Borgarfjörður

lindarbakki

Borgarfjörður fékk verslunarréttindi árið 1895 og um það leyti byrjaði að myndast þéttbýliskjarni þar sem þorpið Bakkagerði er nú. Fyrst voru þetta lítil torfhús, svokallaðar þurrabúðir og „neðst" í þorpinu er Lindarbakki, fallegt lítið torfhús, sem sýnir vel hvernig þessi hús litu út. Lindarbakki er í einkaeign, nýttur sem sumarhús og er vinsælt myndefni ferðamanna.

Á Borgarfirði eystri eru æskustöðvar listmálarans Jóhannesar Sveinssonar Kjarvals, sem ólst upp í Geitavík, og þar ofan við veginn stendur minnisvarði um hann. Sumarið 2002 var opnuð á Borgarfirði Kjarvalsstofa, sem helguð er minningu Kjarvals. Þar var varpað ljósi á lífshlaup hans og listiðkun, auk þess sem fjallað er um dvöl hans á Borgarfirði á fyrri hluta 20. aldar. Kjarval, eða „Jói í Geitavík", eins og Borgfirðingar kölluðu hann, sýndi heimahögunum alla tíð mikla rækt og þangað sótti hann efnivið í margar rómaðar landslagsmyndir (auk þess sem hann teiknaði fjölda andlitsmynda af Borgfirðingum). Það verk sem stendur Borgfirðingum næst er eflaust altaristaflan í Bakkagerðiskirkju, en stór hluti þeirra ferðamanna sem sækja fjörðinn heim koma við í kirkjunni til að sjá þetta meistaraverk.

Íbúar Borgarfjarðarhrepps eru rúmlega 100 Í sveitinni er sauðfjárbúskapur og nokkuð af hrossum. Gott afréttarland fyrir sauðfé er í Loðmundarfirði og á víkunum sunnan fjarðarins og reka bændur fé sitt gjarnan þangað. Talsvert er af hreindýrum á svæðinu, en þau eru stygg og oft erfitt að koma auga á þau. Hafnaraðstaða á Borgarfirði er slæm frá náttúrunnar hendi enda fjörðurinn stuttur og breiður, en við Hafnarhólma austan fjarðar hefur verið gerð góð smábátahöfn. Gerðar eru út nokkrar trillur og mest af aflanum er saltað hjá Fiskverkun Kalla Sveins. Árið 2003 fékk Borgarfjarðarhöfn, önnur íslenskra hafna, að skarta Bláfánanum sem er alþjóðlegt tákn smærri hafna sem uppfylla ýmiss skilyrði, m.a. gott aðgengi ferðafólks, snyrtimennsku og góðar merkingar. 
 
Frábær aðstaða er til fuglaskoðunar við Hafnarhólma. Þar eru tveir pallar fyrir fuglaáhugamenn, fugla skoðunarhús og óvíða er betri aðstaða til að fylgjast með lunda og ritu. Lundinn kemur um miðjan apríl, en hverfur allur á braut á einni nóttu um miðjan ágúst.

Borgarfjörður er þekktur fyrir fallega steina, en almenn steinatínsla er bönnuð nema með sérstöku leyfi landeigenda. Hjá Álfacafé er varðveittur einn alstærsti jaspissteinn sem fundist hefur á Íslandi, 2.250 kg að þyngd.

Menningarlíf á Borgarfirði er öflugt, sé tekið tillit til smæðar staðarins, og ber þar tónlistarhátíðin Bræðslan þar hæst.