárvallalandi, inn fyrir neðan Sesseljuhamra, allt að upptökum Fosslækjar.  Innst á Neðribörðum var Stekkurinn.  Nú mun Stekkalækur sem rennur utan við Stekkinn oftast kallaður Hagalækur.

Á síðustu árum fráfæranna um eða eftir aldamótin síðustu var byggður nátthagi fyrir ærnar kringum stekkinn þótt tilætluð afnot Nátthagans hyrfu með fráfærunum.  Skammt inn frá Stekkalæk í framhaldi af brúninni Neðribarðanna eru smá melkollar hver inn af öðrum.  Þeir heita Stekkamelar.  Innan við þá fellur Fosslækur, ofan frá Sesseljuhömrum um Fosslækjargil.  Upp frá Ysta-Stekkamel er gilskorningur.  Hann heitir Grafningur.  En harðvellisbakki utan við Grafninginn heitir Grafningsbakki.  Upp frá Stekkamelum og Grafningsbakka, innan Stekkalækjar og upp frá Efribörðum, utan Stekkalækjar eru Ennin – upp að Langamel.  Útenni fyrir utan Stekkalæk en Framenni milli Stekkalækjar og Fosslækjar.  Frá Efribörðum því nær upp að Langamel eru samfelldir harðvellisbakkar, beggja vegna Stekkalækjargilsins.  Þeir heita Stekkalækjarbakkar.  Fyrir innan Fosslækinn, inn af Stekkamelum, liggur lítið lautardrag inn og lítið upp á við að Merkilækjargili.  Það heitir Litlidalur.  Um Merkilækjargil kemur Merkilækur ofan úr Mjóadal á landamörkum Hólalands og Grundar.  Ofan við Litladal eru Litladalsbörð en upp frá þeim taka við Fosslækjarmýrar, milli Fosslækjar og Merkilækjar.  Ofan við þær þvergirða háir melar frá uppsprettu Fosslækjar inn að Merkilæk.  Þeir heita Fosslækjarmelar.  Utan og ofan við þá er djúp laut með þurrum lækjarfarvegi.  Út og upp frá lautinni rísa Sesseljuhamrar – nefndir eftir Hamra-Settu sem þar átti aðhafa dvalist í Sesseljuhelli.  Eru til um hana og hellisvist hennar margar sagnir.  Virðist ekki ósennilegt að hún sé sama konan og Sesselja sú er hraktist frá eign sinni Egilsstöðum á Völlum að Hólalandi eftir að höfðað hafði verið gegn henni sakamál út af fráfalli eiginmanns hennar sem grunur lék á að hún hefði grandað með aðstoð eða vitund vinnumanns hennar en skammt er frá Hólalandi til Hamranna.  Í neðstu Hamraskorunni er tjörn. Hún heitir Hamratjörn.

Á brattri brekku, upp frá upptökum Fosslækjar, rís neðsta klettabelti Sesseljuhamra með háum klettadröngum sem heita Hamrakerlingar.  Ofan við þær og því nær inn að Merkilæk liggja klettanibbur eða garðar með djúpum geilum á milli.  Þar heita Hamraskorur.  Hamrarnir upp að efstu Hamraskoru heita Neðri-Hamrar en upp frá henni rís efsta klettabelti Hamranna og ber hátt yfir Neðri-Hamra.  Það heitir Efri-Hamrar.  Í þeim er hellismunni og sér í heilt berg rétt sunnan við munnann en til beggja hliða liggja geilar eða glufur í bergið.  Ekki er vitað hvað þær geilar hafa að geyma eða hvert þær liggja því illkleift er upp í hellisopið en munnmæli herma að samgangur hafi verið milli Skriðnahellis í Njarðvíkurskriðum, Dalahellis í Hjaltastaðaþinghá og Sesseljuhellis.

Út frá Hamrakerlingunum og ofan við Langamel liggur snarbrött brekka sem fer lækkandi út að Stekkalæknum.  Hún heitir Hamrakinn.  Upp frá Langamel, utan við Bæjarlæk, liggur mýrarbreiða.  Þar heita Neðri-Græfur.  Efst í þeim er Merkidý á landamörkum.  Upp frá Neðri-Græfum rísa hækkandi holt með gjótum og grafningum á milli.  Hefjast þar Efri-Græfur sem ofar verða sléttari og hallaminni.  Innan við Græfur en út og upp frá Sesseljuhömrum liggur melhryggur sem fer hækkandi inn og upp.  Hann heitir Bringukollsmelur en þar sem hann ber hæst heitir Bringukollur.  Innan við hann en upp af Sesseljuhömrum er Hamarsmýrin.  Upp frá Bringukollsmel skiptast á melhryggir og mýrardrög.  Þar heita Klofar.  Upp af þeim er Rauðimelur, hár og brattur.  Yfir hann liggja landamerki Grundar og Gilsárvalla.  Innan við Hamramýri og Klofana inn að Merkilæk taka við Melkollar og hryggir sem liggja ýmislega en á milli þeirra gróin drög og dældir.  Ofan við þá, upp með Merkilæk, taka við melkollar og hryggir sem liggja ýmislega en á milli þeirra gróin drög og dældir.  Ofan við þá, upp með Merkilæk, er Mjóidalur.  Í honum á Merkilækur upptök sín sem fyrr er getið.  Mjóidalur er T-lagaður.  Upp með honum að utan standa tvær háar toppmyndaðar melstrýtur.  Þær heita Hrókar, sú neðri Lági-Hrókur en sú efri Hái-Hrókur.  Liggur önnur hliðarálma Mjóadals út fyrir ofan Háa-Krók en hin inn í Hólalandsfjall.  Þvert ofan við Mjóadal rísa háir melkambar, hver upp af öðrum en á milli þeirra djúpar dældir.  Þar heita Kambsmelar.  Ofan við Kambsmela rís Tindfellið hátt og bratt, efst fjalla í Grundarlandi.

Mynd augnabliksins

Könnun

Hvert er fallegasta fjallið í Borgarfirði

Sjá niðurstöður
Sjá allar kannanir
headerheaderheaderheader
GestabókHafa sambandHeim
East Iceland today. Sunrise / Sunset | -5.7° / VNV 8

Ferðamálahópur Borgarfjarðar

Upplýsingar um ferðamál: s: 893-9913
Vefumsjón: Hafþór Snjólfur Helgason
hshelgason@gmail.com

Fréttabréf

Póstlisti

Vertu vinur okkar

Vertu vinur okkar á facebook og fylgstu með okkur þar.
Stefna ehf Hugbúnaðarhús - Moya