Ný íbúð afhent á Borgarfirði

Auður Vala afhendir nýjum eigendum lyklana
Auður Vala afhendir nýjum eigendum lyklana
Það er stór dagur í dag á Borgarfirði, en núna rétt áðan var fyrsta nýja íbúðin afhent eigendum, en ótal mörg ár eru síðan það gerðist seinast. Það eru þau Sigga Óla og fjölskylda sem festu kaup á íbúð í gamla frystihúsinu og fengu þau lyklana af íbúðinni í morgunn.

Til hamingju Sigga og co og við bendum á að enn eru til íbúðir í þessu fallega fjölbýli hjá Sigga Magg hjá Inni fasteignasölu.